Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 50
ÓLYMPÍULEIKAR Það hefur verið mikil
vinnsla í íslenska liðinu í fyrstu
þrem leikjunum á ÓL og liðið virk-
aði á köflum gegn Kóreu eins og
það væri að verða bensínlaust.
Sú barátta og grimmd sem ein-
kenndi leik liðsins í fyrstu leikjun-
um var ekki til staðar í gær. Vakn-
ar því óneitanlega sú spurning
hvort liðið sé að verða bensínlaust.
Þeirri spurningu verður svarað í
leiknum gegn Rússum. Leikurinn
fór fram kl. 9.30 að staðartíma og
það var ekki margt um manninn í
Pavilion-höllinni þegar leikurinn
byrjaði.
Ágæt byrjun í leiknum
Liðin virkuðu bæði mjög þreytt
til að byrja með enda léku Kóreu-
búarnir ákaflega hægt. Þeir náðu
þó 2-0 forystu en þá rankaði ís-
lenska liðið við sér, skoraði þrjú
mörk í röð og tók forystuna. Það
hélt þeirri forystu allt þar til tíu
mínútur voru eftir af fyrri hálf-
leik. Í stöðunni 11-11 komu fjögur
mörk frá Kóreumönnum í röð og
þeir héldu þriggja marka forystu í
leikhléi, 16-13.
Íslenska liðið var síðan í stans-
lausum eltingarleik í síðari hálf-
leik. Þrisvar sinnum náði það að
minnka muninn í eitt mark en þá
stigu Kóreumenn á bensínið á ný,
enda virtist nóg vera á tanknum
þeirra, og náðu 3-4 marka forystu
á ný. Þetta er saga síðari hálfleiks-
ins og Kórea vann sanngjarnan
fjögurra marka sigur þegar upp
var staðið. Ólafur Stefánsson var
yfirburðamaður í íslenska liðinu í
leiknum þótt hann hefði verið
nokkuð seinn í gang. Hann sýndi
vilja til þess að vinna leikinn en
því miður virtust félagar hans
ekki finna þann neista sem Ólafur
hafði í síðari hálfleiknum. Sigfús
komst vel frá sínu sem og Garcia í
sókninni en hann var afleitur í
vörninni. Aðrir leikmenn voru
langt frá sínu besta. Róbert var
heillum horfinn á línunni og náði
ekki að fylgja eftir góðri frammi-
stöðu gegn Slóvenum. Guðjón Val-
ur náði aldrei takti við leikinn og
ekki heldur Snorri Steinn. Þegar
þessir lykilmenn ná sér ekki á
strik er ekki við góðu að búast.
Engin markvarsla
Eitt helsta áhyggjuefnið er þó
markvarslan. Hún hefur verið
langt frá því að vera viðunandi á
þessu móti og virðist sem Guð-
mundur þjálfari hafi veðjað á vit-
laust par til þess að fara til Aþenu.
Það verður ekkert tekið frá
Kóreumönnum í þessum leik enda
eru þeir með skemmtilegt og létt-
leikandi lið. Þeir eru samt ekkert
betri en íslenska liðið og með álíka
leik og gegn Slóvenum hefði þessi
leikur unnist.
Svo virðist sem Slóvenaleikur-
inn hafi verið undantekning frá
reglunni því íslenska liðið var far-
ið að glíma við sömu gömlu draug-
ana í gær sem eru markvarsla,
nýting dauðafæra og að ráða ekki
við að leiða leiki. Þessa drauga
þarf að hrekja á brott hið fyrsta
því annars er ekki hægt að búast
við hagstæðum úrslitum gegn
Rússum. henry@frettabladid.is
38 21. ágúst 2004 LAUGARDAGUR
Bensíntankurinn að tæmast?
Íslenska handboltalandsliðið virkaði þreytt og þunglamalegt þegar það tapaði fyrir Kóreu, 34-30, í
gær. Stanslaus eltingarleikur. Lykilleikmenn náðu sér ekki á strik og markvarslan var skelfileg.
ÓLYMPÍULEIKAR „Það er einn leikur eft-
ir og við verðum að klára hann.
Þetta er ekki búið,“ sagði niðurlút-
ur landsliðsþjálfari Íslands, Guð-
mundur Guðmundsson, eftir leik-
inn en hann var alveg klár á því
hvað hefði vantað í íslenska liðið í
leiknum. „Mér fannst klárlega
vanta meiri grimmd í liðið. Ég verð
að játa það. Við vorum ekki nógu
grimmir, hvorki í vörn né sókn.“
Enn og aftur lenti íslenska liðið í
því að vera í vandræðum með að
leiða leiki og var lengstum í kunn-
uglegum eltingarleik.
„Það ætlar að vera erfitt að yfir-
stíga þennan þröskuld. Við fengum
tækifæri í dag og ég hafði sjálfur á
tilfinningunni að það væri aðeins
tímaspursmál hvenær við færum
3-4 mörkum yfir. Færin komu en
það er ekki hægt að klúðra svona
svakalega miklu af færum. Á móti
góðum liðum gengur þetta ekki.
Þetta er ansi veigamikill þáttur og
er viðloðandi vandamál,“ sagði
Guðmundur en markvarslan sveik
hann eina ferðina enn og þar að
auki var vörnin ekki að spila eins
vel og áður í keppninni.
„Markvarslan var mjög tak-
mörkuð og varnarleikurinn var
bara ekki nægilega grimmur. Ég
reyndi að rótera liðinu eins og ég
gat til þess að finna lausnir. Við
nýttum breiddina en það bara gekk
ekki.“ Það er enn von fyrir íslenska
liðið en það verður að bæta leik
sinn ansi mikið frá þessum leik ef
það ætlar sér að leggja Rússana að
velli.
„Það er okkar að nýta þetta
tækifæri og ég vil ekki vera með
miklar yfirlýsingar fyrir þann leik
því það er okkar að láta verkin
tala á vellinum og sýna í verki úr
hverju menn eru gerðir. En þessi
úrslit eru gríðarleg vonbrigði. Það
er ekki nokkur spurning um það.“
henry@frettabladid.is
Guðmundur Guðmunds-
son landsliðsþjálfari:
Þetta er
ekki búið
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Guðmundur Guðmundsson var að vonum ekki sáttur við
ganga mála í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
ÍSLAND–KÓREA 30–34 (13–16)
Leikmenn Mörk/víti–Skot (stoðs.)
Ólafur Stefánsson 10/4-11/4 (7)
Jaliesky Gracia Padron 6-10 (1)
Sigfús Sigurðsson 5-5 (1)
Guðjón Valur Sigurðsson 3-6 (2)
Gylfi Gylfason 3-6 (1)
Rúnar Sigtryggsson 1-1 (1)
Dagur Sigurðsson 1-2 (2)
Snorri Steinn Guðjónsson 1-4 (2)
Einar Örn Jónsson 0-1 (0)
Róbert Gunnarsson 0-3 (0)
Markverðir Varin/víti–Skot (hlutfall)
Guðmundur Hrafnkelss. 4-18/1 (22%)
Roland Valur Eradze 9-29/4 (31%)
TÖLFRÆÐIN ÍSLAND–SPÁNN
Hraðaupphlaupsmörk: 8–5 (Garcia 3,
Sigfús, Gylfi, Guðjón, Snorri, Rúnar).
Vítanýting (fiskuð): 4 af 4 (Guðjón 2,
Sigfús, Snorri Steinn).
Varin skot í vörn: 5–1 (Sigfús 2, Ólafur
2, Guðjón Valur). Tapaðir boltar: 19–12
Brottvísanir (í mín): 6–8 (Sigfús rautt).
Guðjón Valur Sigurðsson er búinn að
vera inni á vellinum í allar 240 mínúturn-
ar sem ísland hefur spilað á leikunum.
Guðjón Valur meiddist eftir 14 mínútna
leik í leiknum í gær en harkaði af sér og
kláraði leikinn án þess að fara útaf. Hann
hefur heldur aldrei verið rekinn útaf í
tvær mínútur.
50-51 (38-39) Sport 2 20.8.2004 20:00 Page 2