Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.06.2004, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 08.06.2004, Qupperneq 2
2 8. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR Shirin Ebadi segir árangur hafa náðst í mannréttindamálum: Skref í framfaraátt NEW YORK, AP Þeir sem berjast fyrir mannréttindum í Íran eru smám saman að ná árangri, sagði Shirin Ebadi, friðarverðlaunahafi Nóbels 2003. Hún sagði árangur hafa náðst í baráttunni fyrir réttindum barna og kvenna sem hefði fengið aukið vægi frá því að stjórn keisarans var kollvarpað og klerkastjórnin komst til valda. „Þegar ég lít til baka sé ég að stigin hafa verið skref í framfara- átt. Mannréttindaástandið í Íran er mun betra nú en það var fyrir 24 til 25 árum síðan,“ sagði Ebadi á fundi í New York í Bandaríkjunum. „Þetta þýðir ekki að í Íran búum við ekki við vandamál út frá mann- réttindasjónarmiði,“ sagði hún þó og tók fram að evrópskar og amer- ískar hugmyndir um mannréttindi væru ekki til staðar innan klerka- stjórnarinnar. „Lögin þurfa að vera sanngjörn og í samræmi við menninguna,“ sagði Ebadi. Hún sagði íranska al- þýðu mjög lýðræðissinnaða og vilja hraðari umbætur í mannréttindamál- um og meiri þróun í lýðræðisátt. ■ Telja gjöld vangoldin við stofnun Baugs Skattrannsóknarstjóri telur verðmat fyrirtækjanna sem stóðu að stofnun Baugs rangt og opinber- ar álögur hefðu átt að verða hærri en raun varð. Skattrannsóknarstjóri mun fara yfir athuga- semdir og ákveða hvert framhald málsins verður í kjölfarið. SKATTRANNSÓKN Samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins snúa stærstu athugasemdir skattrann- sóknarstjóra í frumskýrslu um viðskipti Baugs og Gaums um verðmat matvörukeðjanna Bónus og Hagkaupa við stofnun Baugs. Upphaf Baugs má rekja til sam- einingar þessara tveggja versl- anakeðja í júlí 1998. Skattyfirvöld telja að meta hefði átt verð fyrir- tækjanna með öðrum hætti og þau hefðu átt að greiða hærri opinber gjöld í kjölfarið. Ekki fengust upplýsingar um hversu miklar fjárhæðir er að ræða. Fulltrúar skattrannsóknar- stjóra vilja ekkert tjá sig um um- fang eða innihald frumskýrslu rannsóknar á Baugi. Skúli Egg- ert Þórðarson skattrannsóknar- stjóri vildi ekkert tjá sig um mál- ið. Aðilar málsins hafa nú undir höndum frumskýrslu rannsókn- arinnar og hafa frest til 25. júní til þess að gera athugasemdir við skýrsluna. Hreinn Loftsson, lögmaður og stjórnarformaður Baugs, vildi ekkert tjá sig um efni skýrslunn- ar. Eðli hennar væri að aðilar málsins leiðréttu og útskýrðu ein- stök atriði fyrir skattrannsóknar- stjóra og því ekki rétt að tjá sig að svo stöddu. Skattrannsóknarstjóri fékk málið til umfjöllunar frá ríkislög- reglustjóra, þaðan sem komu ábendingar um atriði í viðskiptum Baugs og Gaums sem er í eigu Jó- hannesar í Bónus og fjölskyldu hans. Skattrannsóknarstjóri gerði í kjölfarið húsleit í nóvember síð- astliðnum hjá Gaumi og Baugi. Eftir að athugasemdum hefur verið skilað fer embætti skatt- rannsóknarstjóra yfir skýringar og metur hvort þær gefi tilefni til breytinga. Endanleg skýrsla er svo send ríkisskattstjóra. Þar er tekin ákvörðun um framhaldið. Málið getur endað með samkomu- lagi um endurálagningu, verið sent til yfirskattanefndar eða til lögreglu ef talið er að brot séu al- varleg. Þáttur skattrannsóknarstjóra í rannsókn á Baugi er samkvæmt þessu á lokastigi, en rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra stendur enn. Rann- sókn efnahagsbrotadeildarinnar hófst í ágústlok árið 2002 og sam- kvæmt upplýsingum frá embætt- inu er ekki séð fyrir endann á henni. haflidi@frettabladid.is Fundur iðnríkja: Vill tryggja stefnu sína WASHINGTON, AP Ársfundur sjö rík- ustu iðnríkja heims auk Rúss- lands hefst í dag í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum. George W. Bush vonast til að vinna stefnu sinni í Írak gott fylgi á fundinum. Á morgun hitta leiðtogar iðn- ríkjanna leiðtoga nokkurra arabaríkja, til að ræða áætlun Bush. Áætlunin hefur þegar vald- ið fjaðrafoki og hafa ýmsar araba- þjóðir lýst henni sem tilraun Bandaríkjamanna til að skara eld að eigin köku. Egyptaland og Sádi- Arabía hafa tilkynnt að þau muni ekki sitja fundinn af þessum sök- um. ■ Þetta er hundrað ára samfelld fjármálasaga. Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka. Bank- inn fagnar því að í ár eru hundrað ár liðin síðan Íslandsbanki eldri var stofnaður. Nýi Íslandsbanki hefur starfað undir því nafni síðan 1990. SPURNING DAGSINS Bjarni, hvað er Íslandsbanki eiginlega gamall? Þingvallavegur: Lést í mótor- hjólaslysi BANASLYS Ung- ur maður lést eftir árekstur tveggja bif- hjóla á Þing- vallavegi við Skálafell rétt eftir miðnætti í fyrrinótt. Við árekstur bifhjólanna kastaðist maðurinn af hjóli sínu og þegar farið var að huga að honum var hann meðvit- undarlaus og var úrskurðaður lát- inn skömmu síðar. Hann var á ferð með hópi vélhjólamanna þeg- ar slysið varð. Maðurinn hét Guðmundur Karl Gíslason til heimilis að Aflagranda 27 í Reykjavík. Guðmundur Karl var fæddur 27. júní árið 1979. ■ UNDIRSKRIFTALISTARNIR AFHENTIR Listar með undirskriftum rúmlega þriðjungs atkvæðabærra manna voru afhentir í gær. Sundlaugarbygging: Staðarvali mótmælt MOSFELLSBÆR Nokkurrar óánægju gætir í Mosfellsbæ með stað- setningu nýrrar sundlaugar sem á að byggja. Bæjarstjórn hefur ákveðið að hún verði byggð við Lágafellsskóla en því hefur ver- ið mótmælt. 1.617 manns, um 36 prósent at- kvæðabærra íbúa, skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem byggingu sundlaugarinnar á þessum stað var mótmælt. Þess í stað vilja þeir sem mótmæla staðarvalinu að sundlaugin verði byggð við íþróttamiðstöðina að Varmá. Með því sé haldið áfram uppbyggingu þar og tryggt að íþróttaaðstaða bæjarins sé í tengslum við úti- vistarsvæðið við Varmá. ■ Útafakstur: Sofnaði við stýrið UMFERÐARÓHAPP Ökumaður slapp ómeiddur þegar jeppi hans fór út af veginum skammt fyrir utan Blönduós á áttunda tímanum í gærkvöld. Lögreglan á Blönduósi telur að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri með fyrrgreindum af- leiðingum. Bifreiðin er óökufær og var dregin af staðnum. ■ BAUGUR Í UNDIRBÚNINGI Hagkaup og Bónus voru upphaflegu stoðirnar sem mynduðu Baug í júlí 1998. Óskar Magnússon var forstjóri Hagkaupa. Gaumur og tengdir aðilar eignuðust 25 prósent í fyrirtækinu í upphafi , en afgangurinn var í eigu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Kaupþings. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R G ÍS LA SO N KÓLUMBÍA, AP Tvær ófrískar konur voru meðal tíu manna sem særð- ust þegar bílsprengja sprakk í Medellín, næststærstu borg Kól- umbíu. Bíllinn sprakk þar sem honum hafði verið lagt inn á bílastæði nærri lögreglustöð og kirkju. Veggir kirkjunnar hrundu við sprenginguna. Um 60 manns voru við guðsþjónustu í kirkjunni þeg- ar sprengingin átti sér stað og slösuðust nokkrir þeirra, í þeim hópi var presturinn. Sá sem varð fyrir alvarlegustum meiðslum var þó starfsmaður bílastæðisins þar sem bílnum hafði verið lagt. Á laugardag sprakk bíl- sprengja við lögreglustöð í Cali, þar slösuðust fimm. ■ MIKLAR SKEMMDIR Lögreglumenn á vettvangi kanna skemmdir. Bílsprengja: Tíu særðust KARLMENN Í HEFÐBUNDNUM SUMARSTÖRFUM Framkvæmdir ganga hratt í blíðviðrinu sem leikið hefur við landsmenn undanfarna daga. Þessir vösku menn voru að steypa gangstétt í Klettagörðum við Sundahöfn seinni partinn í gær þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti þar leið framhjá. TEKIST Á VIÐ LÖGREGLU Lögregla þurfti að halda aftur af strangtrú- uðum múslimum sem réðust að breska sendiráðinu. Trúarlegt vald hefur minnkað aðeins í Íran að sögn Shirin Ebadi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.