Fréttablaðið - 08.06.2004, Page 22
Til að viðhalda unglegu útliti er til dæmis hægt að
borða vel og hreyfa sig í að minnsta kosti þrjátíu mínútur á
dag. Margt er hægt að gera eins og dansa, fara í göngutúra,
stunda kynlíf eða hvað það sem þér finnst gaman.
Fæst í apótekum, Heilsuhúsinu,
Nóatúni, Íslenskum markaði,
Blómavali, Heilsuhorninu Akureyri
• Styrkjandi
• Mýkjandi
• Hollt sælgæti
Góðar sykurlausar hálstöflur
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
- þar sem þú getur treyst á gæðin -
Lífrænt ræktaðar vörur
CAMBRIDGE KÚRINN.
Nýtt á Íslandi!
Bæði til megrunar og uppbyggingar.
Hefur öll vítamín að geyma sem
líkaminn þarfnast.
Verndar innri líffæri og vöðva.
Viltu vita meira ?
Heimsæktu þá heimasíðu okkar
www.vaxtamotun.is eða í síma 894 1505 Karolína.
eða 894 1507 Þóranna
Björn Finnsson er á sextugsaldri og fer allra sinna
ferða á reiðhjóli. Hann á ekki bíl og hefur ferðast
um á reiðhjóli síðastliðin tuttugu ár. „Ég hef átt bíl
í eitt sumar yfir alla ævina. Mér finnst hættulegt,
óskynsamlegt, óhollt og dýrt að eiga bíl og því kýs
ég reiðhjólið frekar. Á veturnar set ég nagladekkin
undir hjólið því í klakanum og ísingunni eru þau
alveg nauðsynleg. Með þessu og góðum ljósum sem
maður setur á hjólið á haustin er maður bara í mjög
góðum málum,“ segir hann.
Björn er meðlimur í Fjallahjólaklúbbnum
íslenska og hefur síðastliðin níu sumur skipulagt
hjólreiðaferðir fyrir klúbbinn. „Ég byrjaði að
skipuleggja þessar ferðir sjálfur en flutti þær svo
inn í Fjallahjólaklúbbinn nokkrum árum eftir að ég
byrjaði á þessu. Þar hafa þær verið síðan,“ segir
hann. Björn hefur verið slæmur í hné upp á síð-
kastið og hefur því ekki getað verið virkur í starfi
klúbbsins. Orsök hnémeiðslanna segir hann vera
vegna álags eftir miklar gönguferðir en hann hefur
í gegnum tíðina starfað töluvert sem fararstjóri
þeirra. „Það er einmitt gott að hjóla þegar maður er
slæmur í hné því þá hvílir þunginn ekki á hnjánum.
Þess vegna nota ég hjólið og að sjálfsögðu alltaf
hjálm,“ segir hann. Björn verður töluvert var við að
fólk á hans aldri noti reiðhjól en fari minna en
yngra fólkið í skipulagðar ferðir eins og til dæmis
með fjallahjólaklúbbnum. Hann mælir eindregið
með hjólreiðunum og segir aldur ekki skipta neinu
máli í því sambandi. ■
Fer allra sinna ferða á hjóli
„Ég vel hjólið fram yfir bílinn því mér finnst afar óskynsamlegt og óhollt að nota bíl,“ segir Björn
Máttur ætihvannarinnar var vel þekktur á
söguöld þegar eiginleikar hennar voru
meðal annars taldir auka bardagahug og
frjósemi. Seinni tíma rannsóknir Sig-
mundar Guðbjarnarsonar prófessors
benda til þess að neysla á hvönn auki
orku og styrki ónæmiskerfið, stilli kvíða,
auki kynhvöt og geti jafnvel heft vöxt
krabbameinsæxla. Nú hefur SagaMedica
hafið markaðsátak til að kynna jurtaveig-
ina arctic angelica í Noregi en Íslending-
um er hún að góðu kunn síðan hún kom
á markað hérlendis árið 2002. Ætihvönn-
in sem vex á norðurslóðum virðist vera
mun öflugri en frænkur hennar í suðri og
því er lögð áhersla á norðlægan uppruna
arctic angelica í markaðssetningu erlend-
is og hún oft kölluð ginseng norðursins.
Ætihvönn er ekki bara lækningajurt held-
ur er hún notuð sem bragðefni í ýmsar
áfengistegundir, til að krydda kjöt og fisk
og í ilmvatnsframleiðslu.
[ ARCTIC ANGELICA KYNNT UM ALLAN HEIM ]
Ginseng
norðursins
Ætihvönnin heitir angelica á latínu í höfuðið á Rafael erkiengli.
Hér sést heimskautahvönnin á Dyrhólaey.