Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 28
Margt er nauðsynlegt að hafa í bílnum og eitt af því er sjúkrakassi. Í sjúkrakassa er hægt að finna allt til alls til skyndihjálpar. Sjúkrakassar fást í öllum helstu apótekum landsins. Í lok þessa árs mun nýr og sport- legur Ford Fiesta ST koma á göt- una. Margir eru eflaust orðnir frekar óþolinmóðir að bíða eftir þessum bíl þar sem hann var kynntur á bílasýningu í Genf í mars á þessu ári. Ljóst er að bíllinn verður bú- inn tveggja lítra vél sem skilar 150 hestöflum. Til samanburðar er rétt að geta þess að Ford Focus ST skilar 170 hestöflum. Bíllinn verður búinn nýjum stuðara og vélarhlíf að framan og einnig nýju fjöðrunarkerfi. Bíllinn verður einstaklega sportlegur að innan og með þar til gerðum sportsætum. Hann verður búinn sautján tommu álfelgum. Þetta er fyrsti bíllinn sem lít- ur dagsins ljós frá samstarfs- hópnum TeamRS. Sá hópur var settur á laggirnar til að skerpa áherslur félagsins á sportlega en alþýðlega bíla. ■ Á mótorhjólasýningu Intermot sem hefst í Bæjaralandi 15. sept- ember mun BMW-umboðið frum- sýna nýtt ofursporthjól sem heit- ir K1200 S. Vélin þykir mjög full- komin og hallar hún fram um fimmtíu gráður í grindinni en þannig er hægt að fá fram lágan þyngdarpunkt án þess að það komi niður á beygjuhalla hjóls- ins. Hefur hjólið vakið sérstaka athygli fyrir nýtískulegan fjöðr- unarbúnað sem er hægt að stilla með því einu að ýta á takka á stýrinu og er það í fyrsta skipti sem það er hægt á mótorhjóli. Vélin skilar 167 hestöflum. ■ Cayenne-jeppinn frá Porche hef- ur að undanförnu vakið athygli og virðist fjölga jafnt og þétt á götunum. Farið var að selja þennan bíl hér á landi fyrir um hálfu öðru ári og hafa viðtökurn- ar verið afskaplega góðar eins og raunar um heim allan. „Um 40 bílar eru komnir á götuna hér heima,“ segir Bene- dikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna og bætir við að einnig sé nokkuð selt úr landi. „Biðtíminn eftir Turbo útgáfunni í Englandi er átta mánuðir,“ segir hann inntur eftir ástæðu þess að verið sé að selja bílinn erlendis. Hér heima er biðtíminn ekki alveg svona langur. „Yfirleitt þarf fólk þó að bíða. Annað hvort eru bílar á leiðinni eða þeir eru sérpantað- ir.“ Sem stendur eru til dæmis engir Cayenne-bílar til en nokkr- ir viðskiptavinir eru að bíða eft- ir bílum sem eru í pöntun. Í Cayenne má segja að sam- einist allt þrennt, fólksbíll, sportbíll og jeppi. Bíllinn er þó fullkominn jeppi með lágu drifi fyrir torfærur. Hann fæst í þremur útfærslum, Cayenne, Cayenne S og Cayenne Turbo. Meðal helstu nýjunga er vél- búnaður bílanna. Cayenne er 250 hestöfl, Cayenne S er 340 og Cayenne Turbo er 450 hestöfl og er hröðunin í honum 5,6 sekúnd- ur úr kyrrstöðu í 100 km hraða og sá bíll nær 266 km hámarks- hraða. Þrátt fyrir þetta gríðar- lega afl og snerpu er útblástur frá bílunum langt undir þeim mörkum sem gilda um útblástur hvar sem er í heiminum. Porsche Cayenne er mjög rúm- góður bíll enda er hann um 4,8 metrar á lengd og rúmlega 1,9 metri á breidd. Á Benni sjálfur Porche Cayenne? „Já, ég á sjálfur 250 hestafla Cayenne. Þessi bíll er ótrúlega lipur í bænum en nýtur sín kannski allra best á íslensk- um þjóðvegum, hvort sem er á möl eða ósléttu malbiki. Ég varð eiginlega fyrst reglulega ánægð- ur með bílinn þegar ég keyrði Holtavörðuheiðina.“ Benni full- yrðir að þetta sé besti bíll sem hann hafi nokkurn tíma keyrt og hafi hann þó keyrt marga. „Þetta er alger yfirburðabíll.“ ■ [ TRYLLITÆKI VIKUNNAR ] Lotus Elise 111-S Tryllitæki þessarar viku er Lotus Elise 111-S sportbíll árgerð 2004 en eigandi hans er Bergur Guðnason. Bílinn keypti Bergur fyrir fimm mánuðum frá Þýska- landi en frændur hans hjálpuðu honum að flytja hann inn gegnum netið. Bíll- inn kom til landsins með öllu og Bergur er eingöngu búinn að einangra í brett- inu þar sem hann var óeinangraður. Bíllinn er allur úr áli og með Rover 1800 mótor. Bíllinn er 4,6 sekúndur í hundrað og eyðir mjög litlu. Bergur er einmitt nýbúinn að keyra hringinn og eyddi bíllinn að meðaltali aðeins um 5,6 lítrum á hundraði. Vélin skilar 160 hestöflum og bíllinn er einungis 760 kíló. Að sögn Bergs er hann afskaplega fljótur af stað og það sýndi sig í spyrnukeppni á Akur- eyri 17. júní. Þá sá Bergur hina bílana bara í speglinum. Bergur segir það algjöra nautn að keyra bílinn og hann sé bíla bestur í bleytu og beygjum. Bíllinn hefur unnið til fjölda verðlauna í sportbílageiranum og hefur átta atriði sem eru best í heimi. Til dæmis er hann fljótastur að stoppa og aðeins 2,8 sekúndur úr 0 í 100 kílómetra hraða. Vélin í nýja ofursporthjólinu frá BMW þykir mjög fullkomin. Nýtt mótorhjól frá BMW frumsýnt í september: 167 hestafla ofursporthjól Nýr Ford Fiesta mun koma á markað í lok þessa árs og verður mun sportlegri en sá sem fyrir er. Loksins kemur Fiestan: Einstaklega sportlegur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I [ HYUNDAI GETZ SLÆR Í GEGN ] Hyundai er aðalstyrktaraðili Ólympíu- leikanna í Aþenu sem fara fram þessa dagana. Fjögur þúsund Hyundai bílar eru því í Aþenu nú og hefur Hyundai Getz verið útnefndur bíll Ólympíuleik- anna 2004. Hyundai kostar alla fólksflutninga sem varða framkvæmd leikanna. Flytja þarf þúsundir keppenda, dómara, fjöl- miðlafólks, eftirlitsaðila og fram- kvæmdaaðila á milli staða og hefur Hyundai lagt til fjögur þúsund bílstjóra vegna þessa. Hyundai hefur verið meðal stærstu styrktaraðila ólympíuleikanna síðan 1988 þegar þeir fóru fram í Seoul í Suður-Kóreu. Þessi suður-kóreski bíla- framleiðandi hefur þess vegna lagt ríka áherslu á að leggja öðrum stórum íþróttaviðburðum lið. Hyundai hefur til dæmis verið aðalstyrktaraðili Evrópu- meistaramótsins í knattspyrnu síðan árið 2000. Hyundai var aðalstyrktarað- ili heimsmeistaramótsins í knattspyrnu árið 2002 og verður það einnig árið 2006. ■ Bíll Ólympíuleikanna 2004 Fjögur þúsund Hyundai bílar eru í Aþenu meðan á Ólympíuleikunum stendur. Benedikt Eyjólfsson í Porche Cayenne bílnum sem hann fullyrðir að sé sá besti sem hann hefur nokkru sinni keyrt. Porche Cayenne: Yfirburðabíll að mati Benna Porsche Cayenne 250 hestafla Verð 6,6 milljónir með leðri, rafmagni í sætum,12 hátölurum, air condition, kæliboxi í hanskahólfi og fl. Eyðsla 10,6 l á hundraði á 90 km hraða á langkeyrslu 28-29 ( 02-03) Allt bílar 20.8.2004 15:05 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.