Fréttablaðið - 19.08.2004, Page 14
14 19. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR
KROSSÁ ÞVERUÐ
Ökumaður þessa jeppa komst í hann
krappan þegar hann reyndi að þvera
Krossá í Þórsmörk síðastliðið föstudags-
kvöld. Bíllinn stoppaði í miðri á og hagg-
aðist ekki fyrr en spotta var komið í hann
og bíllinn dreginn á land. Öll innrétting
bílsins gegnblotnaði en ekki er vitað hvort
frekari skemmdir hafi hlotist af. Engum far-
þeganna varð meint af volkinu og notuðu
sumir tækifærið til að fá sér sígarettu.
Landsvirkjun og Austur-Hérað:
Framkvæmdaleyfi
tekið fyrir
SVEITARSTJÓRNARMÁL Framkvæmda-
leyfi til handa Landsvirkjun
vegna lagningar Fljótsdalslína 3
og 4 verður tekið fyrir á fundi um-
hverfisráðs Austur-Héraðs á
Egilsstöðum í dag, fimmtudag.
Sigurður Ragnarsson, formað-
ur umhverfisráðs Austur-Héraðs,
bjóst við að Landsvirkjun skili
fyrir fundinn yfirliti yfir stöðu
samninga fyrirtækisins við eig-
endur jarða sem háspennulínurn-
ar liggja um. „Í tengslum við
deiliskipulag á svæðinu var gerð
krafa um að samningum við
bændur væri lokið eða þá að mál
þeirra væru komin í ákveðið
ferli,“ sagði hann og bjóst frekar
við að framkvæmdaleyfi til handa
Landsvirkjun yrði samþykkt,
reyndust þau mál í lagi.
Sigurður bjóst ekki við að
sveitarfélagið beitti sér sérstak-
lega í máli Sigurðar Arnarsonar,
bónda á Eyrarteigi, sem haldið
hefur því fram að nálægð við línu-
stæði háspennulínanna geri íbúð-
arhús hans verðlaust. „Ég hugsa
nú samt að bent verði á ákvæði í
raforkulögum um að ef landeig-
andi telji að eignarnám varðandi
línustæði hafi afgerandi áhrif á
jörðina alla, þá eigi hann kröfu á
að öll jörðin sé undir varðandi mat
á eignarnámsbótum.“ ■
Byssubardagar í Brasílíu:
Lögreglan fell-
ir níu manns
RIO DE JANEIRO, AP Níu hafa fallið í
skotbardögum milli brasilísku
lögreglunnar og glæpagengja í fá-
tækrahverfi í Rio de Janeiro. Að
sögn lögreglu lék grunur á að
glæpagengi sem drap prest héldi
til í hverfinu og réðst hún þess
vegna til atlögu.
Þrír lögreglumenn særðust í
skotbardögum í gær og þrír
byssumenn létu lífið. Daginn
áður féllu sex byssumenn í skot-
bardögum. Morðtíðni í borginni
er með því mesta sem gerist í
heiminum, en á hverju ári eru 50
af hverjum 100 þúsund íbúum
myrtir. ■
PÁFINN Í LOURDES
Páfi er mjög heilsutæpur. Það stöðvar þó
ekki ferðalög hans.
Jóhannes Páll páfi annar:
Ætlar aftur í
ferðalag
VATÍKANIÐ, AP Þrátt fyrir að Jó-
hannes Páll páfi annar hafi aug-
ljóslega verið mjög hrumur á
ferðalagi sínu til Lourdes um
síðustu helgi kemur það ekki í
veg fyrir að næsta ferðalag hans
hafi þegar verið skipulagt.
Vatíkanið tilkynnti í gær að í
byrjun næsta mánaðar muni
páfi ferðast til ítalska bæjarins
Loreto. Þar er helgidómur um
Maríu mey og þar mun páfi
halda tveggja klukkustunda
langa messu.
Bág heilsa páfa um helgina
olli mörgum áhyggjum enda
þurfti hann á mikilli hjálp að
halda. ■
INTELSAT KEYPT Hópur fjárfest-
ingarstofnana mun að líkindum
kaupa Intelsat, sem rekur 28
gervihnetti, á næstunni. Áætlað
kaupverð er þrír milljarðar dala
(um 210 milljarðar króna). Fyrir-
tækið var stofnað í kjölfar alþjóð-
legs samstarfs 147 ríkisstjórna
árið 1964.
■ AFRÍKA
■ VIÐSKIPTI
Uppbygging í Írak:
36 milljónir
lagðar til
UTANRÍKISMÁL Íslensk stjórnvöld
ætla að leggja jafnvirði 36 milljóna
íslenskra króna í fjölþjóðlegan sjóð
sem fjármagnar verkefni vegna
enduruppbyggingar í Írak.
Gert er ráð fyrir að hægt sé að
verja fjármununum til ýmissa verk-
efna, m.a. á sviði heilbrigðismála og
menntamála, auk þess sem hægt er
að veita fénu til aðstoðar Samein-
uðu þjóðanna við undirbúning kosn-
inga í landinu sem gert er ráð fyrir
að fari fram á næsta ári. ■
Viðskiptalausnir Microsoft:
Maritech fær
gullvottun
TÖLVUR OG TÆKNI Hugbúnaðarfyrir-
tækinu Maritech hefur verið til-
kynnt að það hljóti gullvottun frá
Microsoft Corporation sem
„Microsoft Gold Certified Partner“.
Í tilkynningu Microsoft á Íslandi
kemur fram að Maritech sé eina ís-
lenska fyrirtækið sem fengið hefur
þessa vottun fyrir Microsoft
Business Solutions. Elvar Steinn
Þorkelsson, framkvæmdastjóri
Microsoft Íslandi, afhendir starfs-
fólki Maritech skjöld til staðfesting-
ar vottuninni síðdegis næsta
fimmtudag.
Maritech sérhæfir sig í fram-
leiðslu á upplýsingatæknibúnaði
fyrir sjávarútveg. ■
Íranar óttast árásir Ísraela á kjarnorkuver sitt:
Hóta gagnárásum á kjarnorkuver
TEHERAN, AP Íranar hóta því að ráð-
ast á kjarnorkuver Ísraela í
Negev-eyðimörkinni ef Ísraelar
ráðast á kjarnorkuver í Íran.
„Ef Ísraelar skjóta eldflaugum
að Bushehr-kjarnorkuverinu
verða þeir að kveðja Dimona-
kjarnorkuverið sitt, þar sem þeir
framleiða kjarnorkuvopn, um ald-
ur og ævi,“ sagði Mohammad
Baqer Zoldaqr, hershöfðingi og
næstæðsti ráðandi Byltingarvarð-
arins.
Ísraelar hafa ekki hótað að ráð-
ast á kjarnorkuver Írana en hafa
lýst því yfir að þeir muni ekki líða
Írönum að koma sér upp kjarn-
orkuvopnum. Fyrir 23 árum réð-
ust ísraelskar herþotur á kjarn-
orkuver fyrir utan Bagdad, höfuð-
borg Íraks. Þá óttuðust Ísraels-
menn að Írakar væru að koma sér
upp kjarnorkuvopnum.
Íranar þvertaka fyrir að þeir
ætli að koma sér upp kjarnorku-
vopnum. Bandaríkjamenn og
Ísraelar óttast hins vegar að það
sé markmið þeirra.
Ísrael er eina ríkið í Mið-Aust-
urlöndum sem er talið að ráði yfir
kjarnorkuvopnum. Ísraelar hafa
alltaf neitað að staðfesta það. ■
EYRARTEIGUR Í SKRIÐDAL
Umhverfisráð Austur-Héraðs tekur á fundi
sínum í dag fyrir framkvæmdaleyfi vegna
lagningar Fljótsdalslína 3 og 4, sem flytja
eiga rafmagn úr Kárahnjúkavirkjun yfir í ál-
ver Reyðaráls í Reyðarfirði.
MANNRÉTTINDABROT ENN TÍÐ
Nauðungarvinna, rán og önnur
mannréttindabrot eru enn útbreidd
í Líberíu, meira en ári eftir að
fimmtán ára borgarastríði lauk
með friðarsamkomulagi. Þetta
kemur fram í skýrslu Amnesty
International um ástandið í land-
inu. Verst er ástandið á tveim
svæðum sem fyrrum uppreisnar-
menn stjórna enn að mestu leyti.
RÆÐA KJARNORKUMÁLIN
Hasan Rowhani, helsti samningamaður Írana í kjarnorkumálum, ræddi á dögunum við
Mosioua Lekota, varnarmálaráðherra Suður-Afríku.
NAJAF, AP Tveggja vikna blóðugum
bardögum í Najaf lýkur með frið-
arsamkomulagi ef að líkum lætur.
Sjíaklerkurinn Muqtada al-Sadr
hefur samþykkt áætlun sem átta
manna sendinefnd þjóðfundarins
í Bagdad lagði fyrir hann. Sam-
kvæmt henni leggja sveitir hans
niður vopn og hverfa frá einni
helgustu mosku sjíamúslima þar
sem þeir hafa hafst við.
Skömmu áður en talsmaður al-
Sadr flutti þessi skilaboð klerksins
hafði íraski varnarmálaráðherrann
Hazem Shaalan lýst því yfir að
stjórnvöld væru reiðubúin að ráð-
ast gegn al-Sadr og stuðnings-
mönnum hans í mosku Imam Ali.
Friðarsamkomulagið liggur
ekki endanlega fyrir. Al-Sadr
sagðist í gær vilja að sendinefnd-
in sem ræddi við fulltrúa hans á
þriðjudag sneri aftur til Najaf til
viðræðna um samkomulagið.
Sendinefndin krafðist þess að
sveitir al-Sadr leggðu niður vopn
sín, hyrfu á brott úr moskunni og
umbreyttu sér í stjórnmálaflokk.
Yrðu þær við því fengju meðlim-
ir þeirra uppgjöf saka. Al-Sadr
vildi ekki ræða við nefndarmenn
þegar þeir sóttu hann heim á
þriðjudag.
Í gær var komið annað hljóð í
strokkinn. Þá sagði talsmaður al-
Sadr að hann hefði samþykkt til-
lögu nefndarmanna en vildi að
þeir kæmu aftur til viðræðna og
ábyrgðust að vopnaðir fylgis-
menn hans yrðu ekki handteknir.
Þrátt fyrir tilkynningu al-Sadr
héldu skærur fylgismanna hans
annars vegar og hermanna hins
vegar áfram fram eftir degi. Síð-
ustu daga hafa sex hið minnsta
látist og 23 slasast. Frá því að bar-
dagar brutust út á nýjan leik eftir
tveggja mánaða vopnahlé hafa 40
íraskir lögreglumenn og átta
bandarískir hermenn látist. Yfir-
stjórn Bandaríkjahers segir að
hundruð vopnaðra fylgismanna
al-Sadr hafi látist en því neita
fylgismenn al-Sadr. ■
Leggja niður vopn
Muqtada al-Sadr hefur samþykkt friðaráætlun. Samkvæmt henni af-
vopnast hersveitir hans og yfirgefa hina helgu mosku sem þær hafast
við í. Átök héldu þó áfram fram eftir degi í gær.
BARIST Í NAJAF
Bardagarnir undanfarnar tvær vikur hafa kostað nokkur hundruð manns lífið. Nú standa vonir til að friður komist á í annað sinn í sumar.