Fréttablaðið - 08.06.2004, Page 38
30 8. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Fær aldrei kvartanir
Ólafur Örn Guðmundsson hefurverið valinn blaðberi maímán-
aðar. „Ég vakna alltaf um hálfsex
leytið á hverjum morgni og ber út
Fréttablaðið,“ segir Ólafur Örn en
hann er fjórtán ára og ber út í
Garði. Ólafur segir blaðburðinn
ekki vera mikið mál enda taki
hann ekki nema einn og hálfan
klukkutíma á hverjum morgni.
Ólafur er alveg einstaklega
duglegur blaðberi, er þekktur fyr-
ir að taka að sér afleysingar og
lagfæringar ef eitthvað kemur
fyrir á hans útburðarsvæði. „Ég
legg mig fram og reyni að standa
mig vel í vinnunni,“ segir Ólafur.
Ólafur segist aldrei hafa fengið
neinar kvartanir síðan hann byrj-
aði að bera út og vonast til að svo
verði áfram. Í viðurkenningar-
skyni fær hann dvd spilara sem
kemur sér einstaklega vel þar
sem þannig tæki er ekki til á
heimili Ólafs. „Þetta er frábær
viðurkenning,“ segir Ólafur að
lokum. ■
Slowblow
endurútgefin
Íslenska listaspírusveitin Slowblowhefur samið við Smekkleysu um út-
gáfu á fjórðu breiðskífu sinni Sirka,
sem kemur út á næstu vikum.
Einnig hefur Smekkleysa tryggt
sér endurútgáfuréttinn á tveimur
fyrstu breiðskífum sveitarinnar,
Quicksilver Tuna, frá 1994 og
Fousque frá 1996. Emilíana
Torrini og Daníel Ágúst eru á
meðal gestasöngvara á seinni
plötunni. Á fyrri plötunni er svo
lagið Is Jesus Your Pal? sem
Gusgus tóku upp á sína arma á frumraun
sinni.
Fyrir skemmstu gaf sveitin út tónlistina
við mynd Dags Kára, Nóa Albinóa, sem telst
þá þriðja breiðskífa sveitarinnar.
Slowblow er dúett Dags Kára Pétursson-
ar og félaga hans Orra Jónssonar. Sveitin er
þekkt fyrir þá sérvisku sína að hljóðrita tón-
list á segulbönd. Þá finnst liðsmönnum best
að takmarka rásarfjöldann og til að mynda
var fyrsta breiðskífan hljóðrituð á fjögurra
rása tæki en sú önnur á átta. Sömu lögmál
gilda með nýju breiðskífuna. ■
MIDLER Á FRUMSÝNINGU
Leikkonan Bette Midler var brosmild á
frumsýningu nýjustu myndar sinnar, The
Stepford Wives, í Los Angeles fyrir skömmu.
FRUMSÝNING
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Leikarinn og fyrrverandi ruðn-ingskappinn O.J. Simpson talar
ekki beint fallega um fyrrverandi
eiginkonu sína sem hann var sak-
aður um að hafa myrt fyrir 10
árum síðan. Hann lét þau orð falla
í sjónvarpsviðtali við Fox News að
hann væri henni svekktur fyrir að
hafa ekki tekið þátt í uppeldi
barna þeirra. Pabbi eiginkonunnar,
sem trúir því enn að Simpson hafi
kálað henni, var ekki mjög ánægð-
ur með þessar yfirlýsingar.
BLAÐBURÐUR
ÓLAFUR ÖRN
■ var valinn blaðberi mánaðarins. Hann
fékk að launum dvd spilara.
ÓLAFUR ÖRN
Var valinn blaðberi maímánaðar en hann
ber út í Garði.
DAGUR KÁRI
Fyrstu tvær breiðskífur
Slowblow, sem er dúett
Dags Kára og Orra Jóns-
sonar, eru aftur fáanlegar.
Ný breiðskífa er handan
við hornið.
■ FÓLK Í FRÉTTUM
■ TÓNLIST