Tíminn - 22.07.1973, Side 39
Sunnudagur 22. júll 1973.
TÍMINN
39
0 Haraldur
kennum og þetta um svipað leyti i
hléinu. Og nú spáum við gosi i
kringum aldamótin 2000 i Soufri-
ere.
— 1 gosinu i Soufriere á St.
Vincent árið 1902 fórust um 1500
manns. Daginn eftir að gos hófst,
brauzt út hið fræga gos i eldf jall-
inu Pélée á Martinique, en í þvi
fórust um 30 þúsund manns.
— Hin mikla eldgosa- og jarð-
skjálftahætta á þessu svæði hefur
ekki svo litil áhrif á fólkið. Það
getur sifellt átt von á slikum nátt-
úruhamförum. Einmití þess
vegna er lögð mjög mikil áherzla
á jarðfræðirannsóknir á svæðinu,
kortlagningu, uppsetningu jarð-
skjálftamæla o.s.frv., til að geta
samgt sem nákvæmlegast fyrir
um þessi umbrot.
— Þannig er mikið um það i há-
skólanum að lögð sé stund á jarð-
visindi. Annars má segja, að
Trinidad tilheyri „þriðja heimin-
um”, og þvi er lögð höfuðáherzla
á hið hagnýta nám, þ.e. náms-
greinar, er lúta að höfuðatvinnu-
vegum jjjóðarinnar, svo sem oliu-
vinnslu.
Hver er orsök hinna
miklu umbrota i Vestur-
Indium frá jarðfræði-
legu sjónarmiði?
Hver er orsök hinna miklu um-
brota i Vestur-Indium frá jarð-
fræðilegu sjónarmiði?
— Þar komum við að hinni
frægu landrekskenningu, sem
99% jarðvisindamanna aðhyllast
i megindráttum i dag, og þar á
meöal ég. En hér er um miklu
flóknari „prósess”, en menn
höfðu álitið, og þvi skulum við
láta þessi mál liggja milli hluta
hér.
— í mjög grófum dráttum má
þó segja, að skv. þessari kenn-
ingu er stöðug hringrás i efsta
hluta jarðmassans. Um mitt At-
lanzhaf (langsum) liggur
sprungubelti, þar á meðal um Is-
land eins og kunnugt er. tlt frá
þessum sprungum gliðnar jarð-
skorpan til beggja átta, til aust-
urs og vesturs, ofurhægt. Jafn-
framt eiga sér við og við stað gos
á þessum sprungum. Island
gliðnar þannig stöðugt, — og
stækkar.
— Ef miðað er við Afriku sem
fastan punkt, færist S- og N-Ame-
rikumeginlandið stöðugt i vestur.
I fyrndinni álita menn þannig, að
öll meginlönd heimsins i dag hafi
veriö ein samföst heild. Ef við lit-
um t.d. á útlinur S-Ameriku og
Afriku, þær sem saman snúa, sjá-
um við það þessi tvö meginlönd
falla saman eins og „pússluspil”.
Einnig styður likt gróðurfar og
berg á sömu breiddargráðu i
þessum tveim álfum þessa skoð-
un. .
— Svo ég snúi mér þá beint að
þeirri spurningu er þú beindir til
min, þá má segj, að við V-Indiur
ljúki hringrás jarömassans í
vestur út frá Mið-Atlanzhafs-
sprungunni. Jarðskorpan fleyg-
ast þar undir þá, sem þar er fyrir,
og samfara þvi verða einmitt
jarðskjálftar og eldgos. Þetta er
afargróf lýsing á flókinni og
hægri þróun, en látum þetta
nægja hér.
— Þar sem ég hafði rannsakað
jaröfræði Islands, langaði mig aö
rannsaka hinn enda hringrásar-
innar, þ.e. V-Indiusvæöið, og var
það ekki sizt ástæðan til þess, aö
ég afréö að halda þangaö vestur.
„Prófessorsstaða á
Rhode Island sem milli-
stig. stefni heim!”
Hvenær komstu heim til tslands
dr. Haraldur og hvað er næst á
döfinni hjá þér?
— Ég kom heim frá Trinidad i
mái i vor og hef undanfarnar vik-
ur ferðast um landið ásamt sviss-
neskum jarðefnafræðingi, Schill-
ing að nafni, og stundað rann-
sóknir. Hann hefur reyndar kom-
iö fram með allbyltingarkenndar
hugmyndir um jarðlög á Islandi,
sem ekki verður þó greint frá hér.
Nú svo er ég að fara til Sikileyjar
til rannsókna ásamt itölskum
prófessor og verð þar i mánuð.
— Siðan held ég aftur vestur til
Trinidad og starfa þar til ára-
móta næstu, en þá held ég til
Bandarikjanna, þar sem ég ræðst
sem prófessir við University of
Rhode Island. Hér er á margan
hátt um mjög aðlaðandi starf að
ræða, alla vega hvað mig snertir.
Einkum það, að ég fæ mjög rúm-
an tima til rannsókna. Ég get þvi
lokið rannsóknum minum i V-
Indium og einnig haldið áfram
rannsóknum á Islandi, en ég býst
við að koma hingað heim á sumr-
in.
— Á vegum þessa háskóla er
hafrannsóknarstofnun, sem er
allsérstæð, þar eð hún fæst við
rannsóknir á hafsbotninum, á
bergi. Einkum beinast rannsókn-
'irnar að þvi að kanna uppruna
berggrunns hafsbotnsins, m.a.
kringum Island. Eru þessar rann-
sóknir að nokkru tengdar
sprungurannsóknunum, sem
staðið hafa yfir undanfarin ár hér
á landi.
Liturðu á væntanlegt starf þitt i
Rhode Island sem framtiðarstarf
ef til vill?
— Nei. Ég lit eiginlega á það
sem „millistig”. Það veitir mér,
eins og ég sagði áðan, tækifæri til
að halda áfram og ljúka rann-
sóknum minum i Vestur-Indium
og jafnframt stunda rannsóknir á
Islandi og búa mig undir að flytj-
ast heim.
4—5 ár i velsældinni há-
mark.
Hvenær kæmirðu þá til með að
snúa alfarinn heim?
— Ef til vill á árinu 1975, vart
fyrr.
Nú hefurðu unað hag þinum á-
gætlega ytra og vegnað vel ekki
satt? Hvað er það, sem dregur þig
heim?
— Það er ef til vill einmitt það,
hve mér hefur liðið vel, einkum á
Trinidad, sem -ég óttast. Ég hef
minar „ambisjónir”, stefni að á-
kveðnu marki, auk þess sem
mann langar alltaf heim til föður-
landsins, þrátt fyrir allt og allt.
Hér heima vil ég stunda mitt höf-
uðáhugamál, jarðfræðina. Ég
„óttast”, að ef ég yrði of lengi úti i
velsældinni, myndi það „kæfa”
mig og hamla minu starfi á
margan hátt. Það er yndislegt að
vera i Vestur-Indium, en 4—5 ár
eru hámark. Verði maður lengur,
þýðir það allt sem eftir er ævinn-
ar, og þar með er að öllum likind-
um tekið fyrir frekari frama og
fjölbreyttni I starfi.
— Stp.
0 Menn og málefni
stæöisflokksins og i ljósi afstöðu-
leysis flokksins til þessara
tveggja mála, dregur þetta unga
fólk þá fáránlegu en samt á
margan hátt skiljanlegu ályktun,
ab Sjálfstæðisflokkurinn sé mál-
svari allra þeirra illu afla, sem
gott fólk berst nú gegn um allan
heim.
K: Haldiö þið, að ungt fólk aöhyll-
ist ekki stefnu Sjálfstæöisflokks-
ins i nógu riku mæli.
B: Ég held, að það geri það.
G: Ég held, að þab sé öruggt mál,
að þab geri þaðekki eða hvað seg-
ir þú Einar. Þú ert i menntaskóla
eins og ég.
E: Nei,nei, Sjálfstæðisflokkurinn
er eitur i beinum allra skóla-
manna.
R: Ekki segja skólamanna. Það á
ekki að vera að klina þessu á
skólamenn frekar en annað ungt
fólk. Annars er ég sammála þvi,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki tekið málefni, sem eru hita-
mál ungs fólks, nægilega á sina
dagskrá.
E: Það er ekki þetta, sem skiptir
máli. Við skulum gera okkur
grein fyrir þvi, að áróðurstaða
okkar hefur verið mikið veikari
nú siðustu árin og þá helzt vegna
þess, að við höfum verið stefnu-
laus i flestum aðalmálum. Og svo
hefur fræðslu- og kynningarstarf-
semi á okkar stefnumálum alveg
legið niðri.”
Hættulegt að
vera í við-
reisnarstjórninni
Og ennfremur segir blómi
Sjálfstæðisflokksins:
„K: Mér finnst, að það sé rangt,
að ungt fólk sé á einhvern hátt
meira til vinstri nú, en það hefur
verið áður. Þær skoðanir, sem ég
hef helzt orðið var við hjá ungu
fólki i dag, hérlendis og erlendis i
þessa átt, eru oft svo fjarstæðu-
kenndar, og þær eru vanalega
komnar i hring, þannig að þetta
eru raunverulega orðnir sterk-
ustu meðmælendur einstaklings-
frelsis, sem maður hittir. Aftur á
móti hefur það verið vegna aum-
ingjaskapar borgarlegra stjórn-
málamanna á Vesturlöndum, að
þetta fólk hefur hallað sér að
fangabúðarikjunum i austri, sem
er auðvitað alveg út i hött, þegar
litið er anúars vegar á það, sem
þau riki praktisera og hins vegar
til þess, sem þetta fólk boðar.
G: Hallar ungt fólk sér að Sovét-
rlkjunum og A.-Evrópu?
K: Ja, já, er það ekki?
K: Það er svo alveg rétt, að þetta,
sem á ljótri islenzku er kallaö
„kerfið”, hefur i fyrsta lagi tekið
völdin af fólkinu og i öðru lagi af
þessum svokölluðu lýðræðis-
kjörnu fulltrúum. Þetta rekur
ungt fólk sig á og það verður þá að
beina geiri sinum að einhverjum
og stjórnmálamennirnir og flokk-
arnir verða vanalega fyrir þvi.
Þannig er tilkomin þessi svokall-
aöa andstaða við stjórnmála-
mennina, sem ýmsir minnihluta-
hópar til vinstri ýta svo mjög
undir. Hvað varðar Sjálfstæðis-
flokkinn sérstaklega, þá var það i
fyrsta lagi hættulegt fyrir hann að
vera i viðreisnarstjórninni i 12 ár.
Það varð þó ekki verulega hættu-
legt, fyrr en ráðherrar Sjálfstæð-
isflokksins hættu að tala um
stefnu Sjálfstæðisflokksins og
fóru að tala um stéfnu rikisstjórn-
arinnar. Þá gleymdist stefna
flokksins og strax á fyrstu árum
viöreisnarstjórnarinnar hætti
flokkurinn aö móta sér nokkra
ákveöna hugmyndafræði. Hann
hélt þá bara áfram að vera i rikis-
stjórn. Þetta þýðir, að það verður
bil á milli þessara forystumanna
og þeirra manna, sem nú eru að
vaxa upp I flokknum, þannig að
eldmóðurinn úr gömlu Sjálfstæð-
ismönnunum hefur ekki færzt á
réttan hátt á milli kynslóðanna”.
Enga stefnu í
efnahagsmólum
Og nokkru siðar:
„B: Það er einmitt þaö, sem mér
finnst skipta meginmáli. Og nú,
þegar viö ætlum að fara aö
byggja upp iönaö, veröum viö að
gera okkur ljósa grein fyrir þvi,
hvaða hlutverki við ætlum rikis-
valdinu i þvi sambandi. Ég er
þeirrar skoðunar, að rikisbáknið
á Islandi sé orðið alltof mikið og
aðhaldið, sem rikisvaldið hefur
hér á landi, er svo til ekkert.
Hvenær sér maður rikisstofnanir
teknar reglulega vel i gegn?
E: En þáttur Sjálfstæðisflokksins
sjálfs i sambandi við rikisfyrir
tæki. Hann er ekki til fyrirmynd-
ar sannast sagna.
B: Ríkisreksturinn jókst ekki svo
litiö i tið viðreisnarstjórnarinnar.
G: Hver er þá afstaða Sjálf-
stæöisflokksins til hagkerfisins?
Er hann hlynntur þessu svokall
aða blandaða hagkerfi iðnaðar-
ins, sem við búum við, eða berst
hann fyrir auknu athafnafrelsi og
einkaframtaki i efnahags- og
atvinnulifinu?
K: Þetta er nú eitt bezta dæmið
um þaö, að flokkurinn veit ekki i
hvora löppina hann á að stiga.
Hann hefur enga fastmótaða
stefnu i efnahagsmálum aðra en
þá, aö hann heldur að visu áfram
að segja, að hann vilji efla ein-
staklingsframtakið og einstakl-
ingsfrelsið. En hann gerir einmitt
ekkert til að túlka þessa skoðun
sina i raun og laga hana að þeim
breyttu þjóðfélagsaðstæðum og
þeim breytingum, sem nú eru
fyrir hendi og átt hafa sér stað
siðan stefnan var mótuð.”
—TK.
0 Sovétríkin
stæðir, ekki mikið betur en erfið-
ismenn. Lifskjör þeirra eru, mjög
léleg, séu þau borin saman við
lifskjör menntamanna i
vestrænum löndum, sem svipuðu
þroskastigi hafa náð.
Þau þrúgandi kjör, sem
menntamenn verða að sætta sig
við eru og samfara ideólógiskri
undirokun og skapa andlegt
andrúmsloft, sem er mennta-
mönnum miður hagstætt. Stöður,
sem byggjast á gróðri menntun,
eins og stöður kennarastéttar-
innar, en hvergi hærri virtar aö
verðleikum.
Þetta óvinsamlega
andrúmsloft, sem mennta-
mennirnir mæta, hefur þau áhrif
á þá, að þeir leita annaðhvort, at-
hvarfs i einhverri þröngsýnni.
sérfræði eða byrja að lifa
einskonar tvöföldu lifi, öðru á
vinnustað hinu heima! Þeir segja
eitt á vinnustað, en annað i
kunningjahóp. heima, og þessi
klofna hugsun gerir þá að
hræsnurum og brýtur niður
siðferðisþrek þeirra og sköpunar-
gáfu. Fyrir þá, sem leggja stund
á hugvisindi, er þetta ennþá
þungbærara en fyrir tækni-
fræðingana. Þeim finnst öll sund
vera lokuð, og bækur þeirra eru
litlausar, opinberar, hátiðlegar, i
stuttu máli sagt: leiðinlegar.
SPURNING: Hafið þér á þessum
árum aldrei óttast um heilsu yðar
eöa frelsi?
SACHAROW: Nei, ekkert sér-
staklega, og þakka ég það annars
vegar skapgerð minni, en hins
vegar mjög mikilsvirtri stöðu,
sem ég var i, vonandi þarf ég
sjálfur þvi ekkert að óttast.
Nú óttast ég hins vegar vaxandi
þrýsting á fjölskyldu mina og á
ættingja konu minnar. Það yrði
mér þungbærast af þvi, sem ég
þykist sjá fram undan...
(ÞVTT ,UR VIKURITINU
DerSpiegel”, Hamborg).
A / Tíminn er 40 siöur
y « alla laugardaga og
1 \ sunnudaga.—
Askriftarsiminn er
0lp 1-23-23
0 Útlönd
Um skeið stundaði hann húsa-
byggingar i sunnanverðu
Quebec-fylki, en starfaöi siðan
viö rikisfyrirtæki, sem byggir
ódýr hús i norð-vestur fylkjum
Kanada og á Nýfundnalandi.
Gasson segist ávallt hafa
„borið smælingjann fyrir
brjósti” og þvi hafi ekki verið
nema eðlilegt, að hann hyrfi
úr opinberri þjónustu i fyrra
og gerðist starfsmaður Sam-
taka Kanadamanna til
aðstoðar innfæddum.
GASSON virðist hafa meiri
hug á að ná áheyrn þriggja
aöila, en að útbreiða birtar
tölur um illa aðstöðu Indiána.
Fyrsti aðilinn er skólayfir-
völdin. Annar er yfirvöld
fangelsismála, en Indiánar
eru hlutfallslega mjög fjöl-
mennir i fangelsunum og
Gasson berst fyrir þvi i
kyrrþey, að fá fangaverði til
þess að leika Indiána ekk.
verr en aðra fanga. Þriðji
aöilinn er svo starfslið blaða
og sjónvarps, sem birtir sifellt
sömu upplýsingar um
Indiána.
Þarna kann að vera að finna
skýringuna á þvi, hvers vegna
samtök Kanadamanna til
aðstoðar innfæddum gera sér
jafn mikið far um Jamesflóa-
framkvæmdina og raun ber
vitni og efna til andmælafunda
og sýna kvikmynd Richard-
sons. Þetta er hentugt efni til
þess að vekja athygli blaða-
manna. Þá er einnig auðveld-
ara að vekja hvitan Kanada-
mann i Ontario, eða Alberta til
samúðar með Job Bearskin og
Billy Diamond Cree-böfðingja
og 800- öðrum Indiánum eða
Inuit-Eskimóum i norður-
hluta Quebec-fylki, en aö
vekja slikan áhuga með
ópersónulegum tölum.
Staðreyndirnar tala að visu
sinu máli, en þeim liggur ekki
hátt rómur fyrr en að búið er
að finna táknrænan hóp
manna, sem allir geta augum
litið. Þetta gerðu Rhodesiu-
menn þegar þeir ráku höfð-
ingjann Reyaki og Tangwena-
ættflokkinn af landi sinu með
hersveitum og þyrlum.
Atburðirnir við Særthné vöktu
Bandarikjamenn til umhugs-
unar. Deilurnar um fram-
kvæmdirnar við Jamesflóa
kunna að verða Indiánum i
Kanada til góðs þegar til
lengdar lætur.
allir kaupa
hringana hjá
BAIXDÓBI
Skólavörðustlg 2
k KALT BORD'S
S IHADEGINU SS
BLÓMASALUR
LOFTLBÐIR
KVOLDVfRÐUR f RA KL 7.
BORÐAPANTANIR I SIMUM
22JJ1 2?122
BORÐUM HA( DIÐ III KI 9
VÍKINGASALliR