Fréttablaðið - 08.06.2004, Qupperneq 23
3ÞRIÐJUDAGUR 8. júní 2004
Breytingarskeiðið er ekki sjúkdómur. Það er náttúrulegt ferli í ævi kvenna.
Breytingarskeiðinu geta hins vegar fylgt óþægindi. Úr náttúrunni má fá mild en afar
virk efni við þessum óþægindum. Í Kvennablóma eru:
• Soja ísóflavonóíðar, stundum nefndir jurtaestrógen
• Dong Quai, þekkt sem lækningajurt kvenna
• Villi-yam inniheldur jurtaprógesteronlík hormón
• Náttljósarolía til betri nýtingar kalks
• Drottningarhunang inniheldur fjölþætt bætiefni fyrir konur
• Kalk er afar nauðsynlegt steinefni fyrir beinin
• Magnesíum viðheldur ásamt kalki sterkum beinum
• E-Vítamín er andoxunarefni og nauðsynlegt fyrir margháttaða starfsemi líkamans
• Vítamín B-6 er m.a. nauðsynlegt til myndunar prótína, hormóna og taugaboðefna
Kvennablómi er einstök samsetning þessara náttúruefna. Berið innihald Kvennablóma
saman við innihald annara vörutegunda sem ætlaðar eru konum á þessu skeiði
ævinnar. Einungis Kvennablómi inniheldur ofangreind bætiefni öll í einni töflu.
ENGIN SKAÐLEG HORMÓN
Fyrir konur á breytingarskeiði
Valin náttúruleg bætiefni og jurtir fyrir konur á breytingarskeiði
Oft hefur því verið haldið fram að fæða
grænmetisæta sé ekki eins og holl og
þeirra sem borða kjöt og að græn-
metisætur séu að missa af því besta
sem matur hafi upp á að bjóða og séu
oft frekar úrillar. En síðustu ár hefur
grænmetisætum fjölgað og grænmetis-
fæði orðið fjölbreyttara og því hefur það
komið í ljós að grænmetisætum líkar
fæði sitt og jafnvel fylgir grænmetisfæð-
inu kostir sem geta haft jákvæð áhrif á
heilsuna. En hvort er betra að vera
grænmetisæta eða kjötæta og hverjir
eru kostir og gallar hvers fæðis fyrir sig?
Grænmetisfæði - kostir
minna af mettuðum fitusýrum
meira af trefjum
minna af salti
stærri skammtar af ávöxtum og græn-
meti
fleiri samsett kolvetni og minna af
óbrotnum sykri
Einnig getur grænmetisfæði minnkað
hættu á krabbameini.
Grænmetisfæði - gallar
járnskortur
skortur á B12 vítamíni og kalsíum
skortur á D-vítamíni
skortur á amínósýrum og próteini
Kjötfæði - kostir
mikið af próteini
mikið af járni
mikið af B-vítamínum
mikið af kaloríum
Kjötfæði - gallar
mikið af mettuðum fitusýrum – leiðir
til hás kólesterólmagns
mögulega aukin hætta á krabbameini
lítið af trefjum
mikið af salti
Hvort er þá heilsusamlegra? Vel samsett
mataræði af hvoru tveggja er mjög hollt
og gott er líka að blanda saman þessum
tveimur pólum.
Grænmetisætur þurfa þó að gæta þess
að taka inn nóg af vítamínum og járni
og kjötætur að borða ekki kjöt í hvert
mál og fá sér meira af grænmeti með
máltíðum og mikið af ávöxtum á milli
mála.
[ GRÆNMETISÆTA EÐA EKKI ]
Kostir og gallar
Grænmeti er ríkt af trefjum.
og kjöt af próteini.
Mörg vitum við að einhverjar
breytingar þurfa að gerast í lífi
okkar. Við erum jafnvel búin að
vita það lengi. Við segjum í sífellu
við okkur sjálf: Af hverju haga ég
mér svona. Ég ætti að vita betur. Í
mörgum tilfellum snýr þessi
hugsun að fíkn, matarvenjum,
hreyfingarleysi eða vanafestu af
öðru tagi. Til þess að breytingar
eigi sér stað er ekki nóg að hugsa
um þær. Við þurfum að verða fyr-
ir tilfinningalegum ónotum eða
finna mjög aðlaðandi hvata til að
framkalla breytingar. Við þurfum
að gera eitthvað í málinu. Ekki
dugar að auka stöðugt umburðar-
lyndi gagnvart sjálfum sér og
segja: Þetta er nú ekki svo slæmt.
Aðeins þegar að við erum hreyfð
tilfinningalega getum við snúið
baki við hegðun sem okkur er
ekki að skapi. Að þessu leyti getur
þjáning, óhamingja og ótti orðið
ansi sterkir hvatar að breyting-
um.
Þeir sem horfast í augu við lífs-
hættulega sjúkdóma gera oft
ótrúlegar breytingar á eigin lífi.
Miðjumoðið gengur ekki. Við
þurfum annaðhvort að fá NÓG
eða fara í Pollýönnuleik og verða
yfirmáta bjartsýn til að stórkost-
legar breytingar geti átt sér stað.
Það er ekki nóg að segja: Ég ætti
að...
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI
OG RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM
HEILSU LÍKAMA OG SÁLAR.
Ég ætti að vita betur...
gbergmann@gbergmann.is.
- mestlesna blað landsins
Á FIMMTUDÖGUM
hjálpar þér að gera góð kaup
auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Hjarta- og æðasjúkdómar:
Örlagarík mistök á sviði rannsókna
Líkur eru á því að fljótfærnislegar ráðleggingarnokkurra sérfræðinga í Bandaríkjunum á síðustu
öld hafi verið einhver örlagaríkustu mistök sem gerð
hafi verið í manneldismálum á sviði hjarta- og æða-
sjúkdóma. Þetta kemur fram í grein í nýútkomnu
tímariti Heilsuhringsins. Greinin er þýdd úr banda-
ríska tímaritinu „Townsend Letter for Doctors and
Patients“ og er höfundur hennar Wayne Martin líf-
efnafræðingur. Ævar Jóhannesson, fyrrverandi
starfsmaður Raunvísindastofnunar Háskóla
Íslands, þýddi greinina. Hann segir Wayne Martin
þekktan í Bandaríkjunum fyrir gagnrýni sína á ríkj-
andi skoðanir í manneldismálum. „Martin gagnrýnir
harkalega þær aðferðir og kenningar sem sérfræð-
ingar þar settu fram um 1955 í sambandi við hjarta-
og æðasjúkdóma. Hann telur kenningarnar hafi
valdið miklum skaða og segir að áralangar ráðlegg-
ingar um mataræði séu meginorsök kransæða-
sjúkdóma,“ segir Ævar.
Um 1955 kom upp sú kenning í Bandaríkjunum að
mettuð fita, smjör og tólg væri slæm fita sem væri
orsök mikillar fjölgunar dauðsfalla vegna hjarta-
áfalla. Hins vegar væri fjölómettuð fita, holl fita,
sem verndi gegn hjartaáföllum. „Martin telur þetta
alrangt og segir þessar kenningar sérfræðinganna
ekki hafa verið reistar á viðeigandi rökum. Hann
segir þær settar fram af auðhringjum í þágu eigin
hagsmuna. Það hafi verið gert með því að gagnrýna
landbúnaðarvörur og halda því fram hversu óhollar
og beinlínis hættulegar heilsunni þær væru. Síðan
hefur almenningur tekið þessar kenningar trúan-
legar án þess að viðunandi sannanir hafi komið fram
um að svo sé,“ segir hann.
Ævar bendir á að ekki hafi verulega farið að bera
á fjölgun kransæðasjúkdóma fyrr en í kringum
stríðsárin. „Fyrsta kransæðatilfellið sem er fylli-
lega sannað að hafi komið fram hér á landi var í
kringum 1930 og hefur þróunin hér á landi verið
svipuð og í Bandaríkjunum. Hér á landi hefur smjör
verið á borðum Íslendinga í þúsundir ára og enn
hefur ekkert bent til þess að það hafi skaðað fólk
neitt,“ segir Ævar. ■
Mettuð fita
Í grein Wayne Martin kemur fram að smjör og tólg sé ekki eins óhollt
og talið er.
Ævar Jóhannesson
„Martin telur kenningar um óhollustu mettaðrar fitu hafa valdið
miklum skaða á sviði hjarta- og kransæðasjúkdóma,“ segir Ævar.