Fréttablaðið - 11.11.2004, Side 26

Fréttablaðið - 11.11.2004, Side 26
26 MÓTMÆLANDI DREGINN Á BROTT Átta mótmælendur voru handteknir fjórða daginn í röð sem þúsundir manna kröfðust þess að hermönnum yrði refsað fyrir að nauðga mæðgum. Óeirðalögregla notaði táragas til að dreifa hundruðum mótmælenda sem kröfðust þess fjórða daginn í röð að hermönnum yrði refsað fyrir að nauðga tólf ára stúlku og móður hennar. Mótmælendur brugðust við með því að grýta táragassprengjunum aftur í lögregluna, sem og steinum og múr- steinum. Mikillar reiðu hefur gætt í Srinagar í indverska hluta Kasmír eftir að mæðgurnar greindu frá því að þeim hefði verið nauðgað af indverskum hermönnum. Þetta er í þriðja skipti á tveimur vikum sem indverskir her- menn eru sakaðir um nauðgun. „Guð er mikill, refsið hinum seku,“ kölluðu mótmælendur. Yfirmenn indverska hersins segja að atvikið verði rannsak- að og hinum seku, ef einhverjir eru, verði refsað. „Við viljum aðkomu Sameinuðu þjóð- anna við að binda enda á átökin í indverska hluta Kasmír, sérstaklega vegna þess að Indverjar nota nauðg- anir sem vopn til að draga úr baráttu- vilja hreyfingar okkar,“ sagði Mohameed Ashraf, aðstoðarmaður Yasin Malik, eins helsta leiðtoga að- skilnaðarsinna sem var handtekinn af indverskum lögreglumönnum. Allt á suðupunkti vegna nauðgana INDLAND NAUÐGANIR HERMANNA 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR Stjórnvöld stýrðu verð- samráði um áratugaskeið Ekki er langt síðan verðlag á olíu var gefið frjálst. Allt eldsneyti var keypt í einu lagi og Verðlags- eftirlit ríkisins ákvað síðan verðið. Verðsamráð olíufélaganna mótaðist við þessar kringumstæður. Verðsamráð olíufélaganna á sér rætur í viðskiptaháttum sem tíðk- uðust hér á landi á síðustu öld. Þá voru olíuinnkaup í afar föstum skorðum og útsöluverð á eldsneyti ákveðið af hinu opinbera. Samráð við innkaup og sölu voru regla. Örfá ár eru síðan viðskipti losnuðu úr viðjum hafta hérlendis. Innkaup í einu lagi Síðari hluta 20. aldarinnar keyptu Íslendingar nánast alla sína olíu af Sovétmönnum eftir að olíuviðskipti við Breta lögðust af vegna þorska- stríðanna. Að sögn Önundar Ás- geirssonar, forstjóra Olíuverzlunar Íslands á árunum 1967-1980, var einfaldlega um neyðarráðstöfun ríkisstjórnarinnar að ræða því fiskmarkaðir á Bretlandseyjum hrundu. Sovétmenn voru hins veg- ar reiðubúnir að kaupa af okkur fisk í stórum stíl. Forstjórar olíufélaganna sátu í samninganefnd ásamt fulltrúa við- skiptaráðuneytisins og var nefndin send á hverju ári til Moskvu til að semja um innkaupsverð á olíu. Öll félögin keyptu olíuna saman og all- ir olíufarmar sem sendir voru til landsins voru sameiginlegir. Að- eins eru fáein ár síðan olíufélögin hættu að kaupa inn olíu saman þótt lengra sé síðan sérstakar sendin- efndir voru gerðar út af örkinni. Verðlagseftirlit ríkisins Ekki dró úr samráðinu eftir að olí- an var komin til landsins frá Sovét- ríkjunum því þá var komið að því að ákveða verðið. Verðlag á olíu, og raunar á öllum varningi sem seldur var hérlendis, svo sem matvælum, var ákveðið af Verðlagseftirliti rík- isins. Eftirlitið ákvað hámarksverð og varð verðlag í landinu að vera lægra en það. Innflytjendur höfðu í þjónustu sinni færa viðskiptafræð- inga sem létu eftirlitið hafa út- reikninga en á grundvelli þeirra var verð ákveðið. Guðmundur Ólafsson hagfræðingur telur að verðlag hafi af þessum sökum ver- ið miklu hærra hérlendis en að- stæður gáfu tilefni til því eftirlitið átti erfitt með að hrekja útreikn- inga fyrirtækjanna. Það var ekki fyrr en á níunda áratugnum sem al- mennilega losnaði um þetta fyrir komulag og eitthvað viðskipta- frelsi komst hér á. Alþýðubanda- lagsmenn börðust reyndar á hæl og hnakka gegn því að Verðlagseftir- litið yrði lagt niður vegna þess að þeir bjuggust við að verðlag myndi hækka en raunin varð önnur því á árunum 1985-1990 lækkaði verð á innfluttum neysluvörum gagnvart öðrum vörum um 30 prósent. „Íslendingar eru eitt örfárra ríkja í heiminum sem hafa rekið skefja- lausa nýlendustefnu gagnvart sjálfum sér,“ segir Guðmundur Ólafsson. Guðmundur bætir því við að þetta sé ástæða þess að forstjór- um olíufélaganna hafi þótt eðli- legt af hafa samráð um verð allt fram á síðustu ár. „Þeir reiknuðu bara út það verð sem þeir þurftu. Félögin lutu verðlagsákvæðum og þeim fannst því sjálfsagt mál að hringja sig á og ákveða hámarks- verðið.“ Engin verðsamkeppni Við þessar aðstæður segir Önund- ur Ásgeirsson að ekki hafi verið um það að ræða að samkeppni ríkti í verðmyndun á olíu hér á landi. „Stundum voru gefnir afslættir til stórkaupenda en stærstur hluti söl- unnar fór fram á útsöluverðinu sem Verðlagseftirlið hafði ákveðið. Um allt land var boðið upp á ná- kvæmlega sama verð enda var bundið í lögum að útsöluverð á eldsneyti væri það sama alls stað- ar.“ Fyrst um enga verðsamkeppni var að ræða er eðlilegt að fólk velti því fyrir sér hvort olíufélögin hafi keppt á einhverjum sviðum. Ön- undur segir að talsverð samkeppni hafi verið um að koma sér upp bensínstöðvum víða um land og veita þjónustu. Hins vegar er ekki á honum að heyra að félögin hafi makað krókinn á kostnað íbúa landsbyggðarinnar. „Á mörgum stöðum úti á landi er ekki hægt að halda uppi samkeppni því það er ekki nokkur leið að reka bensínstöð nema veruleg velta liggi þar að baki. Það fæst enginn til að reka bensínstöð með bullandi tapi. Ill nauðsyn rak því menn til þess að reka stöðvar saman,“ segir hann ómyrkur í máli. Önundur bendir á að í Reykja- vík hafi dreifingin verið í föstum skorðum þar sem samningar giltu á milli borgarstjórnar og olíufélag- anna. „Þá var bara sest niður við borð og samið um það hvar ætti að setja bensínstöðvar og það mátti helst ekki hafa nema eina bensín- stöð í hverju hverfi.“ Olíufélög stjórnmálaflokk- anna Engum dylst að tengsl stjórnmálaf- lokka við olíufélögin voru á sínum tíma allnokkur. Þannig hafði Sjálf- stæðisflokkurinn ítök í Skeljungi, Alþýðuflokkurinn í Olís og Fram- sóknarflokkurinn í Olíufélaginu í gegnum Sambandið. Vilhjálmur Þór, stofnandi Olíufélagsins, var ráðherra Framsóknarflokksins auk þess að veita SÍS forstöðu og Héð- inn Valdimarsson, verkalýðsfröm- ur og þingmaður Alþýðuflokks, stofnaði Olís. Fræg er sagan af ís- firskum framsóknarmanni sem kaus frekar að verða bensínlaus en að setja bensín á bílinn frá öðrum en Esso. Önundur segir að stjórnmála- menn hafi ekki haft mikil afskipti af eiginlegum rekstri fyrir utan það að flokksgæðingar sátu oft í stjórnum fyrirtækjanna. Hins veg- ar má sjá ítök flokkanna á ýmsu öðru, til dæmis þeirri staðreynd að Reykjavíkurborg keypti alltaf olíu af Skeljungi enda fór Sjálfstæðis- flokkurinn þar jafnan með völd. Stjórnmálamenn bera ábyrgð En hvað skyldi forstjóranum aldna þykja um nýbirta skýrslu sam- keppnisráðs og uppnámið sem hún hefur valdið? „Ég hef nú ekki trú á því að allt satt sé sem í henni stend- ur, ég held að þetta sé allt mjög lit- að af þeim sem sömdu þetta. Þeir sem hafa ekki komið að rekstri ol- íufélaga halda að þetta sé allt miklu einfaldara en það í rauninni er.“ Önundur velkist heldur ekki í vafa um endanlegar lyktir málsins. „Það verður enginn dæmdur fyrir þetta. Ef á að dæma einhverja eru það pólitíkusarnir. Þegar Verðlags- eftirlitið er lagt niður, allt gefið frjálst og sett á fót eftirlitsstofnun sem ekki gerir neitt í málunum fyrr en mörgum árum seinna, hver ber þá ábyrgðina? Auðvitað stjórn- málamennirnir,“ segir Önundur Ásgeirsson, fyrrverandi forstjóri Olís. ■ Grunnskólakennarar fögnuðu í verk- fallsmiðstöð kennara í Borgartúni þegar ljóst varð að búið væri að fella miðlunartillögu ríkissáttasemjara.. Kom það mörgum ankannalega fyrir sjónir að heyra kennara kyrja í kór; „Áfram, áfram, áfram kennarar.“ Svava Pétursdóttir kennari og formaður verkfallsstjórnar situr fyrir svörum. Hverju var fagnað? Því miður voru kennarar ekki að fagna nýjum kjarasamningi heldur þeirri afgerandi niðurstöðu gegn miðlunartillögunni sem birtist í at- kvæðagreiðslunni og þeirri gífurlegu samstöðu sem ríkir meðal kennara í þessari kjarabaráttu. Hafa fagnaðarlætin verið til um- ræðu meðal kennara? Já, það voru skiptar skoðanir vegna þess að okkur sýnist fögnuðurinn hafa verið miskilinn. Hefðu önnur viðbrögð verið meira viðeigandi? Nei, en samhengið hefði mátt vera annað. SVAVA PÉTURSDÓTTIR Fagnaðar- læti GÍFURLEG SAMSTAÐA SPURT & SVARAÐ SVEINN GUÐMARSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTAVIÐTAL VERÐSAMRÁÐ OLÍUFÉLAGANNA ÖNUNDUR ÁSGEIRSSON „Það var engin verðsamkeppni á milli félaganna. Samkeppnin lá einfaldlega í því að veita þjónustuna.“ FRÁ ÍSAFIRÐI Olíufélögin ráku þar bensínstöð saman, eins og víðar á landinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Á MIÐVIKUDÖGUM Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins -

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.