Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 80
Lífið leikur um Örn ElíasGuðmundsson, eða Mugisoneins og við þekkjum hann, þessa dagana. Það þarf ekki annað en að sjá hann ganga niður Lauga- veginn í lopapeysunni sinni til þess að sannfærast um það. Hann er ekki smeykur við að deila með öðrum því þegar hlustað er á nýju breiðskífuna hans, Mugimama, is this monkeymusic?, lekur hrein- lega hamingjan beint inn í eyru þess sem er opinn fyrir henni. Var feimnari „Fyrri platan var tæknilegri, ein- hvern veginn,“ segir Mugison um frumraun sína Lonely Mountain en hættir svo við þá skilgreiningu eftir sekúndna umhugsunarfrest. „Það var náttúrlega mikið um el- ektróník á henni og minna um söng og röddin oftast í effekta- súpu. Þá var ég nefnilega feimn- ari söngvari. Núna eru þetta meira lög sem eru samin á kassagítarinn og þess vegna syng ég meira. Ég syng eiginlega mjög mikið á þessari, er algjör söng- díva.“ Titill plötunnar, sem og nokkrir textar hennar, eru eins konar ást- aróður til kærustu Mugisons og verðandi barnsmóður, Ísafjarðar- mærinnar Rúnu Esradóttur. Hún syngur með honum í ballöðunni angurværu 2 Birds og talar í lag- inu Chicken Song. Í því síðar- nefnda setur hún sig í töffarahlut- verkið, og minnir töluvert á Anitu Lane, fyrrum ástkonu Nick Cave. Ragnhildur Gísladóttir syngur svo í laginu What I Would Say in Your Funeral. Af hverju Mugison tengir konu sína við bæði fugla- lögin á plötunni er hulin ráðgáta. Snillingurinn ég Mugison kynntist Rúnu stuttu eftir útgáfu fyrri plötu sinnar í lok árs 2002 eftir að hann fluttist frá London til pabba sína á Ísa- firði til að klára útskriftarritgerð sína. Rúna á líka í nokkrum lögum plötunnar. Sum þeirra hljóma nán- ast eins og þau séu samin inn í stofu á sunnudagskveldi, þegar parið hafði fengið nóg af sjón- varpsglápi. „Það var ekki alveg svoleiðis. Við reyndum það á tímabili, að semja eitt lag á viku. Svo gleymdi maður því bara eftir því sem vikurnar liðu,“ segir Mugison og hlær. „Hún stjórnar líka upptökum með mér. Við búum náttúrlega saman og þegar hún kom heim úr skólanum hlustaði hún alltaf og sagði mér hvort þetta væri fínt eða glatað.“ Hvernig er svo að hafa ástkonu sína sem tónlistargagnrýnanda? „Ég hef nú alltaf hatað það þegar vinir mínir hafa verið að tjá sig um það sem ég hef verið að gera. Það er helst að ég hafi hlustað á Pétur vin minn þegar hann tjáði sig. Ég ýtti hlutum vanalega í þveröfuga átt miðað við hvað fólk var að segja. Það fór ógeðslega í taugarnar á mér að fá gagnrýni þegar maður er að gera lögin. Þá voru allir hálfvitar, en ég snilling- ur. Rúna fór alveg í taugarnar á mér fyrst, svo er það bara ekkert hægt. Maður er annað hvort á föstu eða ekki. Ég hafði ótrúlega gott af því að læra að hlusta. Mun- urinn á plötunum er bara Rúna, og þess vegna heitir platan Mugimama.“ Rúna er komin rúma 6 mánuði á leið, og því býst Mugison ekki við löngum ferðalögum erlendis á næstu mánuðum. Mugibaby lítur þannig dagsins ljós snemma á næsta ári. Hermir eftir Elvis Fyrri plata Mugisons var honum vissulega mikið ævintýri. Þegar hún kom út fyrir jólin 2002 tapað- ist hún algjörlega í jólaflóðinu. Snemma árið eftir var hann kom- inn með samning úti og byrjaður að handsauma 10 þúsund eintök fyrir útgáfuna. Áður en hann vissi var hann búinn að samþykkja þriggja vikna tónleikaferð um Japan án þess að hafa hugmynd um hvernig hann ætlaði að flytja lög sín á tónleikum. „Ég hélt fyrstu tónleikana mína í kjallara í Menntaskólanum á Ísafirði. Þar gerði ég þetta bara eins og Páll Óskar og ýtti á play. Það var ömur- legt. Ég var næstum því farinn að gráta og hætti eftir tvö lög. Þetta var svo mikið fals. Hægt og rólega hef ég reynt að þróa þetta út í eitt- hvað áþreifanlegra. Það er eina leiðin til þess að fá eitthvað út úr þessu... að herma eftir Elvis.“ Til allrar lukku kynntist Mugi- son tölvuforriti sem gefur honum færi á að stjórna flestu uppi á sviðinu þegar hann kemur fram. Þannig tryggir hann líka að engir tveir tónleikar verði eins. „Ég varð að gera eitthvað og alltaf þegar það er svona pressa þá prumpast maður í gírinn á að gera eitthvað. Allt sem ég hef gert, hef- ur verið gert þannig, líka tónlistin fyrir Næsland. Friðrik Þór hringdi í mig og gaf mér sex vikur til þess að klára þetta. Svo heyrði ég ekkert í honum fyrr en ég var búinn.“ Dreymir um hljómsveit Nýja platan er mjög lífræn. Þar ómar lifandi bassi og trommusett og dreymir Mugison því um að koma sér upp hljómsveit einn daginn. „Ég er bara að bíða eftir því að eiga efni á því. Þegar mað- ur er í hljómsveit hafa allir liðs- menn trú á þessu.“ Já, Mugison er langt frá því að vera orðinn ríkur maður þó svo að tónlistargrúskarar erlendis séu búnir að taka eftir honum. Það er búið að vera mikið fjaðrafok út af plötum hans upp á síðkastið, og ekki minna í íslenskum fjölmiðl- um. „Mér finnst þetta svolítið fyndið,“ segir Mugison sallaróleg- ur. „Þegar ég tala við fólk hérna heima, þá finnst því að maður eigi að vera búinn að meika´ða eftir svona fjölmiðlafár. Það gleymdist alveg að þetta er ennþá bara á nördafílingnum... og það verður þannig örugglega eitthvað áfram. Þetta er allt mjög skrýtið hérna heima. Hljómsveitir fara út og spila á pöbbum eins og Barfly í London, eða eitthvað, þá er bara gerður sjónvarpsþáttur um sveit- irnar hérna heima. Það koma miklu fleiri að sjá þá spila á Gauknum.“ biggi@frettabladid.is „See the chicken is one of very few birds who can never fly, but even with its head chopped off, it will give it one hell of a try.“ - Mugison bendir á að kjúklingurinn sé myndlíking náttúrunnar á von í The Chicken Song af nýju plötu hans Mugimama, is this monkeymusic? 44 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR Í spilaranum hjá ritstjórninni Mugison: Mugimama, is this monkeymusic?, Stina Nordenstam: The World is Saved, Ratat: s-t, Talib Kweli: The Beautiful Struggle, Goldie Lookin Chain: Greatest Hits, Swan Lee: Swan Lee og Neil Young: Decade. Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON. biggi@frettabladid.is [ TOPP 20 ] X-DOMINOSLISTINN 10. NÓV PLACEBO Twenty Years SUM 41 Where All To Blame THE USED Take It Away A PERFECT CIRCLE Imagine JIMMY EAT WORLD Pain QUARASHI Payback JAN MAYEN On A Mission MUSE Butterflies And Hurricanes BRAIN POLICE Coed Fever MAUS Over Me Under Me LOSTPROPHETS Last Summer FRANZ FERDINAND This Fire THE LIBERTINES can’t Stand Me Know U2 Vertigo SOLID I.V I.v THE BRAVERY Honest Mistake STROKES The End Is No End INTERPOL Slow Hands SLIPNKOT Vermillion RAMMSTEIN Amerika * Listanum er raðað af umsjónar- mönnum stöðvarinnar 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 [ A-listinn á Rás 2 ] Mest spiluðu lögin í stafrófsröð BJÖRK Who is it? BUBBI MORTENS Íslenskir sjómenn (in memorian) FATBOY SLIM The joker GISLI The Devil IAN BROWN Keep what ya got KEANE This is the last time MANIC STREET PREACHERS The love of Richard Nixon MARGRÉT EIR & STEFÁN HILMARS. Einn góðan dag MAROON 5 This love MUGISON Murr murr NICK CAVE & THE BAD SEEDS Breathless QUARASHI Stars R.E.M. Aftermath ROBBIE WILLIAMS Radio SÚ ELLEN Þriðja Hjólið U2 Vertigo Í SVÖRTUM FÖTUM Meðan Ég Sef CERES 4 Savannah DURAN DURAN (Reach up for the) sunrise GREEN DAY American idiot HELGI P Allt það góða HLJÓMAR Eitt lítið stef NIN fresta nýju plötunni... aftur Þeir aðdáendur sem geta varla beðið eftir fylgifisk meistara- stykkis Nine Inch Nails, Fragile frá árinu 1999, neyðast til þess gera það samt. Leiðtogi sveitar- innar, og í rauninni eini liðs- maður hennar Trent Reznor, til- kynnti nefnilega á heimasíðu sinni að platan kæmi ekki út fyrr en snemma á næsta ári. Upphaflega átti hún að skila sér í plötuhillurnar fyrir jólin. Í tilkynningunni tók hann einnig fram að hann væri hættur við að kalla plötuna Bleedthrough eins og hann hafði tilkynnt áður. Reznor hefur verið þekktur fyrir að vera kvalinn af gífur- legri fullkomnunaráráttu og ótt- ast einhverjir um að platan eigi aldrei eftir að líta dagsins ljós. Reznor fullyrðir þó að hún sé nánast tilbúin og að hún muni koma út í mars næstkomandi. Ein ástæða fyrir þessari gífur- lega löngu bið er sú að Reznor hætti nýlega hjá útgáfu sinni Nothing, eftir langar lagadeilur. Á heimasíðunni segir Reznor sveit sína einnig vera að undir- búa sig undir heljarinnar tón- leikaferð um heiminn. TRENT REZNOR Forsprakki Nine Inch Nails hefur frestað út- gáfu nýju plötunnar. Mugison heldur í hamingjuna Ísfirski tónlistarmaðurinn Mugison hefur sent frá sér nýja skífu. Fleiri kassagítarslög eru á henni en þeirri fyrri en Mugison dreymir um að koma sér upp hljómsveit. MUGISON Á FERÐ OG FLUGI 3. nóv. Ísafjörður Edinborgarhúsinu 15. nóv Egilsstaðir Menntaskólinn 16. nóv Seyðisfjörður Hótel Aldan 18. nóv Reykjavík Nasa 19. nóv Akureyri Græni Hatturinn 21. nóv Sauðárkrókur Kaffi Krókur Eiríkur Norðdahl sér um upphitun með því að lesa úr Hugsjónardruslunni. MUGISON Hann vinnur nýju plötuna með kærustunni sinni, Rúnu Esradóttur. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.