Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 21. ágúst 2004 AF NETINU Costa del Sol Sóla rlottó Komd u út í Plús! • Þú velur áfangastað og ferðadag og tekur þátt í lottóinu um hvar þú gistir. • Viku fyrir brottför staðfestum við gististaðinn. Sama sólin, sama fríið en á verði fyrir þig. *Innifalið er flug, gisting í 7 nætur, ferðir til og frá flugvelli erlendis, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. á mann miðað við 2 eða 4 í stúdíói eða íbúð. Enginn barnaafsláttur. Spilaðu með! Krít 6. og 13. september Costa del Sol 1. 8. og 15. september Portúgal 31. ágúst, 7. 14. og 21. sept. Benidorm 1. 8. 15. og 22. september Dugnaðarforkar í einkaframkvæmd Á Nýsi hf starfa dugnaðarforkar. Þeir hafa verið iðnir við skýrslugerð og ráðgjöf, ekki síst fyrir sveitarfélögin í landinu. Nýsir ráð- leggur þeim hvernig best sé að ráðstafa al- mannafé. Niðurstaðan er iðulega á þann veg að einkaframkvæmd sé eftirsóknar- verð. Þar eru hins vegar ekki allir á einu máli og hefur komið fram í rannsóknum að einkaframkvæmd hefur yfirleitt reynst dýr kostur fyrir skattborgarann. Hins vegar hefur einkaframkvæmd þjónað hagsmun- um fjárfesta sem fengið hafa opinbera starfsemi í sína umsjá. Og hverjir skyldu nú vera harðdrægastir á þessum markaði? Það er einmitt ráðgjafinn og einkafram- kvæmdaraðilinn Nýsir hf. Í gær var sagt frá því að Nýsir hefði keypt Egilshöllina, íþróttamannvirkið í Grafar- vogi. Í gögnum frá fyrirtækinu kemur fram að það hefur nú fengið til einkafram- kvæmdar fjöldann allan af opinberum stofnunum. Nýsir hf er eigandi og rekstrar- aðili fasteigna Iðnskólans í Hafnarfirði, Íþróttamiðstöðvarinnar Bjarkar, Lækjar- skólans í Hafnarfirði og leikskóla í Hafnar- firði og Grindavík. Ögmundur Jónasson á ogmundur.is Frá Skotveiðifélagi Íslands hefur eftirfarandi athugasemd borist: Fimmtánda ágúst síðastliðinn var umfjöllun í fréttatíma Ríkisútvarpsins um veiðar skot- veiðimanna á hrossagauk, lóu og spóa. Einnig var sagt í fréttatímanum að það tíðk- aðist að gæsaveiðimenn skytu þessa fugla og matreiddu í veiðiferðum sínum. Skotveiðifé- lag Íslands lýsir furðu sinni á þessum frétta- flutningi. Félagið hefur heimildir fyrir því að veiðar á áðurnefndum fuglategundum séu fáheyrðar. Félagið hefur kannað þessi mál í tvígang, árið 1999 og nú síðast í ár, og hefur nánast engar heimildir fyrir veiðum af þessu tagi. Íslenskir skotveiðimenn eru almennt heiðarlegir og fara eftir settum reglum. Félag- ið hefur ekki heimildir fyrir því að veiðimenn hafi verið kærðir fyrir veiðar á hrossagauk, lóu eða spóa. Frétt Ríkisútvarpsins er því al- gjörlega tilhæfulaus og jaðrar við rógburð. BRÉF TIL BLAÐSINS 20-21 Umræðan NR. 2 20.8.2004 18:47 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.