Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 4
4 21. ágúst 2004 LAUGARDAGUR VIÐSKIPTI KB banki hefur ráðið til sín hóp stjórnenda og sérfræð- inga í Svíþjóð frá fjármálafyrir- tækinu Carnegie. Með ráðningu starfsmann- anna hyggst bankinn efla starf- semi á sviði einkabankaþjón- ustu. Christer Villard forstjóri KB banka í Svíþjóð segir það hendingu að stærsti hluti hóps- ins hafi komið frá einum aðila. „Það var ekki svo að við leituð- um markvisst að fólki frá Carnegie.“ Hann segir það við- urkenningu fyrir KB banka að starfsmenn annarra fjármála- fyrirtækja sækist eftir að koma í hópinn. „Það segir okkur að það er heilmikið að gerast hjá okkur. Villard segir að eftir erfiðan tíma hafi undanfarnir mánuðir verið mjög góðir hjá fyrirtæk- inu, einkabankamarkaður sé í örri þróun og eftir niðursveiflu á mörkuðum hugsi menn til lengri tíma. „Við teljum mikil tækifæri í þjónustu þar sem litið er á skattamál, eignir og tryggingar sem eina heild,“ segir Christer Villard. ■ Vonbrigði ef smá- salar taka ekki þátt Heilbrigðisráðherra lýsir vonbrigðum með að lyfjasmásalar velti afleiðingum sparnaðaraðgerða ríkisins yfir á sjúklinga. Verið sé að setja af stað nefnd sem hafi það hlutverk með höndum að endurskoða lyfjalögin, meðal annars með tilliti til endurbóta á rekstrarumhverfi apótekanna. LYFJAVERÐ „Það veldur mér mikl- um vonbrigðum ef smásalarnir vilja ekki taka þátt í þessu með okkur, nema með því móti að sjúklingarnir missi sína af- slætti“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra um að apó- tekin séu farin að draga stórlega úr afsláttum á lyfjaverði til sjúk- linga í kjölfar sparnaðaraðgerða ríkisins í lyfjamálum. Ráðherra bætti við að hann ætti erfitt með því að trúa því að „smásalan ætti enga aðra leið heldur en þá að velta þessu yfir á sjúklingana.“ Hann sagði að mikil magnaukning hefði verið í lyfja- sölu á undanförnum árum. Smá- salan væri mjög „stór pakki,“ álagningin væri tiltölulega rúm og apótek hér helmingi fleiri á hverja hundrað íbúa heldur en til dæmis í Danmörku. Heilbrigðisráðherra undir- strikaði að eins og fram hefði komið í skýrslu ríkisendurskoð- unar væri lyfjaverð hér um 4 miljörðum hærra heldur en á Norðurlöndunum. Heilbrigðis- yfirvöld hefðu brugðist við því eins og þeim bæri skylda til og náð góðu samstarfi við lyfja- heildsala um að taka verðið niður á tveimur árum, þannig að verð- ið yrði sambærilegt við meðal- verð á Norðurlöndum. Sam- komulag hefði verið gert um þá aðgerð í góðu samstarfi. „Þetta fer vitaskuld einnig yfir í smásöluna,“ sagði heil- brigðisráðherra. „Ég vonast svo sannarlega til þess að menn reyni allar leiðir í þessu máli, aðrar en að taka afslættina af sjúklingunum.“ Varðandi boðaðar endurbætur á rekstrarumhverfi apótekanna sagði ráðherra að verið væri að koma af stað nefnd sem hefði það verk með höndum að endur- skoða lyfjalögin. „Það hefur mikið verið að ger- ast í lyfjamálum og það virðist góð samstaða um að útrýma þessum mikla verðmun sem er afar brýnt og mikið hagsmuna- mál fyrir alla, bæði skattgreið- endur og neytendur,“ sagði ráð- herra og bætti við að nú væri lyfjaverðsnefnd komin á lagg- irnar aftur eftir lagabreytingu í sumar. Hún hefði verið styrkt í sessi og myndi væntanlega hafa samskipti við lyfjasmásalana. Þeir hefðu þó eftir sem áður að- gang að ráðherra heilbrigðis- mála, á sama hátt og verið hefði. jss@frettabladid.is ■ LÖGREGLUFRÉTTIR ■ EVRÓPA Á hið opinbera að fjármagna stækkun Laugardalsvallar ? Spurning dagsins í dag: Kemst íslenska handknattleiksliðið í undanúrslit í Aþenu? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 48,45% 51,55% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is Sjónvarpssendir Bolungarvík: Takmarkinu náð KNATTSPYRNA Bolvíkingar hafa lok- ið við að safna 900 þúsund krónum fyrir sjónvarpssendi til að ná út- sendingum Skjás eins. Að sögn Helga Jónssonar, forsvarsmanns söfnunarinnar gekk söfnunin vel þar sem fyrirtæki í bænum styrktu átakið mynduglega en bæjarbúar lögðu til á sjötta hund- ruð þúsund króna úr eigin vasa. Helgi segir að ekki hafi náðst í yfirmenn Skjás eins til að láta þá vita að söfnuninni væri lokið, en þegar er búið að leggja inn pöntun fyrir sendi. Patreksfirðingar hafa einnig lokið söfnun fyrir sendi og vitað er að íbúar á Fáskrúðsfirði eru með samskonar átak í gangi.■ STERKARI STAÐA Erfiðleikar einkenndu fyrsta hluta starfsemi KB banka í Svíþjóð. Bankinn er í sókn og hefur tekist að næla sér í lykilstarfsmenn frá keppinautunum. KB banki sækir á í Svíþjóð: Nældu sér í starfsmenn keppnauts BOLUNGARVÍK Bæjarbúar lögðu til á sjötta hundrað þús- und úr eigin vasa. BÍLVELTA VIÐ FOSSÁLA Ökumaður slapp með minniháttar áverka þegar bíll hans valt við Fossála, austan við Kirkjubæjarklaustur, í gærmorgun. Að sögn lögreglunn- ar í Vík í Mýrdal missti ökumað- urinn stjórn á bílnum í lausamöl með þeim afleiðingum að bíllinn fór eina veltu. Bíllinn skemmdist mikið og er óökufær. ÁTÖK Í VINNUDEILUM Serbneska lögreglan þurfti að stöðva átök verkfallsvarða og öryggisvarða í lyfjaverksmiðju í norðurhluta Serbíu. Nítján slösuðust í átökun- um. Miklar deilur hafa staðið um verksmiðjuna frá því hún var einkavædd í árslok 2002 og hófu starfsmenn verkfall fyrir þremur mánuðum. HANDTEKNIR Á NÝ Tveir mann- anna sem voru handteknir vegna hryðjuverkaárásanna í Madríd í mars en síðan sleppt hafa verið handteknir á ný. Ný sönnunar- gögn tengja þá við íbúð þar sem sjö hryðjuverkamenn sprengdu sig í loft upp þegar lögregla réðst til atlögu gegn þeim. HEYRNARDAUFIR HERMENN Meira en 15.000 núverandi og fyrrverandi írskir hermenn hafa fengið greiddar samtals rúma 24 milljarða króna í bætur vegna heyrnartjóns sem þeir hafa orðið fyrir. Heyrnartjónið er rakið til þess að engar eyrnahlífar voru notaðar við æfingar á skotsvæðum írska hersins fyrr en árið 1987. LYFJAVERÐ „Við höfum bent á, og það er staðreynd, að þessar sparn- aðaraðgerðir stjórnvalda í lyfja- málum koma afar hart niður á smásölunni,“ sagði Sigurður Jóns- son, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, um þau úr- ræði apótekanna að minnka af- slátt á lyfjaverði til sjúklinga. Sigurður sagði, að afar brýnt væri í sambandi við endurskoðun á lyfjalögum, að komið yrði á lag- færingum og aðgerðirnar gerðar auðbærari fyrir smásölurnar. Þar mætti nefna breytingu á mönnun lyfjafræðinga í apótekum, strang- ar reglur um starfsmannaaðstöðu og fleira. Meginatriðið væri þó, að við slíkar breytingar fengju hags- munaaðilar að koma að málinu snemma í ferlinu, þannig að þeirra sjónarmið kæmust að og að tekið yrði tillit til þeirra eftir atvikum. „Það hefur borið á því að smá- salan hefur ekki verið boðuð til samráðs þegar til hafa staðið breytingar. Sem dæmi má nefna, að í nefnd sem sér um endurskoð- un lyfjalaganna situr enginn full- trúi frá smásölunni né lyfjafram- leiðslunni. Við höfum sent ráð- herra bréf til að árétta þetta en ekki fengið neitt svar.“ ■ SVÞ um sparnaðaraðgerðir í lyfjamálum: Koma hart niður á smásölunni LYFJAVERÐ Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir heilbrigðisyfirvöld ekki hafa nógu mikið samráð við lyfjasmásala. VONBRIGÐI Heilbrigðisráðherra lýsir vonbrigðum með þá afstöðu lyfja- smásala að velta afleiðingum sparnaðar yfir á sjúklingana. Bobby Fischer: Tapaði lotu JAPAN, AP Japanskur dómstóll hef- ur neitað að verða við beiðni Bobby Fischer um að koma í veg fyrir framsal hans til Bandaríkj- anna. Lögmaður Fischer var við- búinn þessari niðurstöðu og hafði þegar farið fram á að hann yrði ekki fram- seldur strax ef niðurstaðan yrði þessi. Masako Suzuki, lögmaður Fischer, sagði að það bryti gegn rétti hans til sanngjarnra réttar- halda ef honum yrði þegar vísað úr landi og hann framseldur til Bandaríkjanna. Hann óskaði þess einnig að Fischer fengi landvist- arleyfi af mannúðarástæðum þar sem hann ætlaði sér að kvænast japanskri konu. ■ LÖGMAÐUR FISCHER OG HEITKONA 04-05 20.8.2004 21:02 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.