Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 56
40 24. september 2004 FÖSTUDAGUR
„Ég er alinn upp við það að Biblí-
an og Heimskringla séu tvær mik-
ilvægustu bækur í heimi, hrein-
lega helgir textar,“ segir norski
rithöfundurinn Thorvald Steen,
sem hefur skrifað skáldsögu um
síðustu fimm dagana í lífi Snorra
Sturlusonar.
Í gær voru liðin 763 ár frá því
að Snorri var veginn í Reykholti. Í
gær kom jafnframt skáldsaga
Steens út hér á landi og nefnist
hún Undir svikulli sól í íslenskri
þýðingu Aðalsteins Ásbergs
Sigurðssonar.
Heimskringla hefur haft gífur-
leg áhrif á sjálfsmynd Norð-
manna, og var þeim ekki síst afar
mikilvæg þegar þeir sögðu sig úr
lögum við Svíþjóð snemma á nítj-
ándu öld.
„Það eitt út af fyrir sig var þó
ekki nóg fyrir mig til að skrifa
skáldsögu um hann. Ég hafði fyrst
og fremst áhuga á Snorra vegna
þess hve nútímalegur hann er.“
Steen lítur á Snorra sem stjórn-
málamann í alþjóðlegu umhverfi,
þar sem krossferðir voru farnar á
hendur múslimum ekki ósvipað
því sem nú tíðkast.
„Menn verða að muna að
Snorri var drepinn af konungi
sem var ekki bara einhver norsk-
ur konungur, því páfinn í Róm
vildi að hann yrði næsti keisarinn
í hinu þýsk-rómverska keisara-
dæmi.“
Steen segir morðið á Snorra
einna helst minna á starfshætti
mafíunnar nú til dags.
„Guðfaðirinn, það er konung-
urinn, sendi Gissur Þorvaldsson,
tengdason Snorra, til þess að
drepa hann. Gissur bar sig að eins
og dæmigerður mafíumorðingi.“
Í bókinni lýsir Steen í smáat-
riðum aðdraganda morðsins síð-
ustu fimm dagana. Steen dregur
þar upp mynd af breyskum
manni, kaldrifjuðum og gráðug-
um, sem neyðist þó til að horfast í
augu við sjálfan sig.
„Þessi maður telur sig skilja
íslenskt þjóðfélag til fulls og þar
að auki norskt þjóðfélag, en samt
skilur hann ekki sína eigin fjöl-
skyldu. Þessi klofningur í per-
sónuleika hans finnst mér afar
spennandi, og ég held að þetta sé
um leið mjög dæmigert fyrir nú-
tímafólk.“
Steen er staddur hér á landi
þessa dagana til að kynna bók sína
og flytur fyrirlestur í Norræna
húsinu í hádeginu í dag. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 24 25 26 27
Föstudagur
SEPTEMBER
■ FYRIRLESTUR
STÓRA SVIÐ
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 26/9 kl 14
Su 3/10 kl 14
Su 10/10 kl 14
Su 17/10 kl 14
CHICAGO
e Kander, Ebb og Fosse. Tvenn Grímuverðlaun
Vinsælasta sýningin og bestu búningarnir!
Lau 25/9 kl 20
Lau 2/10 kl 20
Lau 9/10 kl 20
Lau 16/10 kl 20
Lau 23/10 kl 20
Aðeins örfáar sýningar í haust
NÝJA SVIÐ / LITLA SVIÐ
GEITIN EÐA HVER ER SYLVÍA
e. E. Albee
Aðalæfing lau 25/9 kl 13 - Kr 1.000
Frumsýning su 26/9 kl 20 - UPPSELT
Fi 30/9 kl 20
Fö 1/10 kl 20
Su 17/10 kl 14
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson
Su 3/10 kl 20
Fi 7/10 kl 20
Su 17/10 kl 20
Fi 21/10 kl 20
Su 31/10 kl 20
PARIS AT NIGHT
e. Jacques Prévert í samstarfi við
Á SENUNNI
Í kvöld kl 20
Su 26/9 kl 20
Síðustu sýningar
Miðasa la á net inu:
www.borgar le ikhus. is
Miðasala,
sími 568 8000
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
VERTU MEÐ Í VETUR
ÁSKRIFTARKORTIN GILDA Á SEX SÝNINGAR: ÞRJÁR Á STÓRA SVIÐI OG ÞRJÁR AÐ EIGIN VALI
- AÐEINS KR. 10.700 (Þú sparar 5.500)
TÍU MIÐA AFSLÁTTARKORT - FRJÁLS NOTKUN - AÐEINS SELT Í SEPTEMBER - AÐEINS KR. 18.300 (Þú sparar 8.700)
- BESTI KOSTURINN FYRIR LEIKHÚSROTTUR -
„MJÖG GOTT FYRIR LEIKHÚSROTTUR“
Áskriftarkort á 6 sýningar
- 3 á Stóra sviði og 3 að eigin vali -
aðeins kr. 10.700
( Þú sparar 5.500)
Afsláttarkort á 10 sýningar
- frjáls notkun -
aðeins kr. 18.300
( Þú sparar 8.700)
VE RTU M EÐ
Í VETU R
Föstudagur 1. okt. kl. 20.
Sunnudagur 10. okt. kl. 20
Aftur á fjalirnar !
Miðasala í
síma 562 9700
www.idno.is
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Mínus verður með tónleika
fyrir alla aldurshópa á Gauki á
Stöng. Einnig kemur fram hljóm-
sveitin New Rose. Frítt er inn.
19.30 „Það besta af hvíta tjaldinu“
nefnast tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í Háskólabíói.
Flutt verða lög úr kvikmyndum.
Einsöngvari er Gary Williams, en
hljómsveitarstjóri John Wilison.
23.00 Mínus verður aftur með tón-
leika á Gauki á Stöng, ásamt
hljómsveitunum Drep, Solid I.V.
og Manhattan. Þúsund krónur
inn.
Bang Gang verður með útgáfutón-
leika í Sjallanum á Akureyri.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Söngleikurinn Hárið verður
sýndur í Íþróttahöllinni á Akureyri.
■ ■ LISTOPNANIR
20.00 „Norður og niður“ nefnist
farandsýning ungra íslenskra,
finnskra og sænskra listamanna,
sem opnuð verður í Norræna
húsinu. Á opnuninni leika hljóm-
sveitirnar Helmus og Dalli, Benni
Hemm Hemm og Útburðir.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Stuðbandalagið frá Borga-
nesi verður með dansleik á
Kringlukránni.
Hermann Ingi jr. syngur og leikur
fyrir gesti Búalfsins í Breiðholti.
Spilafíklarnir spila á Dubliner.
Ellen og Erna skemmta á Vegamót-
um.
Atli skemmtanalögga og Dj Áki
Pain á Pravda.
„Betra seint en aldrei“ nefnist
hljómplata Eyjólfs Ólafssonar,
skólastjóra Tónlistarskólans á
Breiðdalsvík. Þar flytur hann
eigin lög og texta, sem spanna
sextíu ára tímabil en hafa aldrei
verið flutt áður hér á landi.
„Þarna eru í bland eldgömul
lög sem ég gerði þegar ég var tíu
eða tólf ára,“ segir Eyjólfur, sem
hefur samið töluvert af lögum í
gegnum tíðina. „Öll eru þessi lög
frekar í léttari kantinum. Þetta
eru danslög og fallegar ballöður. Í
textunum segi ég frá sjálfum mér,
allt frá fyrsta hryggbrotinu sem
ég varð fyrir þegar ég var ungur.“
Eyjólfur útsetur lögin sjálfur
og leikur á öll hljóðfæri á plötunni
auk þess að syngja. Platan var tek-
in upp í Litháen í sumar í stúdíóinu
SDD. Eiginkona Eyjólfs er frá Lit-
háen, og þar í landi hafa þau dval-
ist á hverju sumri síðustu tíu árin.
Lögin ætlar hann að frumflytja
á tónleikum í Kvenfélagshúsinu í
Grindavík klukkan átta í kvöld.
Allur ágóði af tónleikunum renn-
ur til Helga Harðarsonar hjarta-
þega.
„Ég hefði ekkert komist til að
halda þessa tónleika núna nema
það væri kennaraverkfall,“ segir
Eyjólfur, sem vissulega vonar þó
eins og aðrir að verkfallinu ljúki
sem fyrst. ■
Skólastjóri syngur
í verkfallinu
EYJÓLFUR ÓLAFSSON Skólastjóri Tónlistarskólans á Breiðdalsvík er að senda frá sér
plötu með eigin lögum.
■ TÓNLEIKAR
THORVALD STEEN Skrifaði spennusögu um síðustu fimm dagana í lífi Snorra Sturlusonar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Sér nútímann í Snorra