Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 53
DSC-P93 5.1 milljón pixlar PictBridge (USB Direct Print) MPEG Movie VX með hljóði 44.950 krónur DSC-P73 4.1 milljón pixlar PictBridge (USB Direct Print) MPEG Movie VX með hljóði 39.950 krónur DSC-P43 4.1 milljón pixlar 3 x stafrænn aðdráttur MPEG Movie VX með hljóði 29.950 krónur Opið alla helgina Glæsilegur aukahlutapakki með Sony myndavélum*. Pakkinn inniheldur tösku utan um vélina, hleðslurafhlöður og hleðslutæki sem tekur fjórar rafhlöður í einu. Þessi pakki kostar venjulega 9.995 en er á tilboði með myndavél- unum á aðeins 1.995,- *Fylgir með DSC-P43, DSC-P73, DSC-P93á 1.995 krónur Aukahlutapakki á tilboði! ÓLYMPÍULEIKAR Carly Patterson frá Bandaríkjunum sigraði í fjölþraut kvenna í fimleikum á Ólympíu- leikunum í Aþenu. Carly, sem er aðeins sextán ára gömul, bar höfuð og herðar yfir aðra kepp- endur og varð núverandi heims- og Evrópumeistari, Svetlana Khorkina frá Rússlandi, að láta sér lynda annað sætið. Patterson var að vonum ánægð með árang- urinn. „Ég hef æft alla ævi til að ná Ólympíutitli þannig að þetta er mér mikils virði“ sagði Patterson. Tuttugu ár eru liðin síðan að Bandaríkjamenn sigruðu í þessari grein en það var Mary Lou Retton sem það gerði. Hún var hæst- ánægð með Patterson og sagðist hafa beðið eftir þessu í langan tíma. „Nú getum við krýnt nýja stjörnu. Gjörðu svo vel Carly,“ sagði Mary Lou Retton. ÆTLAR Á NÆSTU LEIKA LÍKA Ragn- heiður Ragnarsdóttir synti síðasta sund Íslendinga á leikunum í Aþenu. Fréttablaðið/E.Ól. Ragnheiður Ragnarsdóttir: Hefði ör- ugglega bætt metið ÓLYMPÍULEIKAR Íslenska sundfólkið hefur lokið keppni á Ólympíuleik- unum í Aþenu en Ragnheiður Ragnarsdóttir var síðasti þátt- takandi Íslands í sundkeppninni er hún tók þátt í 50 metra skrið- sundi í gærmorgun. Ragnheiði gekk ákaflega illa í 100 metra skriðsundinu og var fjarri sínu besta en sundið hjá henni í gær var mun betra. Ragnheiður kom í mark á 26,36 sekúndum sem er aðeins tveim hundruðustu úr sekúndu frá Ís- landsmeti hennar. Þessi tími dugði henni ekki inn í undanúrslit en hún hafnaði í 31. sæti af 73. keppendum. „Þetta var mjög fínt og ég hafði bara gaman af þessu,“ sagði Ragnheiður og bætti við að hún hefði lært af reynslunni frá því í fyrra sundinu á leikunum. „Mér líður miklu betur að hafa bætt fyrir fyrra sundið. Það tók svo- lítið á mig að hafa klúðrað því svona en það var aðallega vegna skrekks og því er gaman að hafa náð að standa mig vel núna. Mér leið vel þegar ég labbaði inn núna og var bara í góðu skapi. Þetta var hörkugaman.“ Eins og áður segir var Ragnheiður ekki fjarri því að bæta Íslandsmetið en þetta var engu að síður hennar besti tími að morgni til. „Ef ég hefði synt aftur í kvöld þá hefði ég örugglega bætt metið,“ sagði Ragnheiður og hló dátt. henry@frettabladid.is FÖGNUÐUR Carly Patterson fagnar hér Ólympíugullinu ásamt þjálfara sínum. Óvænt úrslit á ÓL: Sextán ára meistari LAUGARDAGUR 21. ágúst 2004 41 52-53 (40-41) Sport 3 20.8.2004 20:45 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.