Fréttablaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 42
8. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR34
SÝND kl. 6, 8 og 10 B.i. 14
SÝND Í LÚXUS VIP. kl. 5 og 8
ELLA Í ÁLÖGUM kl. 4 og 6 TAXI 3 kl. 8 og 10
VAN HELSING kl. 6 og 9 TOUCHING THE VOID kl. 5.45
SÝND kl. 6 og 9 B.i. 14
Brad Pitt, Orlando Bloom
og Eric Bana i magnaðri
stórmynd undir leikstjórn
Wolfgang Petersen.
STÓRVIÐBURÐUR
ársins er kominn!
DREKAFJÖLL kl. 3.45 M/ÍSL. TALI
CONFESSION OF A DRAMA QUEEN kl. 4VAN HELSING kl. 5.30, 8 og 10.30
SCOOBY DOO 2 kl. 4 M/ÍSL. TALI
STÓRVIÐBURÐUR
ársins er kominn!
HHH
Mbl.
SÝND kl. 6, 7, 9 og 10
SÝND Í STÓRA SALNUM kl. 6 og 9
HHH
Mbl.
HHH1/2
kvikmyndir.is
SÝND kl. 4, 5, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
HHH
Ó.H.T. Rás 2
SÝND kl. 4, 5.20, 6.40, 8, 9.20 og 10.40
SÝND Í LÚXUS kl. 5.50, 8.30 og 11.10 SÝND kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
S.V. Mbl.
HHH
H.L. Mbl.
HHH
Kvikmyndir.com
HHH
Kvikmyndir.is
HHH1/2
kvikmyndir.is
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
H.L. Mbl.
HHH
Kvikmyndir.com
HHH
Kvikmyndir.is25 þúsund manns
á aðeins 12 dögum!
Tom Cruise er greini-lega ekki sama um þá
hluti sem aðrir skrifa um
hann. Eftir að heimasíða
hélt því fram að hann
hefði sýnt þvílíka
stjörnustæla við tökur á
þriðju Mission: Impossi-
ble-myndinni sá hann sig
tilneyddan til þess að
svara fyrir sig. Slúður-
vefurinn aflyont-
hewall.com hélt því fram
að allt starfsfólk fengi
ströng fyrirmæli um
hvernig það ætti að um-
gangast og tala við hann
áður en það tæki til star-
fa. Þessu neitar Cruise
og segist ætla reka þann
starfsmann sem seldi
síðunni söguna.
Tilefni ferðarinnar er 100 ára af-mæli heimastjórnarinnar og 60
ára afmæli lýðveldisins,“ segir Jó-
hann Sigurðarson leikari en hópur
íslenskra skákmeistara og leikara
frá Þjóðleikhúsinu heldur til
Winnipeg í næstu viku til að taka
þátt í hátíðarhöldum. „Það verður
haldið tveggja daga skákmót ves-
tra, sem verður án efa eitt öflug-
asta skákmótið sem haldið hefur
verið í Kanada í mörg ár og menn
eru gríðarlega spenntir yfir komu
íslensku stórmeistaranna. Það er
búið að auglýsa atburðinn mikið
vestanhafs og sjónvarpsstöðin CBC
verður með blaðamannafund á
næstunni til að vekja athygli á
verkefninu.“
Hópurinn frá Þjóðleikhúsinu
kemur til með að leika tvær sýning-
ar vestanhafs. „Verkið New
Iceland’s Saga eftir Böðvar Guð-
mundsson rithöfund verður flutt en
sagan segir frá fjölskyldu sem tek-
ur sig upp frá Íslandi og heldur
vestur um haf til Kanada. Inn í sög-
una fléttast söngvar frá ýmsum
tímum og Bergþór Pálsson óperu-
söngvari og Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson píanóleikari flytja dag-
skrána ásamt leikhópnum,“ segir
Jóhann en auk hans eru Gunnar
Eyjólfsson, Kjartan Guðjónsson,
Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ragn-
heiður Steindórsdóttir og Þórunn
Lárusdóttir í leikhópnum. „Þetta
verður skemmtileg för en að auki
verður haldin athöfn við styttu
Jóns Sigurðssonar í Winnipeg, 17.
júní, þar sem Gunnar Eyjólfsson
flytur kvæði og sungnir verða þjóð-
söngvar Íslands og Kanada.“ Stór-
meistarinn Helgi Áss Grétarsson
teflir fjöltefli 19. júní en skák-
meistararnir Helgi Ólafsson, Jó-
hann Hjartarson, Jón L. Árnason og
Þröstur Þórhallsson fara allir vest-
anhafs og Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra verð-
ur einnig með í för. ■
Tæplega 14 þúsund miðar seld-ust á þriðja ævintýrið um
Harry Potter yfir helgina. Þetta er
því stærsta opnun kvikmyndar á
landinu, það sem af er árinu.
Harry Potter og fanginn frá
Azkaban hefur fengið lof erlendra
gagnrýnenda. Myndin er í efsta
sæti allra bíóaðsóknarlista í öllum
þeim löndum sem hún var frum-
sýnd í þessa helgina, þar á meðan
í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Myndin sló met í Bretlandi þar
sem hún halaði inn 23,8 milljónum
sterlingspunda á frumsýningar-
helgi sinni. Fyrra metið átti önnur
myndin í bálkinum, Leyniklefinn,
en hún náði inn 18,8 milljónum
punda. Fyrsta myndin náði inn 16,3
milljónum punda.
Myndin var sýnd í 535 sýningar-
sölum um allt Bretland. Ekkert lát
virðist vera á vinsældum Harry og
stefnir allt í að myndin verði á með-
al tekjuhæstu mynda allra tíma.
Tökur á fjórðu myndinni, Harry
Potter og Eldbikarinn, eru við það
að hefjast en krakkarnir þrír sem
leika aðalhlutverkin, Daniel
Radcliffe, Emma Thompson og
Rupert Grint munu endurtaka rull-
ur sínar í þeirri mynd. ■
Um 14 þúsund á Harry Potter
FRÍÐUR FLOKKUR
Galvaskur hópur skákmanna og leikara heldur til Kanada í lok vikunnar. Á myndina vantar skákmeistarana Helga Ólafsson, Jóhann Hjart-
arson, Jón L. Árnason og Þröst Þórhallsson.
Leika og tefla í Kanada
■ KVIKMYNDIR
FANGINN FRÁ AZKABAN
Strokufanginn Gary Oldman fær kannski
Harry Potter til þess að skjálfa en aðdáend-
ur hans hópast í bíó til þess að sjá hann.
■ FÓLK Í FRÉTTUM