Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.06.2004, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 03.06.2004, Qupperneq 38
15. maí 2004 LAUGARDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ ROCKY ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Martin Kellerman Eftir Frode Överli Listahátíð er lokið í bili, alveg fram á næsta ár. Einhvern tímann var listahátíð í júní og heyrði ég nokkra kvarta yfir tímasetningunni í ár. Að- allega skólafólk sem var í prófum og hafði því ekki tíma til að líta upp úr bókunum til að kíkja á merkilega listviðburði. En á hinn bóginn ef listahátíð er í júní er fólk ekki kom- ið í sumarfrí og komist því ekki burt úr sumarbústaðnum eða frá Mall- orca. Eitt af því sem við þurfum að velta fyrir okkur er líklega fyrir hverja svona listahátíðir eru ætlað- ar. Er tilgangurinn að hafa flotta viðburði fyrir menningarelítuna sem fer hvort sem er á flest það sem er í boði? Eða á að víkka áhorf- endahópinn og fá fólkið til að mæta sem fer á einn listviðburð á ári og í fyrra var það líklega að sjá Jónsa og Birgittu í Grease? Listahátíð í ár var voðalega flott en ég held það hafi aðallega verið tónlistaratriðin sem trekktu að þessa „venjulegu“ áhorfendur. Það er sígild spurning hvort listin eigi að ná til almennings eða almenning- ur eigi að þroskast upp í listina. Það er út frá þessari spurningu sem list- in skiptist í hálist/láglist, listina sem aðeins þeir útvöldu geta notið og hina, þessa plebbalegu fyrir al- menning. Margir listamenn hafa jafnvel reynt að þróa þetta út í öfg- ar í báðar áttir, að skapa list sem engin skilur nema með aðstoð túlks eða finna „meðaltalslistina“, mál- verkin sem voru máluð víða um heim byggð á Gallup-könnunum um hvað „þjóðin“ vildi sjá. Án þess að hafa slíka Gallup- könnun á bak við mig, held ég að fólk vilji listviðburði sem hreyfir við því, að með listinni geti það hlegið, grátið, hneykslast, dansað eða hvað annað sem því dettur í hug. Sjálfhverf list, eins og sumt af því sem hefur verið boðið upp á undanfarnar vikur, sem gleymir áhorfandanum, getur verið ofboðs- lega falleg en hún mun aldrei ná að víkka áhorfendahópinn. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA SVANBORG SIGMARSDÓTTIR VELTIR FYRIR SÉR LISTINNI ■ Af hálist og plebbamenningu Hvernig heldurðu að veislan gangi? Ha?? Ég sagði „Hvernig heldurðu að veislan gangi“? Hvað? HVERNIG HELDUR ÞÚ AÐ VEISLAN GANGI??? Ég er alveg sammála þér!!! Gæði afmælis- veislna og rokk- tónleika eru best mæld í desibelum. Og hvernig heldur þú að veislan gangi? Jæja, sjáðu hver hefur snúið aftur!!! Einu sinni enn hefur „litli prinsinn“ ákveðið að heiðra okkur með nærveru sinni! Ég hélt að kettir væru sjálfstæðir! Einstæðir! Hvað gengur eiginlega á!?! Stundum vilja kettir deila einveru sinni með öðrum. Hæ, strákar! Uss! Við erum að leita að eplum! Ég ætla að HRINDA þér! Þeim gengur ekkert alltof vel í skólanum! Nei, getur það verið? Það væri helvíti flott að hitta stelpu! Vandinn með þig er að þú reynir allt of mikið! Þegar maður fer út bara til að veiða gefur maður frá sér vondar bylgjur. Stelpur finna það á sér þegar strákar eru örvæntingarfullir! Þegar þú ert einhleypur lítur engin við þér, en þegar þú ert komin með stelpu hópast þær í kringum þig! Ég minnist þess ekki að þær hafi hópast í kringum þig þegar þú varst með stelpu... Þær hópuðust! Farðu út í kvöld og láttu eins og stelpurnar séu ekki til, þá nælirðu í einhverja. Heyrðu, við lokuðum fyrir klukkutíma! Hversu oft á ég að þurfa að segja þér þetta

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.