Fréttablaðið - 08.06.2004, Side 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 133 stk.
Keypt & selt 27 stk.
Þjónusta 49 stk.
Heilsa 4 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 6 stk.
Húsnæði 23 stk.
Atvinna 24 stk.
Tilkynningar 1 stk.
Grænmetisæta eða ekki
BLS. 3
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 8. júní,
160. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.06 13.27 23.49
Akureyri 2.06 13.11 24.21
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Ég er alveg massamikið í ræktinni þessa
dagana,“ segir Karl Lúðvíksson, betur
þekktur sem Kalli Lú, útvarpsmaður á FM
95,7. „Ég er búinn að vera í stífu prógrammi
í átta vikur, þar af þrjár vikur með einka-
þjálfara sem er félagi minn og svo fimm vik-
ur upp á eigin spýtur. Nú æfi ég bara einn og
reyna að gera allt; lyfta, brenna, squash,
hlaupa og bara hvað sem er,“ segir Kalli,
sem hefur verið mjög duglegur að passa upp
á mataræðið í þessu rosalega heilsuátaki
sínu. „Ég hef forðast að borða nammi, hvítt
brauð, kökur, allan bakaríismat, gos og
borða ekki djúpsteiktan mat,“ segir Kalli,
sem hefur samt einn nammidag í viku og það
eru fimmtudagar. Samt segist hann ekkert
úða í sig af nammi og óhollustu loksins þeg-
ar sá dagur kemur. „Síðasta fimmtudag fékk
ég mér til dæmis bara einn poka af pipar-
brjóstsykri og tvær bananastangir. Það var
nú allt og sumt,“ segir Kalli ,sem var að eig-
in sögn algjör nammigrís hér áður fyrr.
„Ég fór í átak því ég vildi lyfta bumbunni
upp aðeins og losna hreinlega við hana. Það
hefur gengið mjög vel og nú er bara að taka
sumarið líka með stæl,“ segir Kalli og bætir
við að hreyfingin hafi gert honum gott. „Ég
er nú óvenju brosmildur maður að eðlisfari
en vissulega hefur aukin hreyfing sett sitt
mark á minn lífsstíl. Ég sef mun betur,
vakna betur, hef meira úthald og er léttari á
mér,“ segir Kalli, sem fer yfirleitt á æfingu
fimm til sex sinnum í viku og tekur heilsu-
átakið aldeilis með trompi.
lilja@frettabladid.is
Stíft prógram og heilbrigt mataræði:
Vildi lyfta bumbunni
og losna við hana
heilsa@frettabladid.is
Brjóstaminnkun getur dregið
úr líkum á brjóstakrabba. Þetta er
niðurstaða rannsóknar sem greint
var frá í tímaritinu Plastic and
Reconstructive Surgery. Niður-
staða rannsóknarinnar er að
brjóstaminnkun minnki líkur á
brjóstakrabbameini hjá konum
sem eru í áhættuhópi. 32.000
konur tóku þátt í rannsóknini.
Áður hefur verið sýnt fram á að
hægt er að draga úr líkum um
90% á brjóstakrabba hjá konum í
áhættuhópi með því að fjalægja
brjóst. Það þykir þó alls ekki góð-
ur kostur og því er bent á hina
leiðina, að minnka brjóstin.
Frumvarp um bann við reyking-
ar á veitingastöðum,
sambærilegt
því sem Írar
og Norð-
menn
hafa leitt í
lög verður
undirbúið í
heilbrigðis-
ráðuneytinu í sumar
og er stefnt að því að leggja það
fram á næsta þingi. Þetta kom
fram í ræðu Jóns Kristjánssonar
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra á málþingi um reykingar
kvenna og karla sem haldið var á
Grand hóteli í Reykjavík fyrir
helgi. Þetta kemur fram á vef
heilbrigðisráðuneytisins.
Tæknifrjóvgun verður einka-
rekin eigi síðar en 1. júlí. Jón
Kristjánsson, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra hefur veitt
læknunum Guðmundi Arasyni og
Þórði Óskarssyni leyfi til að starf-
rækja einkarekna heilbrigðis-
stofnun þar sem framkvæmdar
verða tæknifrjóvganir. Leyfið er
háð þremur skilyrðum og verður
rekstrarleyfið þá fyrst gefið út að
skilyrðin séu uppfyllt. Ráð-
herra flýtti afgreiðslu
málsins til að eyða
óvissunni sem skapast
hefur um tæknifrjóvg-
anir og væntir þess,
að unnt verði að
ganga frá þjónustusamn-
ingi um starfsemi einkarek-
innar tæknifrjóvgunar sem allra
fyrst. Þetta kemur fram á vef heil-
brigðisráðuneytisins.
Karl Lúðvíksson hefur verið mjög duglegur í ræktinni og passar mataræðið mjög vel.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR HEILSUNA VW Passat V5 04/00. Ekinn 63.000 km.
2300 cc. Sjálfskiptur. Ásett verð
1.770.000 kr. 1.650.000 kr. 100 % lán
í 48 mán., meðalgr., mán. 45.125 kr.
Nissan 350Z árg. 2003 ek. 8 þús. sj.sk.
3,5 vél, 18”álf., leður, allt rafdrifið o.fl.
o.fl. Glæsilegur sportbíll. Verð 5.150
þús. Ath. ódýr.
Loksins alvöru garðhúsgögn í boði á Ís-
landi. Landsins mesta úrval. Viðarkó
Dalveg 28, Kópavogi. Sími 517 8509.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.