Fréttablaðið - 19.08.2004, Blaðsíða 22
22 19. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR
MÓTMÆLA STRÍÐI Í NAJAF
Pakistanskar konur mótmæltu í gær að-
gerðum Bandaríkjamanna í Najaf í Írak.
Múslimar telja Najaf heilaga borg.
Óviðunandi aðferðir og misnotkun manna á stöðum sínum:
Arafat viðurkennir mistök
PALESTÍNA, AP „Það er rétt að ég og
margir aðrir vikum af réttri braut
og beittum óviðunandi aðferðum.
Meira að segja spámennirnir gera
mistök,“ sagði Jasser Arafat, forseti
Palestínu, þegar hann baðst afsök-
unar á mistökum sem stjórn hans
hefði gert.
Mjög fátítt er að Arafat viður-
kenni mistök en það gerði hann á
fundi með þingmönnum og hét því
að bæta fyrir þau. Arafat var að
ræða umbætur á palestínsku heima-
stjórninni, sem hefur sætt gagnrýni
innanlands og utan fyrir spillingu
og ómarkvissa stjórnsýslu.
Arafat útskýrði ekki í hverju
mistök sín hefðu verið fólgin.
Hann sagði þó að sumar stofnanir
hefðu beitt vitlausum aðferðum
og að einhverjir hefðu misnotað
aðstöðu sína án þess að hann segði
hverjir það hefðu verið. „Það var
ekki nóg gert til að styrkja lög og
reglu, sjálfstæði dómstólanna. Við
erum byrjuð að vinna að lausn
þessara mála;“ sagði hann.
Í ræðu sinni hvatti Arafat til
þess að konur og ungt fólk fengju
meira hlutverk í palestínskum
stjórnmálum. ■
VIÐSKIPTI Fjárfestingarfélagið
Atorka mun verða í úrvalsvísi-
tölu Kauphallar Íslands, eftir
yfirtöku á systurfélagi sínu,
Afli.
Styrmir Þór Bragason, fram-
kvæmdastjóri félaganna, segir
sameiningu þeirra hafa mikla
kosti fyrir hluthafa þeirra. Lítil
viðskipti hafa verið með bréf
Afls og segir Styrmir að við
sameiningu aukist seljanleiki
bréfa Afls.
Fjárfestingarstefna félaganna
hefur verið ólík. Atorka hefur ein-
beitt sér að stórum eignarhlut í
fáum fyrirtækjum.
Félagið hefur tekið
þátt í umbreyting-
um fyrirtækjanna
og útrás. Stærstu
eignir Atorku fyrir
utan 54 prósenta
hlut í Afli eru kjöl-
festueignarhlutir í
Jarðborunum og Sæplasti. Þess
utan á Atorka heilsu- og lyfja-
fyrirtækið Líf nánast að fullu.
Afl hefur leitað tækifæra á
innlendum og erlendum verð-
bréfamörkuðum. Afl er með mikið
laust fé og því í skotstöðu þegar
kemur að stórum fjárfestingar-
verkefnum. Meðal skammtíma-
fjárfestinga Afls í Bretlandi eru
bresku fyrirtækin Geest og Sin-
ger and Friedlander, sem flestir
búast við að verði tekin yfir af
Bakkavör og KB banka.
Samanlagt búa félögin yfir
töluverðum slagkrafti í fjárfest-
ingarverkefnum. Styrmir Þór seg-
ir að tækifærum innanlands hafi
farið fækkandi og Atorka boðar
líkt og fleiri innlend fjárfesting-
arfélög að leitað verði tækifæra
erlendis. Bretland er eins og hjá
fleiri innlendum fjárfestum í
brennidepli.
Eftir sameiningu félaganna
verða hluthafar Afls og Atorku
um níu þúsund og eignarhald
dreift. Fjölmargir fjársterkir
fjárfestar standa að baki félögun-
um. Meðal þeirra stærstu eru
Þorsteinn Vilhelmsson, einn
stofnenda Samherja, og Aðal-
steinn Karlsson, fyrrum eigandi
heildverslunarinnar A. Karlsson.
Samanlagður hagnaður félag-
anna á fyrri hluta ársins var 2,5
milljarðar króna. Efnahagur fé-
lagsins verður á ellefta milljarð.
Eiginfjárhlutfallið verður yfir 90
prósent, sem er mjög hátt.
Styrmir Þór segir stefnt að því að
það verði um 50 prósent. Sam-
kvæmt því er talsvert borð fyrir
báru til að takast á við stór fjár-
festingarverkefni.
haflidi@frettabladid.is
Kjaraviðræður
leikskólakennara:
Fundað á
morgun
KJARAMÁL „Kröfugerðin hefur verið
lögð fram og starfið í raun rétt að
hefjast,“ segir Björg Bjarnadóttir,
formaður samninganefndar leik-
skólakennara. Þeir krefjast al-
mennra kjarabóta til jafns við það
sem gerist hjá öðrum kennurum
með sambærilega menntun. Björg
segir margt annað sem farið sé
fram á en launakrafan vegi þyngst.
„Það er talsverður munur á laun-
um eins og staðan er í dag og það
sættum við okkur ekki við. Við för-
um fram á aukinn undirbúnings-
tíma og annað sem lýtur að innra
starfi leikskólanna.“ ■
Hámarkshraði lækkaður:
Umferðar-
átak við
skólasetningu
SKÓLAMÁL Hámarkshraði við
Njarðvíkurskóla og Heiðarskóla í
Reykjanesbæ lækkar mánudag-
inn 23. ágúst úr 50 km/klst í 30
km/klst. Breytingin er gerð um
leið og grunnskólar bæjarins eru
settir, en eftir hana verður 30 km
hámarkshraði í nágrenni allra
grunnskóla Reykjanesbæjar.
Breytingin er sögð vera liður í
umferðar- og öryggisátaki sem
hleypt verður af stokkunum við
skólasetningu grunnskólanna. Á
vef bæjarins segir einnig að unnið
sé að heildarendurskoðun um-
ferðarskipulags við Holtaskóla,
Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
Sundmiðstöð og íþróttahús. ■
■ MIÐ-AUSTURLÖND
Lambakjöt:
Stóraukin
sala
LANDBÚNAÐUR Sala á lambakjöti hef-
ur aukist verulega það sem af er
þessu ári og farið langt fram úr
björtustu vonum manna, að því er
fram kemur í frétt frá Markaðsráði
kindakjöts.
Salan í júlí var 65,7% meiri en í
sama mánuði í fyrra eða tæp 752
tonn og ársfjórðungssalan er 25,6%
hærri miðað við sama tíma í fyrra.
Ljóst er að gott veður, vel heppn-
að markaðsstarf og gott framboð á
lambakjöti á stóran þátt í þessari
miklu söluaukningu, en jafnframt
ómetanleg tryggð Íslendinga við
sitt góða lambakjöt. ■
Næsti föstudagur:
Skólastarf
hefst á
Akureyri
SKÓLAR Skólastarf hefst í öllum
grunnskólum Akureyrarbæjar
núna á föstudaginn, nema í
Brekkuskóla þar sem skólasetn-
ing frestast til mánudags vegna
byggingarframkvæmda. Á vef
Akureyrarbæjar kemur fram að
nemendum í Síðuskóla verði boðið
í nýtt og glæsilegt íþróttahús skól-
ans í tilefni dagsins og mun það
vera í fyrsta skiptið sem skólinn
er settur á sal skólans.
Fram kemur að börn sem fara í
1. bekk verði boðuð sérstaklega
með bréfi til viðtals í skólunum
ásamt aðstandendum sínum. Þá
eru foreldrar hvattir til að koma
með börnum sínum fyrsta skóla-
daginn. ■
Uppgjör í erlendri mynt:
Flestir í
dollara
SKATTAMÁL Frá því að lögum um
ársreikninga var breytt árið 2002
hafa 93 félög fengið heimild til að
skila uppgjörum í erlendum gjald-
miðli. Langflest þeirra, 61, hafa
fengið heimild til að gera upp í
Bandaríkjadal.
Aðeins 23 félög gera upp í evru
og sjö í enskum pundum. Þessar
tölur koma fram í Tíund, frétta-
bréfi Ríkisskattstjóra.
Þar segir einnig að frá áramót-
um hafi fimmtán íslensk félög
bæst í hóp þeirra sem óskað hafa
eftir því að skila uppgjörum í er-
lendri mynt. ■
FIMM LÉTUST Í SPRENGINGU
Fimm Palestínumenn létust og
sjö til viðbótar særðust í árás
Ísraelshers á Gaza. Fjórir hinna
látnu voru vígamenn en helsta
skotmark árásarinnar, Ahmed
Jabari, slapp lítt meiddur frá
árásinni. Sonur hans lést hins
vegar.
MANNSKÆTT BÍLSLYS Í það
minnsta fimmtán manns létust og
tuttugu slösuðust þegar rúta og
flutningabíll lentu í árekstri í
suðausturhluta Írans. Meðal
þeirra sem létust voru þrettán
börn sem talið er að hafi látist
samstundis. Ökumaður flutninga-
bílsins keyrði fram á rútuna þeg-
ar hann reyndi að taka framúr.
VENESÚELA, AP Alþjóðlegu eftirlits-
mennirnir sem fylgdust með
kosningunum í Venesúela hafa
heitið því að endurtelja hluta at-
kvæða. Með því vilja þeir koma til
móts við stjórnarandstæðinga,
sem hafa haldið því fram að sigur
Hugo Chavez forseta byggist á
kosningasvindli.
Niðurstaða talningar var að 58
prósent vildu hafa Chavez áfram
en 42 prósent vildu hann burt.
Engar misfellur komu fram við
kosningaeftirlit. Alla jafna væri
málinu þá lokið en vegna þess
hversu eldfimt ástandið er í
Venesúela hafa kosningaeftirlits-
menn ákveðið að gera stikkprufur
til að sannreyna úrslitin. ■
JASSER ARAFAT MEÐ AHMED
QUREIA FORSÆTISRÁÐHERRA
Arafat brá út af vananum og baðst af-
sökunar á því að hafa gert mistök í
stjórn Palestínu.
MÓTMÆLI GEGN CHAVEZ
Deilandi fylkingar í Venesúela berjast
af óvenjumikilli hörku.
Kosningaeftirlit:
Sannreyna úrslitin
LAMB Á GRILLIÐ
Fólk keppist við að grilla í góða veðrinu og
lambakjötið rýkur út.
ATORKUMENN
Guðmundur A. Birgisson, kenndur við Núp í Ölfusi, og Aðalsteinn Karlsson, fyrrum eigandi
heildverslunarinnar A. Karlssonar, voru meðal hluthafa Atorku sem fylgdust með útlistun
Styrmis Þórs Bragasonar á uppgjöri félagsins og framtíðarsýn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■
Eftir samein-
ingu félaganna
verða hluthafar
Afls og Atorku
um níu þúsund
og eignarhald
dreift.
Atorka með afl til
stærri verkefna
Með kaupum Atorku á Afli verður til sterkt félag með mikið laust fé til
fjárfestingarverkefna. Framkvæmdastjóri félagsins telur fjárfestingar-
verkefnum innanlands fara fækkandi. Því verði sjónum frekar beint út.