Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 1
STJÓRNMÁL Mörgum konum innan
Framsóknarflokksins blöskrar sú
ákvörðun þingflokksins að láta Siv
Friðleifsdóttur víkja úr ráðherra-
embætti 15. september næstkom-
andi. Hópur framsóknarkvenna,
sem birti í vikunni heilsíðuauglýs-
ingu með ábendingu til þingflokks-
ins, ætlar að koma saman í Iðnó í
hádeginu í dag og ræða næstu
skref. Þá segir Kolbrún Ólafsdóttir,
stjórnarmaður í Landssambandi
framsóknarkvenna, að borið hafi á
að konur hafi sagt sig úr flokknum
síðan ákveðið var að láta Siv víkja,
en það fékkst ekki staðfest á skrif-
stofu flokksins.
Órói er þó víða í flokknum enda
óttast margir flokksmenn að með
brotthvarfi Sivjar, sem var einna
sýnilegust í ráðherrahópnum, sé
flokksforystan á hraðri leið til for-
tíðar hvað varðar það jafnrétti sem
kynnt hefur verið sem eitt helsta
baráttumál flokksins í undanförn-
um kosningum. Einnig finnst mörg-
um undarlegt hvernig Siv á að
halda áfram að gegna mikilvægum
stöðum og starfi innan Framsóknar
þegar hún nýtur ekki trausts þing-
flokksins.
Ákvörðun Halldórs Ásgrímsson-
ar formanns að breyta enn frekar
ráðherrahópnum fyrir næstu kosn-
ingar þykir ekki heillavænleg.
Kristinn H. Gunnarsson segir hana
skapa mikið óöryggi, bæði meðal
ráðherra og almennra þingmanna.
Sjá síðu 2
▲
SÍÐA 22
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
LAUGARDAGUR
LOFTBELGIR VIÐ HÁSKÓLANN
Háskóli Íslands verður með fjölbreytta
dagskrá í dag undir yfirskriftinni „Góður
andi“ í tengslum við menningarnótt í
Reykjavík. Dagskráin hefst klukkan fjögur
síðdegis. Fyrir framan aðalbyggingu skól-
ans verður m.a. vísindatjald og loftbelgir
á ferð og flugi.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐAST BJARTVIÐRI SÍST ÞÓ
FYRIR austan þar sem búast má við
lítilsháttar súld eða rigningu. Milt yfir há-
daginn en svalt að næturlagi. Sjá síðu 6
21. ágúst 2004 – 226. tölublað – 4. árgangur
Dröfn Þórisdóttir:
Ekki fyrsta
menningarafmælið
VONBRIGÐI RÁÐHERRA Heilbrigðis-
ráðherra lýsir vonbrigðum með að lyfjasmá-
salar velti afleiðingum sparnaðaraðgerða rík-
isins yfir á sjúklinga. Í burðarliðnum er nefnd
sem endurskoða á lyfjalögin. Sjá síðu 4
MIKIL ÁHRIF OLÍUVERÐS Lands-
samband íslenskra útvegsmanna telur að
hækkun olíuverðs þýði 2,4 milljarða kostnað-
arauka fyrir útgerðarfélögin. Olíuverð hefur
sérstaklega mikil áhrif á togveiðar. Sjá síðu 6
HELGIDÓMURINN YFIRGEFINN
Mahdisveitir Muqtada al-Sadr fjarlægðu
öll vopn sín úr mosku Imam Ali eftir að
samkomulag náðist við helsta leiðtoga
sjíamúslima um að hann tæki að sér
stjórn og umsjón moskunnar. Sjá síðu 8
GÖMUL VINDMYLLA GROTNAR
NIÐUR Í GRÍMSEY Sumum er hún
þyrnir í augum, meðan aðrir líta á hana sem
minnisvarða. Óljóst virðist hver ber ábyrgð á
mannvirkinu, sem var hluti af tilraun Raun-
vísindastofnunar H.Í. Sjá síðu 10
Kvikmyndir 46
Tónlist 44
Leikhús 44
Myndlist 44
Íþróttir 36
Sjónvarp 48
Magnús Geir Þórðarson tók við Leikfélagi
Akureyrar í vor og hlakkar til að hefja LA
til vegs og virðingar á ný en róðurinn fyrir
norðan hefur verið þungur undanfarin ár.
James Brown er enn í góðum gír
SÍÐUR 30 & 31
▲
Bjartsýnn á fyrsta leikárið sitt
SÍÐUR 28 & 29
▲
Segist vera hiphopinu það sem Einstein var
eðlisfræðinni. Gamli jaxlinn heldur tónleika
á Íslandi um næstu helgi. Hann veit ekkert
um landið en segir að Reykjavík verði kölluð
Heitavík eftir heimsókn hans.
● 39 ára í dag ▲
SÍÐA 50
Artótek:
Borgarbókasafnið
● leigir út listaverk gegn vægu gjaldi
▲
SÍÐA 40
Ólympíuleikarnir í Aþenu:
Þórey Edda
stekkur í dag
● stefnir á að komast í úrslit
VIÐ SKRÁNINGU
Aldrei hafa fleiri skráð sig í Reykjavíkur-
maraþonið. Tíu ára gamalt þátttökumet var
slegið.
Reykjavíkurmaraþon:
Tíu ára
met fallið
MENNINGARNÓTT Tíu ára þátttöku-
met í Reykjavíkurmaraþoninu
fellur í dag. Rétt undir fjögur þús-
und hlauparar hafa skráð sig til
leiks, þar af 500 útlendingar.
Fyrra metið var 3.700 þátttakend-
ur árið 1994. Til samanburðar
voru um 450 manns í fyrsta hlaup-
inu árið 1984.
Hjördís Guðmundsdóttir,
kynningarfulltrúi hlaupsins, segir
300-400 ætla að hlaupa fullt mara-
þon en erfitt sé að skjóta á ná-
kvæma tölu vegna erfiðleika í
tölvukerfi.
Frímann Ari Ferdinandsson,
framkvæmdastjóri Íþrótta-
bandalags Reykjavíkur, segir
þátttakendur geta valið um fjór-
ar vegalengdir. Skemmtiskokk,
þar sem fólk gengur og skokkar
eftir getu og áhuga; 10 kíló-
metra hlaup, sem allir ættu að
ráða við sem stunda reglulega
líkamsþjálfun; hálfmaraþon,
sem kallar á nokkurn grunn í
hlaupum; og svo maraþon, en í
það leggja ekki nema vanir
hlauparar sem stundað hafa
reglulega hlaupaþjálfun yfir
langt tímabil, gjarnan í nokkur
ár. ■
Magni Ásgeirsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Eins og karl
á nýjum bíl
● bílar
Menningarnótt:
Góð spá
í Reykjavík
VEÐUR Gott veður verður í Reykja-
vík í dag að sögn Þorsteins V. Jóns-
sonar, veðurfræðings á Veðurstofu
Íslands. Gert er ráð fyrir tíu til
fimmtán stiga hita í dag og hægri
norðlægri átt.
Frekar léttskýjað verður að
deginum til en einhverjar skúrir
gætu orðið síðdegis. Þorsteinn seg-
ir að hiti ætti ekki að fara niður
fyrir tíu stigin fyrr en um nóttina.
Annars staðar er gert ráð fyrir
frekar björtu og góðu veðri. Á
sunnudag breytist vindur í suðvest-
anátt og búast má við að þykkni upp
síðdegis eða á mánudag. Hætt er
við rigningu á þriðjudag. ■
SIF GUNNARSDÓTTIR FYLGIST MEÐ FRAMKVÆMDUM
Verkefnastjóri Menningarnætur, Sif Gunnarsdóttir, segir fjölmörg svið hafa verið byggð um miðborgina til að sem flestir geti notið
skemmtiatriðanna. Engin þeirra séu þó byggð af Reykjavíkurborg heldur af þeim fyrirtækjum og hópum sem sjái um skemmtunina.
Órói innan Framsóknar vegna brotthvarfs Sivjar Friðleifsdóttur úr ráðherrastól:
Forystan á hraðri leið til fortíðar
MENNING Búist er við þriðjungi þjóð-
arinnar í miðbæinn í dag þegar
Reykvíkingar halda sína níundu
Menningarnótt. Boðið verður upp á
230 skemmtiatriði og fylgjast um
eitt hundrað lögreglumenn með
mannfjöldanum fram á nótt.
Sif Gunnarsdóttir, verkefna-
stjóri Menningarnætur í annað
sinn, segir lögregluna hafa talið um
80 þúsund manns í miðbænum í
fyrra. „Það er svona frekar varlega
talið og ég á ekki von á því að það
verði færri núna,“ segir Sif og telur
fólksfjöldann jafnvel verða um 100
þúsund.
Karl Steinar Valsson, aðstoðar-
lögregluþjónn í Reykjavík, segir
undirbúning öryggismála hafa tek-
ist vel. Hann segir flesta lögreglu-
menn verða við störf um miðnætti
og fjöldi lögreglumanna einblíni á
drykkju ungmenna. Eins verði hóp-
ur sjálfboðaliða í samstarfi við lög-
regluna. Foreldrum verði gert að
sækja unglinga sem drekki. Takist
það ekki fari málið í hendur barna-
verndaryfirvalda. Hægt verði að
leita ásjár lögreglu og slökkviliðs í
Sölvhólsgötu en fólk geti einnig
snúið sér til næsta lögreglumanns
þurfi það aðstoð.
Sif segir að þó hún hafi reynsl-
una með sér hafi skipulagningin
síður verið auðveldari nú en í fyrra.
„Þetta er rosalega stór og mikil há-
tíð. Ég sé ekki ein um skipulagning-
una heldur sprettur hún upp nánast
í hverju húsi og bakgarði í miðbæ
Reykjavíkur. Eðlilega kemur hátíð-
in því alveg jafn mikið á óvart og
hún gerði í fyrra.“ ■
Hundrað þúsund
í miðbænum
Um 230 skemmtiatriði verða í boði fyrir gesti Menningarnætur. Eitt
hundrað lögreglumenn ásamt sjálfboðaliðum gæta öryggis.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
K
AR
LS
SO
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
01 Forsíða 20.8.2004 22:23 Page 1