Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
SMS LEIKUR
VINNINGAR ERU:
DOOM · AÐRIR TÖLVULEIKIR
GEISLADISKAR · MARGT FLEIRA
SENDU SMS SKEYTIÐ BTL LEIKUR Á
NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ.
13. HVER VINNUR
KOMINN í VERSLANIR
ÞITT VERÐ: 199KR
IK
E
25
71
0
8.
20
04
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
2.950,-
HANNES skrifborð með lyklaborðsskúffu, 90x60 sm
5.950,-
STEFANO
skrifborðs-
stóll
990,-
KASSET kassar
með loki,
2. stk. í pakka
990,-
HEJAN
geilsadiskatöskur
3. stk.
990,-
SET taska
4.900,-
VESTBY fataskápur
90x50 sm, H 180 sm
590,-
GRINA
minnistafla 58x40 sm
545,-
VIRRA klukka/hitamælir
tímateljari/niðurteljari
IKEA/PS URSTARK
klukka með krítartöflu
990,-
TANJA BLOMMIG sængurverasett
150x210/50x60 sm
190,-
FNISS ruslafata
890,-
Borðleggjandi dæmi
195,-
Freistandi
Kaffi og
daimtertusneið
990,-
TERTIAL vinnulampi
Stærsti dagur
Íslandssög-
unnar
Ígær vöknuðu 290.987 manns á þess-ari eyju. Alveg ótrúlegt ef maður
hugsar út í það. Að allt þetta fólk
skuli vakna fyrir allar aldir, bursta
tennurnar og klæða sig án þess að
nokkur skipi þeim fyrir verkum. Þótt
iðnaðarráðherra sofi yfir sig þá skipt-
ir það engu máli því vekjaraklukkurn-
ar klingja ekki frá einni stjórnstöð.
Lífið gengur einfaldlega sinn vana-
gang.
Í HAUST munu 40.000 krakkar setj-
ast á skólabekk, 10.000 menntaskóla-
nemar fylla stofur, 9.000 háskólanem-
ar brjóta heilann. Kerfið gengur eins
og smurt. Bjöllur hringja, bækur opn-
ast, kennarar tala og sumir hlusta.
Þetta gengur bara eins og fyrir sjálf-
stýringu og þótt menntamálaráðherra
dotti í vinnunni þá breytist ekki neitt.
Kerfið rúllar af sjálfu sér.
Á HVERJUM einasta morgni bruna
150.000 bílar um göturnar, 200.000
manns fylla vinnustaði landsins, 200
tann læknar bora, 2.000 sjóarar veiða,
þúsund hjúkkur hjúkra á meðan allir
hinir selja, hugsa, veiða, þróa, lækna,
skúra, flaka, smíða, skrúfa, stýra,
snitta, pakka, baka, moka, tala eða töl-
vast. Allt er þetta svo hversdagslegt
að blöðin nefna það ekki einusinni.
Þótt forstjórinn bregði sér til útlanda
þá er ekki hrópað: PÁSA! Nei, menn
halda áfram að vinna og fara heim til
sín og elda mat án þess að um það sé
kveðið í neinum lögum og um kvöldið
njóta 70.000 manns ásta með öðrum
70 þúsundum án þess að spyrja heil-
brigðisráðherra með þeim afleiðing-
um að landsmönnum fjölgar og fjölg-
ar og hver einasti dagur myndar
stærsta gangvirki Íslandssögunnar.
Í KVÖLD munu rúmlega 100.000
manns sækja stærstu útitónleika Ís-
landssögunnar á hafnarbakkanum
þótt borgarstjórinn sjálfur sé úti í Aþ-
enu. Alveg er það merkilegt hvað það
virðist auðvelt að gera stóra hluti
bara með því að búa til einfalda
ramma, þá bara gerist allt hitt eins og
af sjálfu sér.
EN ÞEGAR allt er á blússandi sigl-
ingu þá eiga ráðamenn allra tíma það
til að horfa út um gluggann og hugsa:
Til hvers er ÉG? Hvaða gagn geri
ÉG? Af hverju tekur enginn eftir
MÉR? Af hverju þakkar enginn MÉR
í dagslok? Vita þau ekki að ÉG
stjórnaði þessum degi? Það var ÉG
sem lét hann verða að veruleika.
Í STAÐ þess að vera bara ánægðir
með að hafa skapað rammann þá fara
menn að atast í alls kyns vitleysum.
Fara kannski í stríð eða smala saman
örfáum verkfræðingum og þúsund fá-
tækum karlmönnum og láta þá moka
upp grjóthrúgu
undir yfirskriftinni: Stærsta fram-
kvæmd Íslandssögunnar! Ekki láta
plata þig. Grunnskólastarfið eitt og
sér er 40 sinnum stærra. Hver einasti
dagur er stærsti dagur Íslandssög-
unnar. ■
ANDRA SNÆS MAGNASONAR
BAKÞANKAR
64 (52) Bak 20.8.2004 20:05 Page 2