Fréttablaðið - 19.08.2004, Page 6
6 19. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR
Ákærður fyrir rán
og tólf önnur brot
Mál gegn tuttugu og fjögurra ára síbrotamanni var tekið til aðalmeð-
ferðar í gær. Maðurinn er meðal annars ákærður fyrir rán á Laugar-
vatni. Eigandi verslunarinnar elti ræningjann uppi og yfirbugaði hann.
SAKAMÁL Tuttugu og fjögurra ára
maður sem meðal annars er
ákærður fyrir rán í verslun á
Laugarvatni sagðist við aðalmeð-
ferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær ekki hafa beitt ofbeldi eða
hótunum þegar hann framdi rán-
ið. Maðurinn er einnig ákærður
fyrir fjölda brota svo sem bíl-
þjófnaði, fjársvik, innbrot, skjala-
fals, umferðarlagabrot og fíkni-
efnabrot.
Ríkissaksóknari ákærir mann-
inn fyrir að hafa ógnað afgreiðslu-
stúlku sem var ófrísk með rörtöng
í versluninni H-seli á Laugarvatni
sautjánda maí síðastliðinn. Hann
er sagður hafa krafið stúlkuna um
peninga, farið inn fyrir af-
greiðsluborðið og hrifsað að
minnsta kosti 33 þúsund krónur
úr peningakassanum. Með rör-
tönginni mölvaði maðurinn gler í
afgreiðsluborðinu. Eigandi versl-
unarinnar og faðir afgreiðslu-
stúlkunnar sá manninn í biluðum
símaklefa og elti hann á bíl til
Þingvalla þar sem honum tókst að
yfirbuga ræningjann með aðstoð
vegfaranda. Maðurinn játaði að
hafa sama dag stolið bíl í Reykja-
vík sem hann ók undir áhrifum
lyfja til Þorlákshafnar, Þingvalla
og Laugarvatns.
Maðurinn er einnig ákærður af
Lögreglustjóranum í Reykjavík
fyrir ellefu brot sem hann játaði í
héraðsdómi í gær. Þar af eru fjög-
ur þjófnaðarbrot. Hann braust inn
í Tónlistarskólann í Reykjavík og
tvær geymslur í Árbæ, þaðan stal
hann verðmætum fyrir um 70
þúsund krónur. Þá fór hann í
heimildarleysi inn í íbúðarhús í
Breiðholti og stal ýmsum raftækj-
um, auk þess stal hann peninga-
veski í félagsmiðstöð. Maðurinn
játaði einnig fjársvik þar sem
hann hafði tekið kreditkort
ófrjálsri hendi og notað það til að
greiða fyrir leigubíla og aðra
þjónustu. Hann játaði líka að hafa
framvísað í banka falsaðri ávísun
í janúar. Í apríl og maí stal hann
tveimur bílum sem hann ók innan
Reykjavíkur. Skömmu áður hafði
hann verið tekinn með tæpt
gramm af amfetamíni í fórum sín-
um. Þá braut hann í tvígang gegn
umferðarlögum þegar hann ók
undir áhrifum lyfja.
hrs@frettabladid.is
Slys á Seyðisfirði:
Á gjörgæslu
eftir slys
SLYS Ítalskur karlmaður liggur á
gjörgæsludeild eftir árekstur á
Seyðisfirði í gær. Maðurinn var
ásamt ítalskri konu á mótorhjóli
sem keyrði á bíl sem var að beyg-
ja inn á veg við bæjarmörkin á
Seyðisfirði.
Fólkið var flutt með sjúkraflugi
á slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi þar sem hugað var að meiðsl-
um þeirra. Ökumann bifreiðarinnar
sem ekið var á sakaði ekki.
Að sögn vakthafandi læknis á
slysadeild Landspítalans voru
áverkar konunnar ekki taldir al-
varlegir en maðurinn var fluttur á
gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut. Ekki er útilokað að
hann þurfi að gangast undir
skurðaðgerð. ■
■ VIÐSKIPTI
■ ASÍA
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 71,09 0,61%
Sterlingspund 129,94 0,16%
Dönsk króna 11,79 0,60%
Evra 87,69 0,61%
Gengisvísitala krónu 121,96 0,87%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 342
Velta 1.613 milljónir
ICEX-15 3.226,45 0,92%
Mestu viðskiptin
Landsbanki Íslands hf. 263.237
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 219.729
Actavis Group hf. 212.214
Mesta hækkun
Vátryggingafélag Íslands 8,86%
Jarðboranir hf. 2,49%
Flugleiðir hf. 1,86%
Mesta lækkun
Nýherji hf. -2,50%
Burðarás hf. -2,31%
Opin Kerfi Group hf. -2,30%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ 10.003,1 0,3%
Nasdaq 1.813,6 1,0%
FTSE 4.355,2 -0,1%
DAX 3.726,5 0,6%
NIKKEI 10.774,3 0.45%
S&P 1.087,2
0,5%*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað voru farþegar Flugleiða margirí júlí?
2Hvaða þjóðarleiðtogi ættleiddi nýlegarússneska stúlku?
3Hvaða heitir landsliðsþjálfari Ítalíu?
Svörin eru á bls. 50
Hentar fyrir efri bekki grunnskóla jafnt sem mála- og
félagsvísindadeildir menntaskóla. Ver›: 1.990 kr.
FÍ
TO
N
/
S
ÍA
F
I0
10
24
5
Citizen vasareiknir
MINNINGARSTUND Á þriðja tug fólks
sótti árlega minningarathöfn fóst-
urláta í Bænahúsinu við Fossvogs-
kirkju í gær. Þetta er tíunda árið í
röð sem athöfnin er haldin. Sjúkra-
húsprestur Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss sá um framkvæmd at-
hafnarinnar í samvinnu við starfs-
fólk Kirkjugarða Reykjavíkurpró-
fastsdæma. Eftir athöfnina var
gengið að Minnisvarða um líf og að
fósturreit.
Byrjað var að jarða í fósturreit
árið 1994 og var fyrsta minningar-
athöfnin haldin ári síðar. Séra Bragi
Skúlason sjúkrahúsprestur segir að
athöfnin skipti fólk greinilega
miklu máli, enda er það einn til-
gangur athafnarinnar að fólk geti
fundið samkennd með þeim sem
hafa staðið í sömu sporum. „Það
sótti mikið af fólki athöfnina fyrstu
árin, sumar konur höfðu kannski
misst fóstur áratugum áður en
komu vegna þess að það hafði ekki
fengið neina minningarstund eða
ígildi jarðarfarar fyrr.“
Séra Bragi segir að hugmyndin
um minningarathöfn vegna fóstur-
láta hafi kviknað vegna vinnu í sam-
bandi við andvana fæðingar. „Í
þeirri vinnu kom fram að sorgarvið-
brögð þeirra sem voru komnar
styttra á leið voru ekki síðri en
þeirra sem voru lengra komnar, og í
raun stórlega vanmetin.“ ■
BILAÐUR SÍMAKLEFI Á LAUGARVATNI
Eigandi verslunarinnar sá ræningjann í símaklefanum eftir ránið og elti hann til Þingvalla
þar sem hann náði að yfirbuga ræningjann.
EVRÓPSK VERÐHJÖÐNUN Verð-
hjöðnun var á evrusvæðinu í júlí,
þrátt fyrir olíuverðhækkanir. Vísi-
tala neysluverðs á svæðinu lækkaði
um 0,2 prósent í júlí. Efnahagssér-
fræðingar telja að ástæða þess að
fyrirtæki hækki ekki verð þrátt
fyrir kostnaðarhækkanir sé að
eftirspurn í hagkerfinu sé minni en
svo að þeir þori að hækka fram-
leiðsluvörur sínar.
BRETAR HÆKKA VEXTI Enski seðla-
bankinn hækkaði vexti í gær um
0,25 prósent í 4,75 prósent. Stýri-
vextir í Bretlandi hafa verið á upp-
leið að undanförnu. Vöxtur einka-
neyslu og hækkun fasteignaverðs
hafa kynnt undir verðbólguþrýst-
ingi. Teikn eru á lofti um að dregið
hafi úr verðbólguþrýstingi af þess-
um sökum að undanförnu.
HÖFUÐBORGIN UMKRINGD
Kommúnískir uppreisnarmenn
hafa nokkurn veginn einangrað
Katmandu, höfuðborg Nepals.
Þeir hafa stöðvað alla umferð um
vegi til borgarinnar. Eina færa
leiðin til og frá borginni er flug-
leiðina en fæstir landsmenn hafa
efni á að ferðast með flugvélum.
OPNAST LEIÐ Í RÁÐHERRASTÓL
Shaukat Aziz, bandamaður Per-
vez Musharraf forseta og verð-
andi forsætisráðherra Pakistans,
vann stórsigur í aukakosningum
sem opna honum leið í stól for-
sætisráðherra. Samkvæmt paki-
stönskum lögum verður forsætis-
ráðherrann að vera þingmaður.
Tveir þingmenn sögðu af sér til
að Aziz kæmist á þing.
MINNINGARSTUND
Séra Bragi segir að sorgarviðbrögð þeirra sem missa fóstur hafi lengi verið vanmetin.
Fósturlát:
Á þriðja tug sóttu minningarstund
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA