Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 62
Marga er farið að þyrsta í að vita
hvað jólabókaflóðið ber á fjörur
okkar þetta árið enda bókaáhugi
þjóðarinnar með eindæmum
mikill. Spurst hefur af einstaka
bókum sem væntanlegar eru í
búðir með vetrinum en fátt gert
opinskátt um efni þeirra og inni-
hald.
Edda útgáfa hyggst slökkva
sárasta þorstann á Menning-
arnótt í kvöld og hefur stefnt
nokkrum úrvalshöfundum
saman í Iðu þar sem þeir
munu lesa upp úr nýj-
um, óútkomnum verk-
um.
Viðbúið er að
áhugafólk um bók-
menntir komi sér
huggulega fyrir í Iðu
með kaffi eða jafnvel rauð-
vínsglas í hönd og hlýði af
óspilltri athygli á höfundana
lesa í fyrsta sinn upp úr bókun-
um. Það er nefnilega eins og að
bragða á nýjum íslenskum kart-
öflum löngu áður en uppskeran
er komin í hús þegar rithöfundar
leyfa fólki að heyra úr óútkomn-
um verkum, þó ekki sé nema
um stutta lesningu að ræða.
Í hópi rithöfunda og ljóð-
skálda sem lesa í Iðu í kvöld
eru Birna Anna Björnsdóttir,
Einar Már Guðmundsson, Hauk-
ur Ingvarsson, Kristín Steins-
dóttir, Stefán Máni, Þórarinn
Eldjárn og Þorsteinn Guðmunds-
son.
Lítið er vitað um innihald
verkanna en þó hefur spurst út
að Stefán Máni byggi sögu sína
Svartur á leik að hluta til á
reynslusögum íslenskra fanga.
Á milli 14 og 18 verður barna-
dagskrá í Iðu þar sem fjölmarg-
ir barnabókahöfundar lesa úr
bókum sínum, bæði fyrir börnin
og hina fullorðnu. ■
Smakkað á nýmeti
bókmenntanna
50 21. ágúst 2004 LAUGARDAGUR
... fær íslenska landsliðið fyrir að
sigra Ítala í knattspyrnu og sýna
að það er alveg hægt að sigra þá
stóru.
HRÓSIÐ
MENNINGARNÓTT
HÖFUNDAR LESA
■ úr væntalegum bókum
í Iðu á Lækjartogi
Draumurinn þinn !
Þú styrkir Umhyggju,
félag til stuðnings
langveikum börnum með
1.000 kr framlagi
Harley Davidson klúbburinn
"Chapter Iceland" gefur þér
síðan kost á ökuferð.
Hjólað verður milli kl.12 til 15 í dag fyrir framan
Laugardalshöllina. Tilvalið að byrja daginn á Harley
ökuferð, með reyndum ökumönnum.
Hlökkum til að sjá þig og þína. Chapter Iceland.
H a r l e y - D a v i d s o n
KlinK&BanK
Samsýning 13 alþjóðlegra myndlistarmanna frá Lundúnum
Opnar í dag að Brautarholti 1 kl.17.00
VARNINGUR OG UPPÁKOMUR · Húsið opnar kl. 14 með markaði í BERLÍN
Marcus Verhagen heldur fyrirlestur sunnudaginn 22.ágúst kl.20.00 um samtímalist
Hljómsveitin SCHPILKAS með söngkonunni Ragnheiði Gröndal frá kl 21.30 sama kvöld
SÍ‹UMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
tækniKomdu og prófaðu!
Danmörk 0 kr/minSvíþjóð 0 kr/min
Holland 0 kr/min
Þýskaland 0 kr/minJapan 0 kr/min
England 0 kr/min
Ísland 0 kr/minBandaríkin 0 kr/min
ALLSTAÐAR 0 KR/MIN AÐ HRINGJA
ÍSÖLD Í REYKJAVÍK
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON SKRIFAR UM SKEMMTILEGA FÓLKIÐ
Þorsteinn Erlingsson skáld hristir
mig og segir mér að fara á fætur.
Það er undarleg tilfinning að horfa
upp á svona skeggjaðan mann á
rúmstokknum en hann er svo mikill
dýravinur að það er ekki hægt að
vera smeykur við hann. Svo angar
hann af grasi og það er þægilegt.
Þetta er snemma morguns og kom-
in menningarnótt.
Úti í garðinum stendur Raggi
Bjarna og syngur. Ég færi borðið
nær glugganum þannig að við get-
um fylgst með honum á meðan við
borðum morgunmatinn, hann slær
samstundis í gegn hjá allri fjöl-
skyldunni. Hann er með tvö lítil
börn í SilverCross vagni, þau
standa fyrir hljómsveitina Nylon.
Ég flýti mér út í góða veðrið.
Fyrir neðan tröppurnar stendur
Halldór Laxness og segir Guðbergi
Bergssyni brandara. Halldór er í
flippstuði en Guðbergur er ekki
viss um hvort hann eigi að hlæja
eða sýna honum smá attitjút. Dagur
Sigurðarson er að njósna um þá og
best að hafa kúlið á hreinu. Ég
smeygi mér framhjá og hraða mér
niður í bæ til þess að hlusta á Purrk
Pillnikk, Björk er ólétt í mínípilsi og
mig langar að sjá framan í Bríeti
Bjarnhéðinsdóttur, hvernig líst
henni á svona framkomu, kerling-
unni.
Ég fæ mér nokkra bjóra með
Jónasi Hallgrímssyni og rölti svo út
í Tívolí. Bryndís Schram er að
keppa í fegurðarsamkeppni og
Bessi Bjarnason er kynnir. Ég fer
nokkra hringi í Parísarhjólinu með
Röggu Gísla og æskuástinni, Hönnu
Valdísi. Hún er yndisleg en ennþá
tólf ára þannig að ég segi bless og
rölti aftur niður í bæ.
Við Gvendur dúllari fáum okkur
kaffi á Borginni og horfum á Helga
Hóseasson henda skyri í alþingis-
menn. Þeir taka því bara vel, allir
nema Jón Sigurðsson sem tekur
æðiskast, okkur öllum til skemmt-
unar. Það er óendanlega fyndið að
sjá hann æsa sig og skrækja eins og
unglingsstelpu.
Þegar við erum öll dauð og ísöld
ríkir á jörðinni, hittast allir
skemmtilegir í Reykjavík, hinum
megin, þar sem við getum notið
þess besta sem Reykjavík hafði upp
á að bjóða. ■
Þorsteinn stefnir á að hitta alla
þá skemmtilegustu í Reykjavík, að
minnsta kosti að lokum.
■
HELGARPISTILLINN
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Kísiliðjan í Mývatnssveit.
Ríkisstjórn Medgyessys í Ung-
verjalandi.
Frá spænska sendiráðinu í Sao
Paulo í Brasilíu.
BIRNA ANNA BJÖRNSDÓTTIR
Hún er í hópi rithöfunda sem lesa upp úr
óútkomnum bókum sínum í Iðu í kvöld.
62-63 (50-51) Fólk aftasta 20.8.2004 20:50 Page 2