Fréttablaðið - 08.06.2004, Side 34
26 8. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ TÓNLIST
■ KVIKMYNDIR
Leik- og söngkonan JenniferLopez gerði sér lítið fyrir og
giftist elskhuga sínum, Marc
Anthony, á laugardag. Mikil leynd
var yfir brúðkaupinu enda ætti
stúlkan að hafa lært þónokkuð af
fjölmiðlafárinu sem myndaðist
þegar hún ætlaði að giftast Ben
Affleck í fyrra.
Lopez virðist ekki vera lengi að
finna ástina því aðeins eru liðnir
sex mánuðir frá því að hún sleit
samvistum við Affleck.
Meira að segja veislugestir
fjörutíu vissu ekki hvað væri í
vændum. Þeim var boðið í partí í
glæsivillu Lopez í Beverly Hills
án þess að nokkurt tilefni væri
gefið. Þegar þeir komu þangað
var búið að skreyta allt með blóm-
um og strengjakvartett hátíðlega
við leik á Árshátíðunum fjórum
eftir Vivaldi.
Pabbi Lopez, David, leiddi hana
upp að altarinu í þriðja skiptið.
Árið 1997 giftist hún þjóninum
Ojani Noa og svo dansaranum
Chris Judd árið 2001. Eftir að það
samband rann í sandinn trúlofað-
ist hún leikaranum Ben Affleck
sem hún kynntist við tökur mynd-
arinnar Gigli.
Orðrómar eru um að Lopez sé
ófrísk en talsmenn hennar vilja
ekki staðfesta það. Eiginmaður
Lopez, söngvarinn Marc Anthony,
skildi við fyrrum eiginkonu sína,
fyrrum Ungfrú alheim Dayanara
Torres, fyrr í vikunni. Saman eiga
þau þrjú börn saman. ■
Lopez giftist
Marc Anthony
MARC ANTHONY
Skildi við eiginkonu sína í vikunni, og
giftist svo Lopez á laugardagskvöldið.
JENNIFER LOPEZ
Virðist aldrei eiga í vandræðum með að finna
ástina á nýjan leik, eftir að hún glatar henni.
■ FÓLK
KEVIN SMITH
Leikstjórinn var frjálslegur til fara á frum-
sýningu myndar sinnar Jersey Girl í
London á dögunum. Með honum er hin
níu ára Raquel Castro sem leikur
í myndinni.
Laugavegi 26 • Kringlunni • Smáralind
Mixið er byrjað í öllum
verslunum Skífunnar!
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI.
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN.
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR.
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU.
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR.
Fást í flestum byggingavöru-
verslunum landsins.
590.-
bolur
750.-
Framleiðendur söngleikja-myndarinnar The Producers
hafa ákveðið að bæta á rasskinn-
ar aðalleikkonunn-
ar Nicole Kidman
fyrir tökur mynd-
arinnar. Það er
mikið atriði fyrir
söguþráðinn að
rass aðalpersón-
unnar sé sem fyllt-
astur og þykir aft-
urendi Kidman
frekar rýr.
Nick Cave ætlar að gefa útnýja plötu í september. Hún
heitir því und-
arlega nafni
Abattoir Blues /
The Lyre Of
Orpheus og
verður tvöföld.
Þetta verður
þrettánda hljóð-
versskífa Cave
og hljómsveitar hans The Bad
Seeds. Platan var hljóðrituð í
París í vor.
Hljómsveitin Creed hefur sentút dánartilkynningu sína.
Þrír af liðsmönnum sveitarinnar
hafa þegar stofnað aðra sveit, án
söngvarans Scott Stapp. Trommu-
leikari sveitarinnar vildi þó ekki
kenna honum né neinum öðrum
um samstarfsslitin og sagði
ástæðuna bara vera að það hafi
ekki verið lengur skemmtilegt að
starfa í sveitinni.
Radcliffe aldrei verið hraustari
Ritstjóri aðdáendasíðunnardanradcliffe.com hefur
borið til baka sögusagnir um að
Daniel Radcliffe, sem leikur
galdrastrákinn Harry Potter,
hafi tekið inn of stóran skammt
af heróíni.
Þvert á móti þá segir hún að
Radcliffe sé við mjög góða
heilsu og hafi verið heima hjá
sér að læra undir próf sem fara
átti fram daginn eftir þegar
orðrómurinn braust út á netinu.
Bætti hún því við að leikarinn,
sem er 15 ára, geti ekki verið
hraustari og hamingjusamari.
Fordæmdi hún jafnframt þá
sem sögðu fréttirnar um
Radcliffe og sagði að því miður
hefðu þeir ekkert betra við tíma
sinn að gera. Sumir miðlar hafi
reyndar tekið fram að um grín-
frétt hafi verið að ræða en engu
að síður hafi fréttaflutningurinn
verið með eindæmum smekk-
laus.
Radcliffe lýsti á dögunum
yfir vanþóknun sinni á vímu-
efnanotkun þegar hann var
spurður út í uppáhaldshljóm-
sveit sína, The Libertines.
Hann sagðist ekki vilja
enda eins og söngvari
sveitarinnar, Pete Doher-
ty, sem hefur átt við
eiturlyfjavandamál að
stríða. „Það væri gaman
að spila í rokkhljóm-
sveit,“ sagði Radcliffe.
„Vegna vandræðanna sem
Pete Doherty hefur lent í
undanfarið myndi ég samt
segja að ég væri í betri mál-
um um þessar mundir. Ég vil
ekki enda í meðferð eins og
hann.“ ■
Fantasia Barrino og
Clarkson í samstarf?
Söngkonan Kelly Clarkson, semvann fyrstu Idol-keppnina í
Bandaríkjunum, hefur lýst yfir
áhuga á að fara í tónleikaferð með
nýjasta sigurvegaranum, Fantasia
Barrino.
„Ég spjallaði við Fantasiu og
við töluðum um að það væri gam-
an að fara í tónleikaferð saman
vegna þess að við höfum mismun-
andi áherslur en höfum samt báð-
ar gaman af sálartónlist,“ sagði
Clarkson eftir tónleika sem hún
hélt með Fantasia og Idol-stjörn-
unum Ruben Studdard og Diana
DeGarmo. „Það væri líka gaman
að syngja með henni inn á plötu.
Hún hefur svo mikinn kraft og til-
finningu í rödd sinni. Röddin er
mjög falleg,“ bætti hún við.
Ekki er líklegt að af sam-
starfi þeirra verði í bráð því
bæði Clarkson og Fantasia ætla
að taka upp sitt hvora plötuna á
næstu mánuðum. Auk þess er
Fantasia á leið í tónleikaferð í
sumar til að fylgja eftir sigri
sínum í Idol. ■
■ FÓLK Í FRÉTTUM
FANTASIA
Upptekin um þessar mundir við að fylgja
eftir sigri sínum í Idol-þáttunum. Ný plata
er á leiðinni og tónleikaferð er fyrirhuguð
í sumar.
DANIEL RADCLIFFE
Hefur það mjög gott þessa
dagana endar hefur myndin
Harry Potter og fanginn
frá Azkaban fengið
frábærar móttökur.