Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 2
2 21. ágúst 2004 LAUGARDAGUR
Kajakmennirnir við Grænland sofa á klöppum eða snjó:
Við erum lúnir
en galvaskir
KAJAKLEIÐANGUR „Við erum orðnir
dálítið lúnir, en erum samt gal-
vaskir og ætlum okkur að klára
dæmið,“ sagði Friðgeir Þráinn
Jóhannesson í samtali við Frétta-
blaðið í gær. Hann er nú staddur
ásamt þremur félögum sínum í
1000 kílómetra kajakleiðangri
við suðausturströnd Grænlands.
Ferðin er farin til að vekja at-
hygli á málstað blindra og sjón-
skertra hér á landi, svo og til að
safna áheitum fyrir Blindrafé-
lagið.
„Okkur gengur mjög vel þegar
við erum komnir af stað,“ sagði
Friðgeir. „Við höfum fengið dá-
samlegt veður, en landið er hins
vegar rosalega erfitt. Það er snar-
bratt niður í sjó, ekkert nema
klettar og stórgrjót. Tjaldstæðin
eru að mestu leyti klappir eða
snjór. En við hvílumst ágætlega
þótt það sé dálítið hart undir.“
Leiðangursmenn áætla að
komast í Skjöldung á sunnudag.
Þá eru þeir hálfnaðir með ferð-
ina. Í Skjöldungi ætla þeir að
dvelja dag um kyrrt og hvílast.
Ferðinni ætla þeir síðan að halda
áfram á þriðjudagsmorgun.
„Þetta hefur verið óhappalítið
hjá okkur og við höfum það
gott,“ sagði Friðgeir og bað blað-
ið að flytja bestu kveðjur leið-
angursmanna heim á Frón. ■
Kergja innan
Framsóknar
Margir flokksmenn eru afar ósáttir við þær málalyktir að Siv Friðleifs-
dóttur sé gert að láta af embætti umhverfisráðherra í september. Þeir
óttast að vegna þessa eigi enn eftir að hrynja af litlu fylgi flokksins.
STJÓRNMÁL Sú ákvörðun formanns
Framsóknarflokksins, Halldórs
Ásgrímssonar, að víkja Siv Frið-
leifsdóttur úr ráðherraembætti
þann 15. september í trássi við
óskir margra félagsmanna hefur
valdið úlfúð sem ekki sér fyrir
endann á.
Framsóknarkonur funda í Iðnó
í hádeginu í dag og ræða næstu
skref. „Það er mikill hiti í okkur.
Við ætlum að athuga hvort við
getum eflt okkur á annan hátt og
skoða stöðuna,“ sagði Bryndís
Bjarnarson, jafnréttisfulltrúi
flokksins. Fylgi Framsóknar hef-
ur ekki verið mikið í skoðana-
könnunum og óttast margir að
ráðherramálið þýði frekara fylg-
ishrun.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður flokksins, telur ljóst að
meðan leynd liggur yfir hvers
vegna Siv Friðleifsdóttur var
fórnað í stað einhvers annars
verði deilur um málið innan
flokksins. „Það er alveg rétt sem
Siv sagði að loknum fundinum að
með þessu vali væri farið gegn
mörgum stofnunum og venjum
innan Framsóknarflokksins.
Greinilegt er að þingflokkurinn
lítur ekki svo á að efstu menn í
hverju kjördæmi séu fyrstu ráð-
herrakostirnir. Tvö kjördæmi
hafa einstakling úr öðru sæti á
ráðherrastóli og sé þetta ný stefna
formanns þá þarf að ræða það inn-
an flokksins.“
Kristinn gaf lítið fyrir þá
ákvörðun Halldórs að frekari
hrókeringar yrðu á ráðherraliði
Framsóknar fyrir næstu kosning-
ar. „Þetta finnst mér slæm
ákvörðun. Þetta er vont fyrir þá
ráðherra sem nú sitja, það er vont
fyrir þingmennina sem vita þá
ekki fyrir víst hvernig haga skal
starfi sínu og þetta skapar
óöryggi.“
Kolbrún Ólafsdóttir, fram-
kvæmdarstjórnarmaður í Lands-
sambandi Framsóknarkvenna,
segir að síðan ákvörðunin um
brotthvarf Sivjar var tekin hafi
töluverður fjöldi sagt sig úr
flokknum. „Þetta er grafalvarleg
staða og á skjön við það sem kon-
um í flokknum hefur verið talin
trú um að flokkurinn standi fyrir.“
Hjá flokksskrifstofu Fram-
sóknar höfðu engar úrsagnir
borist seint í gærdag að sögn
Einars Gunnars Einarssonar.
Magnús Stefánsson, þingmað-
ur, undrast fjölmiðlafár vegna
málsins. „Legið hefur fyrir í
langan tíma að Framsókn missti
eitt ráðuneyti,“ sagði hann og
taldi eðlilegt að sá ráðherra sem
missti ráðuneyti sitt missti stöð-
una. „Ef landbúnaðar- eða félags-
málaráðuneytið hefðu verið í
skiptum í staðinn fyrir umhverf-
isráðuneytið er líklegt að þeir ráð-
herrar hefði farið í stað Sivjar.“
albert@frettabladid.is
KAJAKLEIÐANGUR
Leiðangursmenn við Grænlandsströnd hafa verið afar heppnir með veður á ferð sinni.
Þeir áætla að taka hvíldardag í Skjöldungi á sunnudaginn
Ráðstefna í Kína:
Fuglaflensa
í svínum
HEILBRIGÐISMÁL Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin hefur kallað eftir
nánari upplýsingum um möguleg
smit á fuglaflensu í svínum í Kína.
Kínversk rannsóknarstofa á sviði
dýralækninga greindi frá því á
ráðstefnu í Peking í gær sem hald-
in er um HABL og fuglaflensu að
smit hefði greinst.
Óttast er að fuglaflensan
stökkbreytist í svínum og verði að
nýjum flensustofni sem lagst gæti
á fólk. Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin segir áhrif nýs flensustofns
sem leggist á fólk geta orðið
grafalvarleg og hefur uppi við-
búnað um heim allan vegna þessa.
Hér á landi miðar viðbúnaðarstig
Landlæknis við að fuglaflensan sé
til staðar í Asíu, en smitist ekki á
milli manna. ■
„Jú, mikil steypa.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðisflokksins, hefur gagnrýnt borgina
fyrir að eiga Malbikunarstöðina og vill að hún
verði seld til að ýta undir samkeppni.
SPURNING DAGSINS
Vilhjálmur er þetta ekki tóm steypa?
Síbrotamaður:
Dæmdur
í fangelsi
DÓMSMÁL Tuttugu og fjögurra ára
síbrotamaður var í Héraðsdómi
Reykjavíkur, dæmdur í fimmtán
mánaða fangelsi, fyrir fjölda
brota svo sem vopnað rán, bíl-
þjófnaði, fjársvik, innbrot, skjala-
fals, umferðarlagabrot og fíkni-
efnabrot.
Maðurinn rændi verslun á
Laugarvatni vopnaður rörtöng.
Hann ógnaði afgreiðslustúlkunni í
versluninni og braut gler í af-
greiðsluborðinu. Við aðalmeðferð
málsins sagðist hann ekki hafa
beitt ofbeldi eða hótunum þegar
hann framdi ránið. Eigandi versl-
unarinnar elti manninn uppi frá
Laugavatni til Þingvalla þar sem
ræninginn var í biluðum síma-
klefa og náði að yfirbuga hann
með hjálp vegfaranda. ■
Slökkvilið kallað út:
Eldur í
Smáralind
ELDUR Kalla þurfti á slökkvilið
þegar eldur kom upp í verslunar-
miðstöðinni Smáralind í Kópavogi
á fjórða tímanum í gærdag. Að
sögn talsmanns Slökkviliðsins í
Reykjavík kviknaði í rusli undir
þakþili byggingarinnar þegar
verið var að eyða mosa af veggj-
unum með kósangasi.
Við það myndaðist nokkur
reykjarmökkur en eldur var ekki
mikill og búið að slökkva hann
þegar slökkviliðið mætti á svæð-
ið. Ekki var talin hætta á að eldur-
inn breiddist út þar sem steinull,
stál og steypa eru undir þilinu. ■
Lögreglan á Blönduósi:
Ökuníðingar
frá Ítalíu
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Blöndu-
ósi segir það standa upp úr í
ágústmánuði hversu margir
suður-Evrópubúar hafa verið
sektaðir fyrir hraðakstur. Algengt
sé að þeir keyri um á 130 til 140
kílómetra hraða. Að sögn lögregl-
unnar gerðu glannar frá Ítalíu og
Spáni verulega vart við sig.
Lögregluþjónn segist hafa
spurt ítalskan ökuþór út í málið og
mun hann hafa sagt ágústmánuð
vera aðalfrímánuð Ítala. Ferða-
menn sem eru sektaðir fyrir
hraðakstur þurfa að staðgreiða
sektina eða greiða með greiðslu-
korti. ■
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Fjölmargir Framsóknarmenn furða sig á hvers vegna hún er látin fara en lítið er um svör
hjá flokksforystunni. Deilur magnast innan flokksins yfir vali formannsins og þegar hafa
margar konur sagt sig úr flokknum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÓTTAST OLÍUHÆKKUN Hátt olíu-
verð gæti orðið til þess að hag-
vöxtur í Evrópu á næstu árum
verði mun minni en spár gera ráð
fyrir. Hagfræðingar telja að þótt
Evrópa sé ekki eins viðkvæm
fyrir hækkun á olíuverði og áður
þá kunni mikil hækkun engu að
síður að hafa neikvæð áhrif.
DÓMSMÁL Ákæra á hendur tveimur
mönnum, sem smygluðu saman-
lagt 325 grömmum af kókaíni inn-
vortis á síðasta ári, var þingfest í
Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli
fundu fíkniefnin sem komið hafði
verið fyrir í endaþörmum mann-
anna.
Annar mannanna var viðstadd-
ur þingfestinguna og játaði inn-
flutning á þeim rúmu 159 grömm-
um sem hann flutti inn í enda-
þarmi en neitaði sök á þeim 166
grömmum sem félagi hans var
með innvortis. Hann sagði efnin
þó ekki hafa verið ætluð til sölu í
hagnaðarskyni. Þá sagðist hann
ekki sekur af tollalagabroti en
þeir félagarnir eru ákærðir fyrir
að hafa ekki greitt toll af 45 box-
hönskum og þremur höfuðhlífum,
samtals að verðmæti um 85 þús-
und króna. Hinn maðurinn býr og
starfar á Spáni og mætti ekki í
dómsal í gær. Verjandi hans,
Sveinn Andri Sveinsson, segir
skjólstæðing sinn mæta þegar
málið verður tekið fyrir um
miðjan september. ■
EITURLYF Í SMOKKUM
Algengt er að eiturlyfjasmyglarar komi efnum fyrir í smokkum og annað hvort
gleypi eða feli í endaþarmi.
Smygluðu kókaíni í endaþörmum:
Ákærðir fyrir innflutning á kókaíni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Skemmdir í rannsókn:
Gert við
Öskju
NÝBYGGING Rannsókn á skemmd-
um á náttúrufræðihúsi Háskóla
Íslands, Öskju, stendur yfir.
Ríkharður Kristjánsson, for-
stjóri Línuhönnunar, segir við-
gerðatilraunir nauðsynlegar til
koma í veg fyrir frekari flögnun
málningar á klæðningu bygg-
ingarinnar.
„Við erum að reyna að finna
leið til að stöðva ryðmyndun og
frekari flögnun á málningunni.
Við þurfum fyrst að finna út hvað
veldur tæringunni og svo hvort
við getum stöðvað hana og hvern-
ig,“ segir Ríkharður. Niðurstaðan
liggi fyrir í septembermánuði.
Náttúrufræðihúsið var vígt í
apríl. Heildarkostnaður við bygg-
ingu hússins frá 1997 nam um 2,2
milljörðum samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri. ■
■ EVRÓPA
Glanni í Vík:
Tekinn á 158
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Vík í
Mýrdal hefur stöðvað tvo öku-
menn á ofsahraða undanfarna tvo
daga. Á fimmtudag var maður á
þrítugsaldri stöðvaður á 158 kíló-
metra hraða þar sem hámarks-
hraði er 90 kílómetrar á klukku-
stund.
Í gær var annar ökumaður á
þrítugsaldri stöðvaður á 151
kílómetra hraða. Mennirnir
mega eiga von á að verða svipt-
ir ökuleyfi í þrjá mánuði og 50
til 60 þúsund króna sekt. Hefðu
þeir verið mældir á 160 kíló-
metra hraða eða meira hefðu
þeir verið sviptir ökuréttindum
á staðnum. ■
02-03 20.8.2004 22:03 Page 2