Fréttablaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 10
10 8. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR
MAÐUR Á MYND
Ítalski stórtenórinn Luciano Pavarotti
ræddi við blaðamenn á blaðamannafundi
í Nikósíu á Kýpur í gær undir flennistórri
mynd af sjálfum sér. Pavarotti er staddur á
Kýpur vegna tónleikahalds.
VERÐLAUN Haukur Tómasson tón-
skáld hlýtur tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs í ár.
Haukur fær verðlaunin fyrir
tónlist við óperuna Fjórði söngur
Guðrúnar sem er fyrsta tónlist-
arleikverk hans. Verðlaunin eru
að upphæð 350 þúsund danskar
krónur sem jafngilda 4,1 milljón
íslenskra króna.
Haukur vonast til þess að
verkið verði meira spilað á
Norðurlöndunum í kjölfar verð-
launanna. „Ég held að verkið
veki alla vega meiri athygli inn-
an tónlistargeirans á Norður-
löndunum.“ Haukur segir verkið
ekki hafa verið sett á svið hér-
lendis en verið leikið á tónleik-
um. „Kannski að þetta veki
áhugann hjá einhverjum,“ segir
Haukur.
Í áliti dómnefndarinnar segir:
„Þetta er tímamótaverk, þar sem
hrá tilfinning og örlagaþrunginn
taktur leysir hljómfagrar og
innilegar aríur af hólmi.“
Haukur var viðstaddur tilnefn-
inguna í Kaupmannahöfn í gær en
hann veitir verðlaununum við-
töku á Norðurlandaráðsþinginu í
Stokkhólmi 1.- 3. október.
Sjö ár eru síðan verðlaunin
voru síðast veitt Íslendingi. Þá
komu þau í hlut Bjarkar Guð-
mundsdóttur. ■
Allir vilja til Parísar
Tæplega 90 milljónum verður varið í umfangsmestu menningarkynningu landsins sem fer fram
í Frakklandi í lok september. Á annað hundrað íslenskra lista- og vísindamanna koma fram.
LANDKYNNING „Allir vilja til París-
ar,“ sagði Sveinn Einarsson verk-
efnastjóri hálfs mánaðar menning-
arkynningar sem verður í Frakk-
landi dagana 27. september til 10.
október. Á annað hundrað lista-
manna taka þátt í viðburðum sýn-
ingarinnar Sveinn sagði marga
sækja í að kynna lönd sín í borginni
en Frakkarnir hafi heillast að því að
fá að velja sjálfir þá atburði sem
þeir teldu eiga erindi við Frakka.
Hátíðin var kynnt á fundi í Þjóð-
menningarhúsinu í gær.
Kynningin verður tvíþætt. Ann-
ars vegar verða viðburðir í mynd-
list, tónlist, bókmenntum, leiklist og
kvikmyndum og hins vegar verður
veglegasta vísindasýning sem
Íslendingar hafa efnt til í vísinda-
safninu í Grand Palais-höllinni.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra sagði
skipulagninguna ná aftur til ársins
1999 þegar Davíð Oddsson, forsæt-
isráðherra og Jacques Chirac
Frakklandsforseti skrifuðu undir
samning byggðan á menningar-
samningi sem frú Vigdís Finn-
bogadóttir stóð að árið 1984. „Að
mínu mati er þetta mjög merkileg
og metnaðarfull menningarkynn-
ing sem við komum til með að
standa fyrir,“ sagði Þorgerður.
Guðmundur Árnason, ráðuneyt-
isstjóri menntamálaráðuneytisins,
sagði að ríkissjóður verði 50 millj-
ónum til kynningarinnar og fimm-
tán íslensk fyrirtæki sem hefðu
hag af kynningunni hefðu ákveðið
að styrkja sýninguna og væri
heildarkostnaðurinn tæplega 90
milljónir króna.
Sigríður Snævarr, sendiherra í
París, hefur haft veg af fjáröfluninni.
Hún segir að með þessari veglegu
dagskrá sé verið að markaðssetja Ís-
land í Frakklandi. „Aðalatriðið er að
hún veki athygli á Íslandi og íslensk-
um hagsmunum í Frakklandi; bæði á
meðan hún stendur og til framtíðar,“
sagði hún. „Við eigum líka Frökkum
skuld að gjalda,“ bætti Sigríður við
og benti á að Frakkar hefðu verið
fyrstir þjóða til að rannsaka hafið í
kringum Ísland.
gag@frettabladid.is
Á VAKT
Öflug hergæsla er við olíuvinnslustöðvar í
Miðausturlöndum.
Olíuverð:
Lægsta frá
því í apríl
HEIMSMARKAÐIR Olíuverð lækkaði í
gær á alþjóðlegum mörkuðum. Á
Alþjóðlega eldsneytismarkaðnum
í London féll verðið um tíma niður
í 34,80 dollara á fötuna, sem er
lægsta verð frá því í lok apríl. Það
var þó komið í 35,38 dollara í lok
viðskipta.
Verðið féll einnig nokkuð á
markaði í New York í Bandaríkj-
unum og var nokkuð yfir 38 doll-
urum. Það er talsvert minna en
þeir 42,45 dollarar sem þurfti til
að kaupa hverja fötu þegar verðið
varð hæst 2. júní. ■
HAUKUR TÓMASSON
Hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs:
Íslenskt tónskáld vinnur í ár
M
YN
D
A
P
ÁSTRALÍA, AP Undir lok síðasta árs
svaraði Bandaríkjaher fyrirspurn
Rauða krossins um slæma með-
ferð fanga, sem samræmdist ekki
ákvæðum Genfarsáttmálans, því
að fangar sem teknir væru til yf-
irheyrslu hefðu ekki endilega
stöðu stríðsfanga og nytu því ekki
verndar sáttmálans.
Upplýsingar um bréfið komu
fram í áströlskum sjónvarpsþætti
sem var sendur út í gærkvöld. Í
þættinum kom fram að ástralskur
herforingi, sem starfaði hjá lög-
fræðideild Bandaríkjahers í
Bagdad, hefði tekið þátt í að
skrifa bréfið, sem var undirritað
af hershöfðingjanum Janis Karp-
inski. Karpinski hefur neitað því
að hafa haft nokkra hugmynd um
að föngum væri misþyrmt í Abu
Ghraib-fangelsinu, þar sem hún
var við stjórn. Herstjórnin og
Bandaríkjastjórn hafa einnig neit-
að vitneskju um málið.
Rauði krossinn spurðist fyrir
um aðstæður fanga sem voru tald-
ir búa yfir mikilvægum upplýs-
ingum sem Bandaríkjamönnum
lægi á að komast á snoðir um.
Í bréfinu segir meðal annars:
„Þar sem öryggi hersins krefst
þess, munu gæslufangar ekki
njóta fullrar verndar Genfarsátt-
málans.“ ■
Vísbending um að herstjórnin hafi vitað af misþyrmingum:
Herinn varði illa meðferð
LAUSNINNI FAGNAÐ
Abdul Hafidh Mekhlef og fjölskylda hans
fögnuðu mjög þegar honum var sleppt úr
Abu Ghraib-fangelsinu.
– hefur þú séð DV í dag?
Allt um
EM í
knattspyrnu
Kapphlaup um keðju:
Formlegt til-
boð í Londis
VIÐSKIPTI Kapphlaup er hafið um
bresku verslanakeðjuna Londis.
Lancelot, félag sem er í samstarfi
við KB banka í London, lagði fram
formlegt tilboð í verslanakeðjuna í
gær. Fyrir hafði írska verslanakeðj-
an Musgrave gert tilboð í alla keðj-
una. Báðir aðilar meta verðmæti
keðjunnar á um átta milljarða ís-
lenskra króna, en Lancelot býður í
40 prósenta hlut. Telja Lancelot-
menn að hagur eigendanna snúist
fyrst og fremst um það að góður
rekstrarárangur náist hjá keðjunni.
Tilboð þeirra gefi eigendunum hlut-
deild í þeim virðisauka sem yrði við
batnandi rekstur. ■
BARIST Í KONGÓ Harðir bardagar
hafa geisað milli uppreisnar-
manna og
stjórnarhers
í Kongó síð-
ustu daga.
Menn óttast
að friðarsam-
komulag sem
batt enda á margra ára borgara-
stríð í þessu þriðja stærsta ríki
Afríku kunni að vera í hættu.
FORSETI DÆMDUR Pasteur Bizim-
ungu, fyrrverandi forseti Rú-
anda, hefur verið dæmdur í
fimmtán ára fangelsi fyrir spill-
ingu og að ýta undir átök milli
þjóðernishópa. Hann varð forseti
eftir þjóðamorðin 1994 en sagði
sig úr stjórninni fyrir fjórum
árum.
■ AFRÍKA
HVAÐ FÁ FRAKKAR AÐ SJÁ?
27. sept. Íslensk og erlend verk leikin í Musée de l´Armée
28. sept. Kristinn Sigmundsson syngur í Chatelet-tónleikahöllinni
29. sept. Hrafnagaldur Óðins í Grande Halle
30. sept. Mugison, Múm, Bang Gang og fleiri í Centre Pompidou
1. okt. Mugison og fleiri endurtaka leikinn
2. okt. Málþing um tengsl íslenskra og franskra bókmennta í La Rochelle
3. okt. Ensemble contemporain leikur verk e. Hauk Tómasson o.fl. í Centre Pompidou
4. okt. Málþing um íslenskar bókmenntir í Húsi skáldanna, la Maison des Écrivains
4. og 5. okt. Popptónleikar Einars Arnar, Trabants og Apparats
5. okt. Útgáfa á sýnisbók íslenskra nútímabókmennta og hringborðsumræður
5. okt. Orgeltónleikar í Invalide-kirkjunni
6. okt. Fyrirlestur Tomasar Olrich í Senatinu í Lúxemborgarahöllinni
7. okt. Möguleikhúsið sýnir Völuspá í Maison des Cultures du Monde
8. og 9. okt. Tónleikar Schola Cantorum í St. Sulpice kirkjunni í París
10. okt. Lokatónleikar með Kammersveit Reykjavíkur í Mogador-tónleikahöllinni
Auk fjölda sýninga sem standa yfir menningarvikuna.
Þar ber hæst að nefna Vísindasýninguna í Palais de la Découverte.
Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU
Sveinn Einarsson verkefnastjóri, Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Sigríður Snævarr, sendiherra Íslands í París.