Fréttablaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 6
6 8. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Árni M. Mathiesen:
Erum á réttri leið
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Þetta sýnir að
við erum á réttri leið hvað varð-
ar uppbyggingu á fiskistofnun-
um við landið og það er ánægju-
legt,“ segir Árni M. Mathiesen,
sjávarútvegsráðherra. Hann
segir það standa helst upp úr
skýrslu Hafrannsóknastofnunar
sem kynnt var í gær.
„Það er greinileg aukning í
fjölda í stofni þorsks, ýsu, ufsa
og löngu sem er afleiðing þess
að við höfum fetað okkur var-
lega fram í veiðum. Verra er aft-
ur á móti með þau umhverfisá-
hrif sem fram hafa komið. Við
höfum reynslu af jákvæðum
áhrifum þeirra hér áður en nú
horfir svo við að áhrifin eru nei-
kvæð gagnvart þorskinum.“
Árni segir að ákvörðunar
hans um kvóta sé að vænta inn-
an tíðar en engar stórar breyt-
ingar séu fyrirhugaðar. „Óviss-
an snýst eingöngu um loðnuna
og hvað verður með hana en það
er of snemmt að fara að spá ein-
hverju neikvæðu. Við höfum
áður lent í þessari stöðu að ná
ekki mælingu en loðnan hefur
þó skilað sér á réttum tíma.“ ■
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsóknastofn-
un hefur lagt fyrir sjávarútvegs-
ráðherra tillögur sínar að fiskveið-
um fyrir næsta fiskveiðiár en
óvissuþátturinn er stór vegna
hlýnunar sjávar og annarra um-
hverfisbreytinga í sjónum við
landið. Vegna þeirra hefur Hafró
tekið þá ákvörðun að mæla með
skerðingu á þorskveiðiheimildum
um fjögur þúsund tonn á næsta
fiskveiðiári en ekkert bólar á loðn-
unni sem er aðalfæða þorsksins.
Í tillögum Hafrannsóknastofn-
unar fyrir næsta fiskveiðiár verð-
ur heimilt að veiða meira af ýsu,
ufsa og kolmunna. Ýsukvótinn
mun þannig aukinn um fimmtán
þúsund tonn en stofninn er í mikilli
uppsveiflu og kvótinn í ufsa mun
ennfremur aukast um 20 þúsund
tonn gangi hugmyndir Hafrann-
sóknastofnunar eftir.
Hin mikla óvissa sem ríkir um
loðnustofninn hér við land hefur
mikil áhrif á útreikninga fiski-
fræðinga en ekki stendur til að
gefa leyfi til veiða á loðnu fyrr en
vitað er fyrir víst hvað veldur því
að hún er varla mælanleg í sjónum
við Ísland. Tvær tilgátur eru á þá
leið að annars vegar hafi stofninn
hrunið algjörlega eins og þekkt er
að hafi áður átt sér stað eða að
loðnan er mun seinni á ferð norður
landið en áður eru dæmi um. Sé
um það að ræða á hlýnandi sjór við
landið sinn þátt í því.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, segir af
og frá að ákvarðanir séu teknar
um loðnuveiði í sumar fyrr en leit-
að hefur verið allra leiða til að
ganga úr skugga um hvað veldur
því að loðnan finnst ekki. Segja
fiskifræðingar augljóst að þorsk-
urinn nái einfaldlega ekki að bæta
upp minnkandi loðnu með öðrum
fæðutegundum.
Breytt umhverfisskilyrði í sjón-
um kringum landið munu hafa
mikil og ófyrirsjáanleg áhrif á líf-
ríkið og fiskstofnana en Jóhann
vill ekki meina að breyttar for-
sendur hafi áhrif á áætlanir Hafró
til lengri tíma litið. „Það hefur
alltaf verið óvissa og breytileiki í
starfi okkar en ég hef engar sér-
stakar áhyggjur af slíku með tilliti
til framtíðar. Það er ekkert fast í
hendi og verður aldrei þannig.“
albert@frettabladid.is
Slysavarnaskóli Íslands:
Fékk 1,1
milljón
STYRKVEITING Slysavarnaskóli
sjómanna hefur fengið um 1,1
milljón í styrk frá hljómsveit-
inni Roðlaust og beinlaust.
Hljómsveitin er að mestu
skipuð sjómönnum á frystitog-
aranum Kleifarbergi ÓF 2 frá
Ólafsfirði og er styrkupphæðin
afrakstur sölu geisladisks
hljómsveitarinnar, Brælublús,
sem kom út í nóvember á síðasta
ári.
Samkvæmt fréttatilkynningu
er yfirlýst markmið hljómsveit-
arinnar að græða ekki á tónlist-
arsköpun sinni heldur láta ágóða
renna til góðgerðarmála. ■
■ AMERÍKA
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 70.89 -0.80%
Sterlingspund 130.48 -0.66%
Dönsk króna 11.75 0.10%
Evra 87.34 0.09%
Gengisvístala krónu 122,25 0,45%
Kauphöll Íslands
Fjöldi viðskipta 285
Velta 6.436 milljónir
ICEX-15 2.663 0,31%
Mestu viðskiptin
Actavis Group hf. 366.603
Össur hf 285.186
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 277.440
Mesta hækkun
Össur hf 2,65%
Medcare Flaga 1,68%
Burðarás hf. 1,06%
Mesta lækkun
Marel hf. -1,17%
Opin Kerfi Group hf. -0,91%
Kögun hf. -0,77%
Erlendar vísitölur
DJ* 10.341,3 1,0%
Nasdaq* 2.005,0 1,3%
FTSE 4.491,6 0,8%
DAX 4.017,8 1,4%
NK50 1.417,9 0,1%
S&P* 1.134,0 1,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað nefnast þeir geitungar sem verðahvað árásargjarnastir á haustin hér á
landi?
2Um þessar mundir er þess minnst að70 ár eru síðan öflugur jarðskjálfti
olli skemmdum í kauptúni á Norðurlandi.
Við hvaða kauptún er skjálftinn kenndur?
3Nýverið kom í leitirnar bassi sembassaleikari einnar frægustu hljóm-
sveitar heims týndi á Nýja-Sjálandi fyrir
tæpum fjörutíu árum. Hvað heitir bassa-
leikarinn og í hvaða hljómsveit er hann?
Svörin eru á bls. 39
Þú færð aðgang að
þjóðskrá
á
www.lt.is
öruggar upplýsingar fyrir viðskiptalífið
TILLÖGUR HAFRÓ FYRIR FISK-
VEIÐIÁRIÐ 2004 - 2005:
Þorskur 205 þúsund tonn
Ýsa 90 þúsund tonn
Ufsi 70 þúsund tonn
Gullkarfi 35 þúsund tonn
Grálúða 15 þúsund tonn
JÓHANN SIGURJÓNSSON
Breytt umhverfisskilyrði umhverfis landið
hafa haft og munu hafa ófyrirsjáanleg áhrif
á öll vistkerfi og þar með fiskstofna.
ÞORSKHEIMILDIR SKERÐAST
Lagt er til að hámarksafli þorsks verði fjögur þúsund tonnum minni á næsta
fiskveiðiári en nú er.
ERLENDUM STJÓRNUM STEFNT
Bandarískir ríkisborgarar geta
dregið erlendar ríkisstjórnir fyrir
bandaríska dómstóla vegna þjófn-
aða og stríðsglæpa. Þetta er niður-
staða Hæstarétts Bandaríkjanna.
Öldruð kona, sem flýði ofsóknir nas-
ista, vonast nú til að fá bætur fyrir
listaverk sem var stolið frá henni.
HÖFUÐPAURAR HANDTEKNIR Tveir
helstu stjórnendur mexíkósks
fíkniefnasmyglhrings hafa verið
handteknir að sögn mexíkóskra
stjórnvalda. Gríðarleg áhersla hef-
ur verið lögð á að hafa hendur í
hári mannanna og var heitið verð-
launum að andvirði 130 milljóna
króna fyrir upplýsingar sem leiddu
til handtöku hvors um sig.
Landssamband íslenskra
útvegsmanna:
Slæm tíðindi
með þorskinn
SJÁVARÚTVEGUR „Þetta eru afar
slæm tíðindi því við höfðum búist
við aukningu í þorskheimildum
miðað við þær upplýsingar um
stofninn sem komið höfðu fram
áður,“ segir Friðrik Jón Arngríms-
son, framkvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna.
„Við reiknuðum í sjálfu sér ekki
með mikill aukningu en flestir
gerðu sér vonir um að leyft yrði að
fara í 220 þúsund tonn í þorskinum
þannig að þetta kemur sér illa fyr-
ir marga. Það má þó ekki gleyma
því að þrátt fyrir allt er stofn
þorsksins að vaxa og það er já-
kvætt og ennfremur aukast heim-
ildir í ýsu, ufsa og kolmunna og því
fögnum við að sjálfsögðu.“ ■
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
Segir fleira jákvætt en neikvætt við
skýrslu Hafrannsóknastofnunar.
Frönsk stjórnvöld:
Vilja ógilda
hjónavígslu
FRAKKLAND, AP Ríkissaksóknari
Frakklands hóf í gær málarekstur
til að fá ógilt hjónaband þeirra
Stephane Chap-
in og Bertrand
C h a r p e n t i e r.
Mennirnir tveir
voru gefnir
saman um helg-
ina þrátt fyrir
að stjórnvöld
hefðu fordæmt
f y r i r h u g a ð
brúðkaup og
hótað því að
vígslan yrði ógilt ef af henni yrði.
Lögmaður Chapin og
Charpentier sagði í gær að ef
stjórnvöld héldu málinu til streitu
myndi hann ekki unna sér hvíldar
fyrr en því væri lokið með sigri
hinna nýgiftu manna, þó það
þýddi að hann þyrfti að fara með
málið alla leið fyrir Mannrétt-
indadómstól Evrópu. ■
Miklar umhverfis-
breytingar í hafinu
Þorskur á Íslandsmiðum er magur og mjór vegna skorts á loðnu en hún
er enn ófundin og er hærri sjávarhita hér við land kennt um. Hröð
breyting á umhverfisþáttum hefur ófyrirsjáanleg áhrif á lífríkið.