Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 27
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 232 stk. Keypt & selt 49 stk. Þjónusta 45 stk. Heilsa 14 stk. Skólar & námskeið 5 stk. Heimilið 19 stk. Tómstundir & ferðir 13 stk. Húsnæði 50 stk. Atvinna 35 stk. Tilkynningar 4 stk. Góðan dag! Í dag er laugardagurinn 21. ágúst, 234. dagur ársins 2004. Reykjavík 5.38 13.31 21.22 Akureyri 5.14 13.15 21.15 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag „Ég á Opel Astra 2003 og það besta við hann er að það er ennþá ný bílalykt í honum. Það er alveg æðislegt. Síðan spillir ekki fyrir að hann er bara ekinn tveggja stafa tölu,“ seg- ir Magni Ásgeirsson, söngvari í hljómsveit- inni Á móti sól. „Mér finnst bíllinn minn gjörsamlega frábær því ég hef aldrei átt svona nýjan bíl. Ég hef alltaf verið á strákabílum eins og tveggja dyra Corollu í einhverri vitleysu með alltof mörg hestöfl. Núna passaði ég mig á því að kaupa frekar kraftlítinn bíl svo ég myndi ekki freistast til að keyra alltof hratt eins og vitleysingur. Mér líður eins og karli en ég þarf allavega ekki að hafa áhyggjur af hraðaksturssektum,“ segir Magni um þennan sannkallaða draumabíl. „Ég keypti hann glænýjan þegar hann var bara keyrður tæplega þrjátíu kíló- metra. Það var ótrúlega gaman að ná í hann. Mjög skemmtilegt að keyra út úr umboðinu á bíl sem varla er búið að keyra,“ segir Magni sem notar þó bíllinn minna til gam- ans en alvöru. „Er maður ekki alltaf í bíl hér í borginni? Ég er alltaf á ferðinni en ekki uppá djókið,“ segir Magni en hann not- ar bíllinn til að komast á milli staða í sinni vinnu meira en að rúnta um borg og bæ – eins og flestir. Þó að bíllinn hafi gjörsamlega heillað Magna og margt sé ómissandi í honum þá er það bílalyktin sem hefur vinninginn. „Nýja bílalyktin er gjörsamlega yndisleg. Ég hef aldrei kynnst henni áður.“ lilja@frettabladid.is Keyrði alltaf um á strákabílum: Líður nú eins og karli bilar@frettabladid.is Hyundai Getz, Mazda 232, MG ZT/ZT-T, Toyota Corolla og Toyota Corolla Verso urðu í efsta sæti gæðakönnunar breska neytenda- blaðsins Which? Allir þessir bílar reyndust áreiðanlegastir með enga bilun. Könnunin er árlegur liður hjá Which? og verða niðurstöður könn- unarinnar birtar í heild sinni í sept- embertölublaði ritsins. Könnunin fór fram í janúar á þessu ári og var spurningalisti sendur til 80.000 manna sem valdir voru af handa- hófi úr hópi áskrifenda blaðsins. 34.277 svör skiluðu sér og náðu til 150 mismunandi bílgerða og voru þær elstu allt að átta ára gamlar. Spurt var um bilanir í þremur mis- munandi liðum sem skiptust í óökufærni, galla og umkvartanir. Í neðstu sætum í könnuninni voru Rover 25, Seat Leon, VW Polo, Mercedes E-class og Audi TT. Master ehf. Í Glæsibæ býður nýtt og betra verð á nýjum Subaru For- ester XT árgerð 2004 þessa dag- ana. Bíllinn er vel útbúinn og verð- ur hann fáanlegur með eða án leð- ursæta. Allir bílarnir eru sjálfskiptir og verða til í nokkrum litum. Staðal- búnaður í bílunum er til dæmis ABS hemlabúnaður, hraðastillir, glersóllúga, loftkæling, upphituð framsæti, útvarp með geislaspilara og rafdrifnar rúður svo eitthvað sé nefnt. Innifalið í verði er ryðvörn og nýskráning. GM Daewoo hefur nú kynnt nýj- an bíl, Lacetti, á evrópskum mark- aði. Bíllinn er fimm dyra hlaðbakur og annar bíllinn í röðinni í nýrri línu bifreiða frá GM Daewoo. Þriðji bíll- inn er rétt ókominn en það er Nu- bira station. Nýi Lacetti bíllinn er mjög rúmgóður og einn sá stærsti í sínum flokki. Afturrýmið er einstak- lega mikið og er bíllinn hannaður af Giugiaro á Ítalíu. Hann er búinn ríkulegum öryggisbúnaði og líflegri fjögurra sylendra vél. Vélin er 1,8 lítra og skilar 122 hestöflum en bíl- ana er bæði hægt að fá sjálfskipta og beinskipta. Umboðsaðili Dae- woo bíla á Íslandi er Bílabúð Benna. Magni Ásgeirsson er alveg himinlifandi með bílinn sinn og finnst lyktin í honum allra best. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í BÍLNUM Yamaha Banshee 350 2cyl, 2stroke, 6 gíra, síðan í maí 2004. Gríðarlega öflugt kvikindi. Verð 860.000 kr. Uppl í síma 823 6289. Thomson TTV 3560P videocasset play- er. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 440 4434 og á www.solutorg.is Rafmagnsspaði fyrir skordýr! Hentugt til að drepa t.d. geitunga, kön- gulær, silfurskottur ofl. Verð kr. 4500- Pantanir sendist á varnir@simnet.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. Í dag eru 1.614 smáauglýsingar á www.visir.is 27 (01) Allt forsíða 20.8.2004 16:48 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.