Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 8
8 21. ágúst 2004 LAUGARDAGUR WASHINGTON, AP Edward Kennedy er einn frægasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna en það dugar ekki til að koma í veg fyrir að honum sé ruglað saman við hryðjuverkamann og lendi þar af leiðandi í vandræðum með að ferðast með flugi innan Bandaríkjanna. Kennedy sagði frá því við þing- yfirheyrslur að honum hefði fimm sinnum verið meinað að kaupa flug- miða eða fara um borð í flugvél. Fyrstu þrjú skiptin fékk hann engar skýringar en fékk loks að fljúga eftir að yfirmenn á flugvöllum hleyptu honum í gegn. Þegar aðstoðarfólk hans leitaði skýringa hjá flugörygg- isstjórn kom í ljós að á lista yfir grun- aða hryðjuverkamenn væri maður sem notar dulnefni sem svipar til nafns öldungadeildarþingmannsins. Þrátt fyrir að flugöryggisstjórn lof- aði að kippa málum í lag hefur hann tvívegis verið stöðvaður síðan. „Ef þeir lenda í þessum vandræð- um með öldungadeildarþingmann, hvernig í ósköpunum á þá venjuleg- ur Bandaríkjamaður sem lendir í þessu að fá sanngjarna meðferð og sleppa við að brotið sé á rétti hans?“ spurði hann einn yfirmanna heima- varnarmála. Sá benti fólki á að hafa samband við umboðsmann flug- öryggisstjórnarinnar. ■ ÍRAK, AP Vopnaðir fylgismenn sjíaklerksins Muqtada al-Sadr fjarlægðu í gær vopn sín úr mosku Imam Ali í Najaf þar sem þeir hafa hafst við meðan á tvegg- ja vikna uppreisn þeirra hefur staðið. al-Sadr hafði þá fyrirskip- að þeim að láta moskuna af hendi við trúarleiðtoga sjíamúslima og hafði Ali al-Sistani, helsti trúar- leiðtogi sjíamúslima, samþykkt að taka ábyrgð á moskunni. Blaðamenn á vettvangi sögðu að þegar komið var fram á kvöld hafi engin vopn verið eftir í mosk- unni. Þar hafi aðeins verið óvopn- aðir meðlimir Mahdisveita al-Sa- drs og óbreyttir borgarar. Af og til mátti þó heyra skotbardaga geysa í nágrenni moskunnar. Inn- anríkisráðherrann Sabah Kadhim sagði lögreglu hafa haldið inn í moskuna og handtekið 400 vopn- aða vígamenn. Þetta sögðu blaða- menn að stæðist ekki. Enginn lög- reglumaður hefði stigið fæti inn í moskuna og þaðan af síður hefðu handtökur átt sér stað í henni. Talsmaður al-Sadr sagði að vopnaðir vígamenn Mahdisveit- anna hefðu tekið sér stöður í gömlu borginni í Najaf og að þar myndu þeir halda áfram baráttu sinni gegn Bandaríkjaher og írösk- um samverkamönnum þeirra. Harðir bardagar áttu sér stað í Najaf í fyrradag og frameftir morgni í gær. Um hádegisbilið sögðu írösk yfirvöld að 77 manns hefðu látist og 70 slasast í átökun- um á þessum tíma. Aðstoðarmaður al-Sadrs fluttu ræðu hans við messu í Kufamosk- unni, nærri Najaf. Þar réttlætti al- Sadr að vígamenn sínir hefðu leit- að sér skjóls í helgidómi Imam Ali. Margir hafa orðið til að gagnrýna það framferði vígamannanna þar sem með því hafi þeir aukið hætt- una á að moskan yrði fyrir skemmdum. „Eru þeir sem finna sér skjól í helgidómnum sekir og þeir sem varpa sprengjum á hann heiðvirðir?“ spurði al-Sadr í gegn- um aðstoðarmann sinn. ■ SVONA ERUM VIÐ FJÖLDI VERKEFNA STARFSMANNA UMFERÐAR- DEILDAR RÍKISLÖGREGLU- STJÓRA ÁRIÐ 2003 Of hraður akstur 508 Ökuskírteini ekki meðf. 107 Önnur umferðarlagabrot 1.246 Önnur brot og verkefni 867 Samtals 2.728 HEIMILD: ÁRSSKÝRSLA RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA 2003 JÁKVÆTT NÁMSKEIÐ UM HJÓNABAND OG SAMBÚÐ. 9. VETURINN Í RÖÐ. Mánudaginn 23. ágúst hefst skráning á hið feikivinsæla hjóna og sambúðarnámskeið Hafnarfjarðarkirkju. Námskeiðin eru ætluð öllum sem eru í hjónabandi eða sambúð, ekki aðeins þeim sem eiga við vandamál að stríða, heldur hinum líka sem vilja styrkja samband sitt. Á námskeiðunum er fjallað um væntingar, vonir og vonbrigði í sambúðinni, gleðina, húmorinn, kynlífið og auðvitað ástina. Fyrst og fremst er rætt um þær leiðir sem hægt er að fara til að til þess að fyrirbyggja deilur og samskiptaörðugleika í sambúð og hvernig styrkja má innviði fjölskyldunnar. Þátttakenndur geta skráð sig í einkaviðtöl mánuði eftir að nám- skeiðinu lýkur, þyki þeim þörf þar á. Einnig er vísað til annarra fagaðila er geta veitt nánari stuðning, sé þess óskað. Námskeiðið fer fram í formi samtals milli þátttakennda og leið- beinanda þar sem pörin eru m.a. látin vinna ýmis verkefni, hvert fyrir sig. Kennd er hjónaslökun. Enginn þarf að tjá sig frekar en hann vill. SKRÁNINGARSÍMI ER 8917562. Leiðbeinandi á námskeiðunum er sr. Þórhallur Heimisson, prestur Í Hafnarfjarðarkirkju, en hann samdi einnig námsefnið. Vínuppboð á vegum Globus hf. í tengslum við Menningar- nótt, í dag kl. 16.00 Boðin verða upp fjölmörg gæðavín sem mörg eru sjaldséð og illfáanleg hér á landi. Vínsmökkun milli kl. 15:00 og 16:00. Smökkunargjald er aðeins 1.500 kr. Ekkert kostar að taka þátt í uppboðinu. Sérstakur menningarmatseðill í kvöld með eða án eðalvína á mjög hóflegu verði. Tekið verður á móti öllum matargestum báða dagana með glasi af hinu margrómaða kampavíni Veuve Clicquot Ponsardin -Brut. Vínsmökkun og vínuppboð á Menningarnótt á Hótel Holti Frægur öldungadeildarþingmaður í vandræðum með að ferðast: Ruglað saman við hryðjuverkamann BEÐIÐ EFTIR FLUGI Fjöldi fólks hefur lent í vandræðum vegna þess að nöfnum þess svipar til nafna meintra hryðjuverkamanna. Helgidómurinn yfirgefinn Mahdisveitir Muqtada al-Sadr fjarlægðu öll vopn sín úr mosku Imam Ali eftir að samkomulag náðist við helsta leiðtoga sjíamúslima um að hann tæki að sér stjórn og umsjón moskunnar. SKÝLA SÉR FYRIR SKOTHRÍÐ Bardagar héldu áfram fram eftir morgni í gær og lítið eitt fram eftir degi. Þessir bandarísku hermenn þrýstu sér að jörðu til að forðast skothríð Mahdisveita Muqtada al-Sadr. 08-09 20.8.2004 20:35 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.