Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.06.2004, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 03.06.2004, Qupperneq 12
12 3. júní 2004 FIMMTUDAGUR ÓLYMPÍUELDURINN Haldið var af stað í heimsferð með Ólymp- íueldinn frá Aþenu í gær en þá flaug flug- vél á vegum hins íslenska flugfélags Atl- anta frá Grikklandi til Sidney í Ástralíu. Ráðgert er að heimsækja 26 önnur ríki með þessum hætti áður en leikarnir hefj- ast í ágúst. Fiskibátur sökk úti fyrir Vestfjörðum: Manni bjargað úr björgunarbát SKIPSSKAÐI Mannbjörg varð þegar fiskibátur sökk vestur af Látra- bjargi í gærmorgun. Einn maður var um borð og var honum bjarg- að úr björgunarbáti um borð í fiskibátinn Ríkeyju. Þyrla Land- helgisgæslunnar sem hafði verið kölluð út fór því ekki á staðinn. Gervihnettir og flugvélar sem leið áttu hjá námu neyðarboð frá bátnum laust eftir klukkan hálf- átta í gærmorgun. Þá datt bátur- inn út úr sjálfvirkri tilkynningar- skyldu Tilkynningarskyldunnar. Því var haft samband við báta sem í nágrenninu voru og lögðu tveir þeirra þegar af stað á vett- vang Að sögn Garðars Guðjónsson- ar, skipstjóra á Ríkeyju, var skip- ið á leið á miðin þegar haft var samband við hann vegna báts sem væri saknað. „Þannig að ég keyrði bara eins og báturinn dró á stað- inn. Þegar ég kom þangað var lág- skýjað og suddi,“ segir Garðar. „Ég leit í kringum mig og sá þá rautt neyðarblys og keyrði þegar að því. Þar fann ég manninn í björgunarbát en báturinn var sokkinn.“ Að sögn Garðars var maðurinn nokkuð blautur og talsvert brugð- ið en að öðru leyti heilbrigður. Maðurinn hafði verið í björgunar- bátnum í um tvo klukkutíma eftir að bát hans hvolfdi. ■ Segist einn bera ábyrgð á fjárdrættinum Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, játar alla sök í Landssímamálinu. Hann segir hin sem ákærð eru í málinu ekki hafa vitað að peningarnir frá Landssímanum væru fengnir án leyfis. DÓMSMÁL Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, játar á sig alla sök í Landssímamál- inu. Hann segir hin sem ákærð eru í málinu ekki hafa vitað að hann hafi tekið fé frá Landssímanum án leyf- is. Sveinbjörn dró sér samtals rúm- lega 261 milljón króna, frá því í maí árið 1999 og til ársloka 2003. Það er á þeim tíma sem hann starfaði hjá fyrirtækinu. Árni Þór Vigfússon, Kristján Ragnar Kristjánsson og Ragnar Orri Benediktsson eru allir ákærðir fyrir hylmingu og peninga- þvætti; Árni Þór og Kristján Ragnar á alls um 138 milljónum króna en Ragnar Orri á um 32 milljónum króna. Þá er kona á þrítugsaldri ákærð fyrir peningaþvætti á þrem- ur milljónum. Engar skuldaviðurkenningar Þeim Sveinbirni, Kristjáni Ragn- ari og Árna Þór ber saman um að þeir þrír hafi hist á fundi vorið 1999. Þá hafi Kristján Ragnar verið nýhættur í framhaldsnámi í Banda- ríkjunum. Hann hafi komið heim eftir að Árni Þór hafði samband við hann og kynnt honum hugmynd sína um Íslenska sjónvarpsfélagið. Þeir félagar höfðu heyrt þess getið að Landssíminn stundaði lánastarf- semi. Þeir höfðu því samband við Sveinbjörn, sem er bróðir Kristjáns Ragnars, og var á þeim tíma aðalfé- hirðir Landssímans. Þeir báðu Sveinbjörn um að athuga hvort þeir gætu fengið fyrirgreiðslu hjá Landssímanum til að láta hugmynd- ina um Íslenska sjónvarpsfélagið verða að veruleika. Skömmu síðar kom jákvætt svar frá Sveinbirni og féð tók að streyma til Íslenska sjón- varpsfélagsins og Alvöru lífsins. Auka átti hlutafé Íslenska sjón- varpsfélagsins á stuttum tíma og greiða lánveitingu símans til baka þegar það hefði tekist. Hvorki hafi verið rætt um skuldaviðurkenning- ar né gjalddaga. Sveinbjörn segir að aðeins hafi verið ætlunin að lána féð en fyrir ársuppgjör í mars 2000 hafi honum verið ljóst að þeir Árni Þór og Krist- ján Ragnar hefðu ekki tök á að greiða féð á réttum tíma. Hann hafi því tekið til þess ráðs að hylma yfir þessar leyfislausu lánveitingar með því að breyta bókhaldi fyrirtækis- ins. Taldi sig fá hluta launanna svart Ragnar Orri er sakaður um pen- ingaþvætti og hylmingu á 32 millj- ónum sem hann notaði í eigin þágu og í rekstur veitingahússins Priks- ins. Mest fór þó til einkahlutafélaga Árna Þórs og Kristjáns Ragnars. Í ellefu mánuði frá árinu 2001 til 2002 fékk Ragnar Orri greiddar mánað- arlega 300 þúsund krónur inn á sinn reikning. Hann segir ástæður greiðslanna hafi verið að hann hafi átt að fá greitt um 1200 krónur á tímann fyrir vinnu sína á Prikinu og Thorvaldsen. Að hluta til hefði hann átt að fá greitt svart fyrir vinnu sína. Eftir nokkrar mánaðarlegar greiðslur hafi hann í heimabanka sínum orðið þess var að Landssím- inn hefði greitt laun hans. Hann hafi ályktað að fyrirtæki í eigu Krist- jáns Ragnars, Sveinbjörns og Árna Þórs sem áttu í viðskiptum í Laos gengi vel og Landssíminn sæi um lánveitingar til þeirra. Sveinbjörn segist hafa skýrt fyrir Ragnari Orra að þau laun sem hann fengi greidd væru hluti af launum sínum sem að- alféhirðis. Átti að auka veltu á eigin reikningi Kona á þrítugsaldri sem ákærð er fyrir peningaþvætti á 30 milljón- um króna segir Sveinbjörn hafa verið yfirmann sinn á þeim tíma sem hún framseldi tvær ávísanir frá Landssímanum. Hún hafi verið starfsmaður á veitingastaðnum Prikinu. Sveinbjörn hafi einnig ver- ið að hjálpa til við að koma fjármál- um hennar á réttan kjöl, þau hafi verið vinir um nokkurt skeið. Hún segir Sveinbjörn hafa látið sig í tvö skipti hafa ávísanir til að greiða reikninga fyrir framkvæmdir á Prikinu og húsaleigu rekstursins. Þá hafi hann ráðlagt henni að leggja peningana fyrst inn á sinn reikning til að sýna aukna veltu. Sögum hennar og Sveinbjörns ber saman hvað þetta varðar. Vildu greiða Landssímanum til baka Kristján Ragnar og Árni Þór segja að þeim hafi fyrst verið ljóst um fjárdráttinn í maí í fyrra. Það hafi komið til eftir að fyrirtæki í þeirra eigu hefðu lent í skattrann- sókn og Kristján hafi hringt í Svein- björn. Þá hafi Sveinbjörn tjáð þeim að lánveitingarnar frá Landssíman- um hafi verið framkvæmdar í leyf- isleysi. Báðir segjast Kristján og Árni hafa haft samband við lög- fræðing til að koma á fundi með stjórnendum Landssímans. Á fund- inum hafi þeir boðist til að greiða Landssímanum hluta af skuldinni með hluta sínum í Íslenska sjón- varpsfélaginu. Ragnar Orri segist hafa verið staddur í útlöndum þegar hann hafi fengið símtal frá föður sínum sem tjáði honum að frændur hans þeir Kristján og Sveinbjörn sætu í gæsluvarðhaldi. Í framhaldi af því hafi hann sjálfur verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald þar sem honum varð ljóst hvernig væri í pottinn búið. ■ Danskir bruggarar í verkfall: Hillur tæmast af bjór ÖLGERÐ Tæplega 250 starfsmenn stærstu bruggverksmiðju Carls- berg í Danmörku halda áfram verkfalli sínu en nú er vika síð- an það hófst. Hafa afleiðingarn- ar ekki staðið á sér og kvarta margir Danir, sem lengi hafa dá- samað bjórinn, yfir að fá ekki lengur Carlsberg eða Tuborg í verslunum enda er orðið erfitt að finna slíkt í alfaraleið. Ís- lenskir aðdáendur þurfa ekki að óttast strax enda nógar birgðir í íslenskum vöruhúsum. ■ ■ Evrópa ■ Ameríka Ákvörðun sjávarútvegsráðherra varðandi hvalveiðar: Ánægja víða erlendis HVALVEIÐAR Dýraverndunarsamtök víða um heim hafa fagnað ákvörð- un Árna M. Mathiesen, sjávarút- vegsráðherra, að leyfa einungis veiðar á 25 hrefnum í sumar en það er umtalsvert minna en vís- indaáætlun Hafrannsóknarstofn- unar gerði ráð fyrir. Hefur sjáv- arútvegsráðherra látið hafa eftir sér að ein ástæða ákvörðunar sinnar sé alþjóðlegur þrýstingur og telja Grænfriðungar um tals- verðan sigur að ræða. „Þetta er eins nálægt sigri í þessu máli og hugsast getur,“ seg- ir Frode Pleym, talsmaður Græn- friðunga, en samtökin hófu í vetur herferð gegn hvalveiðum Íslend- inga í nokkrum löndum. Hafa þeir safnað undirskriftum rúmlega 50 þúsund félagsmanna sinna sem lýsa yfir áhuga á að heimsækja landið hætti stjórnvöld alfarið hvalveiðum hér við land. ■ OPEC eykur olíuframleiðslu: Lítil hætta LÍBANON, AP Olíuráðherra Sádi-Arab- íu segir olíufyrirtæki í landinu óhullt fyrir frekari hryðjuverkum. Olíuverð er í hámarki eftir hryðuverkin þar um síðustu helgi. OPEC-ríkin ellefu þurfa að lyfta grettistaki til að hafa áhrif á olíuverð. Ríkin eru við það að fullnýta framleiðslugetu sína. Sam- einuðu furstadæmin hafa ákveðið að auka við framleiðsluna um 400 þús- und tunnur á dag en kvóti ríkisins hjá OPEC eru rúmlega tvær milljónir tunna. Olíuráðherrann hvetur ríkin ellefu til að auka framleiðsluna um allt að ellefu prósent. ■ FYLLT Á HJÓLIÐ Bifreiða- og vélhjólaeigendur eru allt ann- að en sáttir. Bensínverð hækkar: Bretar æfir BRETLAND, AP Bílstjórar flutn- ingabíla hótuðu verkfalli og leigubílstjórar kvörtuðu hástöf- um undan því að þurfa að vinna miklu meira en áður til að láta enda ná saman þegar bensín- verð í Bretlandi hækkaði í 110 krónur á lítrann. „Ég vinn þegar klukkutíma meira en áður dag hvern til að vinna upp það sem ég tapa í dýr- ara bensínverði,“ sagði leigubíl- stjórinn Gary Hutchinson. Mikillar reiði gætir í Bret- landi vegna hækkandi bensín- verðs og hafa heyrst raddir um að endurtaka bensínmótmælin sem settu mikinn svip á breskt þjóðfélag árið 2000. Michael Howard, leiðtogi Íhaldsflokks- ins, sagðist hlynntur slíkum mótmælum. ■ TRÚÐURINN ÚR FRÉTTUNUM Einn vinsælasti fréttaþáttur Mexíkó heyrir sögunni til eftir að trúðurinn Brozo tók niður hárkolluna og plastnefið og kvaddi áhorfendur. Þátturinn var sýndur daglega og flutti trúðurinn fréttirnar og ræddi með sínum hætti. Hann hætti því eftir að kona hans og með- framleiðandi lést. VERKFALL NEÐANJARÐAR Starfsmenn neðanjarðarlest- anna í London hafa samþykkt verkfallsboðun til að knýja á um hærri laun. Dagsetning verkfallsins hefur ekki verið ákveðin en ljóst er að það hefði mikil áhrif á starfsemi neðan- jarðarlestanna en þrjár milljón- ir manna ferðast með þeim dag- lega. TÉKKAR VILJA SINN MANN Rík- isstjórn Tékklands hefur til- nefnt fyrrverandi utanríkisráð- herrann Petr Kolar í embætti æðsta yfirmanns Sameinuðu þjóðanna í Kosovo. Aðrir hafa ekki verið tilnefndir en hin norska Kai Aide, ítalski Stefano di Mistura og hollenski Peter Feith hafa verið nefnd til sög- unnar. BÁTURINN SEM SÖKK Mannbjörg varð þegar fiskibátur sökk vest- ur af Látrabjargi í fyrrinótt. HVALVEIÐAR Dýraverndunarsinnar fagna áformum Ís- lendinga um að fækka til muna þeim hvölum sem veiða á í ár. HJÖRDÍS RUT SIGURJÓNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR Í DÓMSAL AÐALMEÐFERÐ LANDSÍMAMÁLSINS SVEINBJÖRN KRISTJÁNSSON Sveinbjörn segir að félagar hans hafi ekki vitað að fé frá Landssímanum hafi verið fengið án leyfis. Upphaflega hafi hann aðeins ætlað að lána peningana en þegar honum varð ljóst að Árni Þór og Kristján Ragnar gætu ekki greitt fé fyrir ársuppgjör árið 2000 hafi hann hulið slóð sína. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.