Fréttablaðið - 19.08.2004, Qupperneq 26
Eru græðgi landans engin tak-
mörk sett? Eru menn hér virki-
lega farnir að skjóta mófugla á
eggjum og ungum? Þetta er lög-
brot, svo að ekki sé nú minnst á
siðferðisvitunduna sem að baki
býr.
Það er engin von til þess, að
fráfarandi umhverfisskemmda-
ráðherra láti sig þetta mál ein-
hverju skipta á sínum síðustu
dögum. Meiri von er, að prest-
frúin, sem við tekur, láti verða
sitt fyrsta verk að stöðva þessa
óhæfu.
Lóa, spói, hrossagaukur og
margir aðrir mófuglar eru al-
friðuð og eiga rétt á friðun um
ókomin ár á sínum vorbjörtu
varpstöðvum, eða er kannski
ætlunin að versla hér með
lúxuskvóta?
Íslensk börn eiga líka rétt á
því, að geta gengið um móa og
heiðar landsins á vorin og sumr-
in, án þess að eiga á hættu að
verða fyrir voðaskoti. ■
Oft er þörf en nú er nauðsyn.
Meðfylgjandi línurit sýnir fjölda
eldri borgara sem búa í Reykja-
vík og á Seltjarnarnesi, og jafn-
framt hve margir þeirra eru fé-
lagar í Félagi eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni.
Við núverandi félagar í okkar
samtökum, 60 ára og eldri, vitum
að við þurfum miklu meiri þátt-
töku allra eldri borgara til þess
að stjórnvöld hlusti á okkur. Það
er nauðsyn að auka félagatöluna
til þess að við getum haldið
áfram okkar baráttu af fullum
krafti fyrir bættum kjörum og
bættri þjónustu við aldraða.
Stjórnvöld munu líta á þetta
línurit með mikilli ánægju. Það
sýnir að það eru allt of fáir með-
limir í félögum aldraðra. Þar með
álykta stjórnvöld sem svo að þau
þurfi alls ekki að taka meira tillit
til eldri borgara en þau hafa gert.
Það séu í raun og veru svo fáir fé-
lagsmenn sem mótmæla. Þetta
hafa stjórnvöld í raun og veru
gert undanfarin ár og allir eldri
borgarar, sem þurfa að reiða sig á
hjálp ríkisins, hafa fundið fyrir
því. Þarna vantar aðeins að eldri
borgarar sýni samstöðu og gerist
félagar í samtökum eldri borgara.
Það er staðreynd að ef ekki verð-
ur umtalsverð fjölgun í félögum
eldri borgara, þá verður saumað
ennþá fastar að kjörum þeirra.
Það eru því miður alltof mörg
hjón (sambúðarfólk) sem láta sér
það duga að annað sé meðlimur í
félaginu, og þarmeð njóta allra
réttinda, sem félagið veitir. Það
er ekki drengileg framkoma.
Gleymið því ekki, þið sem
eruð aðeins 60 ára í dag, að ykkar
bíður það sama og okkar eldri
eftir fáein ár, nema að þið gerið
eitthvað í málunum og það strax.
Eitt af því sem þið getið gert er
að hjálpa Félögum eldri borgara
til að búa í haginn fyrir ykkur
með því að gerast félagar.
Breytum þessu og blásum til
sóknar, fyrst og fremst með því
að allir 60 ára og eldri gerist fé-
lagar í félögum eldri borgara.
Það veltur á miklu um ykkar
stuðning, og þið eruð aðeins að
búa í haginn fyrir ykkur. Það eru
um 19.100 íbúar í Reykjavík og á
Seltjarnarnesi 60 ára og eldri. Ef
flestir þeirra gerðust félagar, þá
gæti félagið virkilega látið að sér
kveða! Finnst ykkur, sem ekki
eruð félagsmenn, það vera í lagi
að innan við helmingur eldri
borgara kosti baráttuna fyrir
hagsmunum okkar allra? Við von-
umst til þess að geta birt betra
línurit í haust.
Að lokum má minnast á það að
Landssamband eldri borgara hef-
ur gert samninga við fjölmörg
verslunar- og þjónustufyrirtæki
um umtalsverðan afslátt til
handa félagsmönnum. Sá afslátt-
ur getur numið hærri upphæð en
félagsgjöld, aðeins ef keypt er
fyrir tvö til þrjú þúsund krónur á
mánuði! Þetta er alvöru „punkta-
kerfi“ okkar aldraðra og kemur
okkur öllum til góða langt um-
fram félagsgjöld.
Sími Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni er 588-
2111. ■
Norsk stjórnvöld hafa rekið ís-
lensk skip frá síldveiðum á hinu
svokallaða fiskverndarsvæði við
Svalbarða. Hér er nýjasta dæmið
um óþolandi yfirgang Norðmanna
á úthafssvæðunum norður og
norðaustur af Íslandi. Takmarkið
er að reyna að tryggja sér yfir-
ráðarétt á hafsvæðum sem þeir
hafa í raun ekkert tilkall til um-
fram aðrar þjóðir við norðaustan-
vert Norður-Atlantshaf.
Íslendingar og Norðmenn hafa
deilt um hafsvæðið umhverfis
Svalbarða í rúm tíu ár. Hæst risu
deilurnar fyrir tíu árum síðan þeg-
ar íslenskir togarar við veiðar
voru herteknir af norsku strand-
gæslunni og færðir til hafnar í
Norður-Noregi. Réttað var yfir
skipstjórum og útgerðum sem þar
færu ótíndir veiðiþjófar. Dómar
féllu í samræmi við það. Síðan hef-
ur ekki mikið borið á átökum þó
deilan um Svalbarðasvæðið hafi
aldrei verið leyst. Nú eru átök enn
á ný vegna óbilgirni norskra
stjórnvalda. Því ber að fagna. Það
er löngu tímabært að skýr niður-
staða fáist í þessari hafréttardeilu.
Svalbarði er gríðarstór eyja-
klasi í Íshafinu um 700 sjómílur
norðaustur af Íslandi og um 500
sjómílur norður af Noregi. Þessar
eyjar voru lengst af nokkurs konar
einskis manns land. Í framhaldi af
friðarviðræðum eftir lok fyrri
heimsstyrjaldar komust níu þjóðir
að samkomulagi um að Svalbarða-
eyjaklasinn skyldi fá sérstaka skil-
greiningu þar sem hann tilheyrði í
raun engu ríki. Þessi samningur
var gerður árið 1920 og hafði að
markmiði að eyjarnar skyldu nýtt-
ar með friðsamlegum hætti án
hernaðaríhlutunar og að allar
þjóðir sem gerðust aðilar að samn-
ingnum skyldu njóta jafnræðis í
auðlindanýtingu á eyjaklasanum.
Noregi var falið vald til að fylgjast
með því að ákvæðum samningsins
væri framfylgt á eyjunum. Á þeim
84 árum sem liðin eru frá því að
Svalbarðasamningurinn leit dags-
ins ljós hafa æ fleiri þjóðir gerst
aðilar að honum. Þær eru nú 41.
Nýjasta aðildarríkið er Ísland,
sem bættist í hópinn árið 1994.
Gott samkomulag hefur ríkt
um þennan samning alla tíð ef
undan er skilið eitt atriði. Norð-
menn féllu í þá freistni að misnota
í eigin þágu aðstöðu sína sem
gæsluaðili Svalbarðasamningsins.
Það gerðist árið 1977. Þá gáfu þeir
allt í einu út konunglega tilskipun
þar sem þeir lýstu því yfir að þeir
ættu 200 sjómílna svokallaða
„fiskverndarlögsögu“ umhverfis
Svalbarða. Þeir áskildu sér ein-
hliða fullan rétt til að stjórna fisk-
veiðum á þessu gríðarstóra haf-
svæði sem er 830.000 ferkílómetr-
ar. Til samanburðar er 200 sjó-
mílna efnahagslögsaga Íslands
758.000 ferkílómetrar.
Hér var því á ferðinni frekleg
tilraun eins ríkis til að ræna undir
sig gríðarlegum hafsvæðum um-
hverfis eyjaklasa sem þetta ríki
átti ekkert í umfram aðrar þjóðir.
Til marks um það hve ósvífin
þessi aðgerð var má benda á að
flatarmál 200 mílna efnahagslög-
sögu Noregs er 876.000 ferkíló-
metrar. Mörk hennar voru sett
með lögum norska Stórþingsins
árið 1976, réttu ári eftir að við Ís-
lendingar höfðum einir og óstudd-
ir með hetjulegri landhelgisbar-
áttu okkar náð alþjóða viðurkenn-
ingu á því að strandríki ættu rétt á
200 sjómílna efnahagslögsögu. Í
kjölfar lokasigurs okkar í land-
helgismálinu gengu Norðmenn
sem sagt á lagið og lögðu undir sig
1.600.000 ferkílómetra hafsvæði.
Síðan bættu þeir um betur þegar
þeir náðu yfirráðum á hafsvæðinu
umhverfis hina óbyggilegu eld-
fjallaeyju Jan Mayen sem er norð-
ur af Íslandi. Í dag telja Norð-
menn sig ráða yfir rúmlega tvegg-
ja milljóna ferkílómetra hafsvæð-
um í Norður-Atlantshafi!
Það er fagnaðarefni að íslensk
stjórnvöld ætli nú að hefja undir-
búning að því að deilan um Sval-
barðasvæðið verði útkljáð fyrir
alþjóða dómstól. Hér höfum við
allt að vinna og engu að tapa, því
Norðmenn hafa ekki látið okkur
hafa neitt á Svalbarðasvæðinu,
sem býr yfir stórkostlegum nátt-
úruauðæfum. Þó er það mjög
ámælisvert að ekki skuli hafa
verið byrjað á því ferli fyrir tíu
árum, þegar síðast skarst í odda
milli Noregs og Íslands á svæð-
inu. Það er ótrúlegur málflutn-
ingur hjá Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra þegar hann
reynir að afsaka þetta með því að
menn hafi viljað reyna að ná
samningum. Hann ætti að vita að
Norðmenn hafa engan áhuga á
því að ná sanngjörnum samning-
um um hafréttarmál við Íslend-
inga. Nei, íslensk stjórnvöld
verða að hætta undirlægjuhætti
sínum í samskiptum við aðrar
þjóðir. Gildir þá einu hvort þar er
um að ræða stuðning við glæp-
samlegt stríð í Írak, eða hvort við
eigum að láta til skarar skríða
gegn Norðmönnum í deilunni um
Svalbarðasvæðið. ■
19. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR26
Svalbarðadeilan –
stefnum Noregi
Það er fagnaðarefni
að íslensk stjórnvöld
ætli nú að hefja undirbún-
ing að því að deilan um
Svalbarðasvæðið verði út-
kljáð fyrir alþjóðadómstól.
Hér höfum við allt að vinna
og engu að tapa, því Norð-
menn hafa ekki látið okkur
hafa neitt á Svalbarðasvæð-
inu, sem býr yfir stórkost-
legum náttúruauðæfum.
,,
AF NETINU
BRÉF TIL BLAÐSINS
Karíókí ekki hljómsveit
Jens Guð skrifar:
Fyrir bölvaðan klaufaskap sá ég á dögun-
um brot úr sjónvarpsþætti um nokkrar
karíókí-stelpur sem syngja og dansa
saman. Þátturinn virtist annars ekki vera
um neitt sérstakt. Stelpurnar voru þó
stöðugt fyrir framan myndavélina, ýmist
að æfa dansspor eða skrifa eitthvað á
blað fyrir leikskólakrakka. Allt gott um
það að segja. Verra er að í þættinum var
oftar en einu sinni talað um þessar
syngjandi stelpur sem hljómsveit. Sjón-
varpsþátturinn var um svipað leyti kynnt-
ur á dagskrársíðu Moggans. Þar var
sömuleiðis skrifað um stelpurnar sem
hljómsveitina Nylon. Það er villandi –
svo ekki sé fastar að orði kveðið - að fjal-
la um dansandi karíókí-stelpur sem
hljómsveit. Það eru hljóðfæraleikarar –
með eða án söngvara – sem mynda
hljómsveit. Eðlilegra er að tala um dans-
andi karíókí-stelpur sem sönghóp eða
söngsveit.
250
500
750
1000
60
ára
61
ára
62
ára
63
ára
64
ára
65
ára
66
ára
67
ára
68
ára
69
ára
70
ára
71
ára
72
ára
73
ára
74
ára
75
ára
76
ára
77
ára
78
ára
79
ára
80
ára
81
ára
82
ára
83
ára
84
ára
85
ára
86
ára
87
ára
88
ára
89
ára
90
ára
91
ára
92
ára
93
ára
94
ára
95
ára
96
ára
97
ára
98
ára
99
ára
100
ára
101
ára
102
ára
103
ára
SAMANBURÐUR Á FJÖLDA EINSTAKLINGA YFIR 60 ÁRA Í REYKJAVÍK
OG SELTJARNARNESI OG FÉLAGSMANNA Í FÉLAGI ELDRI BORGARA
Heildarfjöldi í Reykjavík og á Seltjarnarnesi
Fjöldi félagsmanna í Félagi eldri borgara
Stóreflum félög eldri borgara
ÓLAFUR ÓLAFSSON
FORMAÐUR FÉLAGS ELDRI BORGARA
UMRÆÐAN
MÁLEFNI
ALDRAÐRA
PÉTUR GUÐMUNDSSON
Í STJÓRN FÉLAGS ELDRI BORGARA
UMRÆÐAN
MÁLEFNI
ALDRAÐRA
MARGRÉT GUÐNADÓTTIR
VEIRUFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
VEIÐAR OG
SIÐFRÆÐI
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON
ALÞINGISMAÐUR FRJÁLSLYNDRA
UMRÆÐAN
SVALBARÐADEILAN
Að drepa söngfugl
LÓA Lóa, spói, hrossagaukur og margir aðr-
ir mófuglar eru alfriðuð og eiga rétt á friðun
um ókomin ár, segir greinarhöfundur.
Hvað kostar að tala íslensku?
Ég hef áður nefnt grein Benedikts
Jóhannessonar „Hvað kostar að tala ís-
lensku?“. Í henni beitir höfundur all sér-
kennilegum reikniskúnstum til að sanna
að kostnaður sé af íslenskri tungu. Ef til
vill ætti þessi mikli reiknimeistari að reik-
na kostnaðinn af hinni gífurlegu amerík-
aniseringu Íslands. [Hún] hefur leitt til
stóraukinnar bílaeignar sem aftur veldur
auknum slysum ... Íslendingar fara ekki
spönn frá rassi öðruvísi en bílandi enda
ganga amerísku guðirinir ekki. Í ofan á
lagi borða þeir helst ekki fisk lengur,
hver hefur séð amerískan guðaguð
neyta slíkrar fæðu? „Íslendingar“ dagsins
í dag „lifa bæði á mysu og mjólk“ en
mest á pizzurusli. Afleiðingin er sú að Ís-
lendingar (fyrrverandi) eru orðnir
feitasta og ljótasta þjóð Vestur-Evrópu. ...
Minnkandi fiskát gæti verið skýringin á
því hversu heimsk íslensk ungmenni eru.
Er hægt að nota tossa í vinnu í upplýs-
ingarsamfélagi? Draslfæðu og sykurát
ungmenna kann að gera þau ofbeldis-
hneigðari.... Ofan á bætast möguleg áhrif
frá ameríska kvikmyndaruslinu. Eins og
nær má geta kostar stóraukið ofbeldi
skildinginn.... Sú var tíðin að útlendir
túr(grað)hestar gerðu sér ferðir til Ís-
lands til að hitta fallegar íslenskar stelp-
ur. En svo ljótar eru hinar ungu, akfeitu,
fölleitu og strýhærðu pizzujussur sam-
tímans að slíkur túrismi hlýtur að hverfa.
Og hvaða ferðamaður vill fara til lands
sem er eins og skrípamynd af plebbaleg-
asta hluta Bandaríkjanna? Ég eggja
Benedikt lögeggjan að taka nú upp
reiknivélina og byrja að reikna.
Stefán Snævarr á kistan.is