Fréttablaðið - 08.06.2004, Síða 37

Fréttablaðið - 08.06.2004, Síða 37
29ÞRIÐJUDAGUR 8. júní 2004 Mitre Academy Legghlífar Kr. 990.- Án/ökklahlífar Markmannshanskar fyrir krakka kr. 990.- Mitre MS2 Legghlífar Kr. 1790.- m/ökklahlíf Mitre Hydro Frá kr. 3.990.- Mitre Superfit Æfingahanskar Kr. 3.990.- Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36, Reykjavík, sími 588 1560 www.joiutherji.is sendum í póstkröfu Mitre GRT Pro Keppnishanskar Kr. 5.990.- Við eigum gott úrval af HM vörum Fylkismenn sluppu Fylkir hélt toppsætinu eftir 1-1 jafntefli gegn Fram. Varnarmaðurinn Atli Sveinn Þórarinsson skoraði sitt þriðja mark fyrir KA í sumar. FÓTBOLTI Fylkismenn eru áfram á toppnum í Landsbankadeild karla eftir leiki gærkvöldsins en Árbæj- arliðið gerði þá jafntefli við Fram í Laugardalnum. KA náði hinsvegar í fyrsta stig sitt á heimavelli í 1–1 jafntefli gegn Grindavík. Það var Ólafur Stígsson sem kom Fylkismönnum yfir í lok fyrri hálfleiks sem var mjög dapur en í seinni hálfleik lifnaði yfir leiknum og þá aðallega yfir Frömurum sem voru óheppnir að tryggja sér ekki öll þrjú stigin. Það var aðeins Andri Fannar Ottósson, sem kom inn á sem vara- maður í seinni hálfleik, sem fann leiðina í markið en hann var fyrsti maðurinn til að skora framhjá Bjarna Þórði Halldórssyni í Fylkismarkinu í 332 mínútur. Fylkismenn geta þakkað fyrir að fara með stig úr Laugardalnum í gær því hinn frábæri markvörður þeirra Bjarni varði tvisvar úr algjörum dauðafærum á lokamínútunum. Framarar voru arfaslakir í fyrri hálfleik rétt eins og Fylkismenn en í þeim seinni sýndu þeir meira af þeirri góðu spila- mennsku sem þeir hófu Íslandsmótið á gegn Víkingum á dögunum. Framarinn Eggert Stefánsson var svekktur með að hafa ekki fengið þrjú stig. „Við bættum okkur mikið í seinni hálfleik og gerðum það sem við áttum að gera frá fyrstu mínútu; að spila okkar bolta. Nú verðum við bara að byggja okkur upp út frá þessum síðari hálfleik og fara að spila heilan leik á sama hátt.“ Enn skorar Atli fyrir KA KA-maðurinn Atli Sveinn Þórarinsson er marksæknasti varnarmaður deildarinnar en hann skoraði sitt þriðja mark í sumar er hann tryggði KA-mönnum fyrsta stigið á heimavelli í sumar í 1–1 jafntefli KA og Grindavíkur á Akureyri í gær. Atli hefur skorað 3 af 4 mörkum norðanmanna í deildinni. Grétar Hjartarson kom Grindvíkingum yfir í upphafi leiks með enn einu marki sínu fyrir utan vítateig en þetta var þriðja mark hans af löngu færi í sumar og er hann nú markahæstur í deildinni með fjögur mörk. KA-menn voru manni fleiri á lokamínútunum en tókst ekki að tryggja sér sigurinn. ■ ÞORBJÖRN ATLI Í BARÁTTU GEGN SÍNUM GÖMLU FÉLÖGUM Í FRAM Þorbjörn Atli Sveinsson lék í gær í fyrsta sinn með Fylki gegn sínum gömlu félögum í Fram. Hann var óheppinn með að skora ekki en hann átti meðal annars skot í stöngina í seinni hálfleik. Hér glímir hann við Andrés Jónsson. KA–GRINDAVÍK 1–1 0–1 Grétar Hjartarson 6. 1–1 Atli Sveinn Þórarinsson 62. DÓMARI Magnús Þórisson Sæmilegur BESTUR Á VELLINUM Atli Sveinn Þórarinsson KA TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–8 (6–5) Horn 2–5 Aukaspyrnur fengnar 19–20 Rangstöður 2–2 Spjöld (rauð) 2–3 (0–1) MJÖG GÓÐIR Atli Sveinn Þórarinsson KA Sinisa Valdimar Kekic Grindavík GÓÐIR Dean Martin KA Ronni Hartvig KA Jóhann Þórhallsson KA Sigurður Skúli Eyjólfsson KA Albert Sævarsson Grindavík Ray Anthony Jónsson Grindavík Óðinn Árnason Grindavík Grétar Hjartarson Grindavík ■ Óðinn Árnason hjá Grindavík fékk tvö gul spjöld í leiknum fyrir það að brjóta á æskuvini sínum Jóhanni Þórhallssyni hjá KA en þeir léku báðir með Þór áður en þeir skiptu í Grindavík og KA. ■ ÞAÐ SEM SKIPTI MÁLI FH–ÍBV 2–1 1–0 Tommy Nielsen, víti 7. 1–1 Einar Þór Daníelsson 35. 2–1 Guðmundur Sævarsson 81. DÓMARI Egill Már Markússon Slakur BESTUR Á VELLINUM Einar Þór Daníelsson ÍBV TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 17–11 (7–8) Horn 4–5 Aukaspyrnur fengnar 14–16 Rangstöður 3–2 Spjöld (rauð) 3–4 (0–1) GÓÐIR Einar Þór Daníelsson ÍBV Birkir Kristinsson ÍBV Matt Garner ÍBV Bjarnólfur Lárusson ÍBV Bjarni Geir Viðarsson ÍBV Daði Lárusson FH Baldur Bett FH Heimir Guðjónsson FH ■ ÞAÐ SEM SKIPTI MÁLI KEFLAVÍK–VÍKINGUR 1–0 1–0 Þórarinn Kristjánsson 73. DÓMARI Gylfi Þór Orrason Góður BESTUR Á VELLINUM Grétar Sigurðsson Víkingi TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–14 (3–7) Horn 7–4 Aukaspyrnur fengnar 19–18 Rangstöður 1–2 Spjöld (rauð) 0–1 (0–0) MJÖG GÓÐIR Grétar Sigurðsson Víkingi GÓÐIR Haraldur Guðmundsson Keflavík Ólafur Gottkskálsson Keflavík Höskuldur Eiríksson Víkingi Sölvi Geir Ottesen Víkingi Martin Trancík Víkingi ■ ÞAÐ SEM SKIPTI MÁLI FRAM–FYLKIR 1–1 0–1 Ólafur Ingi Stígsson 42. 1–1 Andri Fannar Ottósson 62. DÓMARI Gísli Hlynur Jóhannsson Í meðallagi BESTUR Á VELLINUM Andri Fannar Ottósson Fram TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–11 (4–5) Horn 3–5 Aukaspyrnur fengnar 20–14 Rangstöður 2–4 Spjöld (rauð) 2–3 (0–0) GÓÐIR Andri Fannar Ottósson Fram Ragnar Árnason Fram Eggert Stefánsson Fram Ríkharður Daðason Fram Bjarni Þórður Halldórsson Fylki Kristján Valdimarsson Fylki Helgi Valur Daníelsson Fylki ■ ÞAÐ SEM SKIPTI MÁLI LANDSBANKADEILD KARLA Fylkir 5 3 2 0 7–2 11 Keflavík 5 3 1 1 7–5 10 ÍA 4 2 2 0 5–2 8 FH 5 2 2 1 5–4 8 ÍBV 5 1 3 1 6–6 6 Grindavík 5 1 3 1 5–6 6 Fram 5 1 2 2 7–7 5 KR 4 1 1 2 5–7 4 KA 5 1 1 3 4–6 4 Víkingur 5 0 1 4 2–8 1 MARKAHÆSTIR Grétar Ólafur Hjartarson, Grindavík 4 Atli Sveinn Þórarinsson, KA 3 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV 3 Björgólfur Takefusa, Fylki 2 Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Fram 2 Sævar Þór Gíslason, Fylki 2 Þorbjörn Atli Sveinsson, Fylki 2 Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV 2 Arnar Gunnlaugsson, KR 2 Ríkharður Daðason, Fram 2 Andri Fannar Ottóssonn, Fram 2 NÆSTU LEIKIR KR–ÍA Mið. 9. júní 20.00 Fylkir–Víkingur Þri. 15. júní 19.15 ÍBV–Keflavík Þri. 15. júní 19.15 Grindavík–KR Mið. 16. júní 19.15 Fram–KA Mið. 16. júní 19.15 ÍA–FH Mið. 16. júní 20.00 ■ STAÐAN Í DEILDINNI Haukar missa leikmann í handboltanum: Pauzuolis til Þýskalands HANDBOLTI Litháinn Robertas Pauzuolis, sem leikið hefur með Haukum, gerði um helgina samn- ing við þýska úrvalsdeildarfélag- ið Wilhelmshavener sem íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Gylfason leikur með. Pauzuolis gerði eins árs samning við félagið með möguleika á framlengingu eftir næsta tímabil. Þjálfari Wilhelmshavener, Michael Biegler, var ánægður með nýja liðsstyrkinn. „Það er mikilvægt að hafa bæði unga og reynda leikmenn og ég er bjart- sýnn á að Robertas eigi eftir að reynast okkur vel.“ Þetta er að sjálfsögðu mikið áfall fyrir Íslandsmeistara Hauka enda hefur Pauzuolis leikið lykil- hlutverk hjá liðinu undanfarin tvö Íslandsmeistaraár. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N LOKSINS SIGUR HJÁ FH-INGUM Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH-inga, sést hér í baráttu við Eyjamanninn Magnús Már Lúðvíksson. FH vann loksins sigur eftir þrjá leiki í röð án þess að ná að vinna. Landsbankadeild karla í gær: Tap hjá ÍBV í metleik Birkis FÓTBOLTI Guðmundur Sævarsson tryggði FH-ingum langþráðan sigur gegn ÍBV í Kaplakrika í gær en Hafnarfjarðarliðið hafði leikið þrjá síðustu leiki á undan án þess að vinna. FH vann leikinn 2–1 eftir að hafa verið manni fleiri síðasta klukkutímann. Englendingurinn Ian Jeffs fékk beint rautt spjald í annað sinn í sumar á 30. mínútu þegar hann braut mjög illa á Jóni Þorgrími Stefánssyni. Eyjamenn voru því komnir í sömu stöðu og gegn KR í leiknum, manni færri þegar meira en 60 mínútur voru eftir af leiknum. Eyjamenn börðust vel, líkt og gegn KR, en urðu að lokum að sætta sig við fyrsta tapleik sinn í sumar. Birkir Kristinsson, mark- vörður og fyrirliði ÍBV, bætti leik- jamet sitt og Gunnars Oddssonar þegar hann lék sinn 295. leik í efstu deild. FH-ingar voru frekar daprir, sköpuðu sér fá færi en þolinmæði liðsins borgaði sig í restina. Mark Guðmundar kom eftir þunga sókn FH-inga tíu mínútum fyrir leik- slok, skot hans hafði viðkomu í varnarmanni og Birkir átti enga möguleika. Úrsiltin voru sanngjörn þegar á heildina er litið en Eyjamenn áttu þó kannski skilið stig, ekki síst vegna þess að þeir lögðu á sig gríðarlega vinnu allan tímann. ■ Keflvíkingar unnu Víkinga í skelfilega slökum leik: Þórarinn enn á réttum stað FÓTBOLTI Þórarinn Kristjánsson, var bjargvættur Keflvíkinga og ekki í fyrsta skiptið þegar hann tryggði liði sínu 1–0 sigur í uppgjöri nýliðanna í Keflavík í gær. Markið skoraði hann af stutt- u færi á 73. mínútu eftir langt innkast og skot frá Sreten Djurovic. Leikurinn var skelfilega lé- legur og einn sá lélegasti leikur sem boðið hefur verið upp á í deildinni til þessa. Víkingar voru betri aðilinn eins og oft í leikjum sínum í sumar og áttu að minnsta kosti skilið eitt stig en lánleysi þeirra endurspeglar stöðu þeirra á botni deildarinnar með aðeins 1 stig í húsi af 15 mögulegum. Stefán Gíslason, miðju- maðurinn sterki í liði Keflavíkur, var sáttur með stigin þrjú þegar Fréttablaðið ræddi við hann eftir leikinn. „Það verður að viðurkennast að þetta var skelfilega slakt hjá okkur í dag. Það er erfitt að spila á móti liði sem kemur ekki inn á völlinn til að spila fótbolta og því miður duttum við niður á sama plan og þeir. Í leik eins og þessum eru það hinsvegar stigin þrjú sem skipta máli. Þau eru í höfn hjá okkur og því getum við ekki verið annað en sáttir,“ sagði Stefán eftir leikinn en Keflvíkingar eru eftir nú aðeins stigi á eftir toppliði Fylkismanna. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.