Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Aðstæður
Aðstæður eru misjafnar. Fólkifinnast oft aðstæðurnar í lífi
sínu svo slæmar að þær hreinlega
standi í vegi fyrir því að það geti
notið fullkominnar hamingju. Það
getur verið ástandið í landinu, veðr-
ið, vinnan, makinn, fjölskyldan eða
hreinlega hvað sem er. Það er svo
auðvelt að finna eitthvað að hlutum,
sérstaklega öðru fólki vegna þess að
enginn er fullkominn.
MÉR hefur líka stundum fundist ég
þurfa að gera eitthvað sérstakt til
þess að geta orðið hamngjusamur og
sáttur. Eða jafnvel það sem verra er;
að einhver annar þurfi að gera eitt-
hvað svo mér líði betur. Oft snýst
það um að mér finnst að fólk þurfi
að breytast mikið. Og svo hef ég
beðið. Og biðin hefur orðið líf mitt.
Og líf mitt hefur orðið leiðindi og
hangs. Hamingjan er nefnilega ekki
falin á leiðarenda heldur er hún á
leiðinni.
MARGIR virðast halda að besta
leiðin lil að laga lélegt hjónaband sé
að skipta um maka og fá sér ein-
hvern skárri. Það er yfirleitt rangt.
Vandamálin halda áfram og menn
komast að því að þeir eru alltaf að
glíma við sömu vandamálin, sömu
árekstrarnir endurtaka sig. Flótta-
maðurinn kemst að því á endanum
að hann hefur allan tímann bara ver-
ið að flýja sjálfan sig. Þetta bendir
sterklega til þess að uppspretta
vandans liggi ekki hjá öðrum heldur
hjá manni sjálfum.
ÞAÐ er ótrúlegt hvað umhverfið
verður ágætt þegar maður hættir að
reyna að breyta því og bara sættir
sig við það og hreint stórkostlegt
hvað annað fólk skánar mikið og lag-
ast þegar maður breytir sjálfum sér.
Þegar eitthvað er að í lífi manns þá
er lausnina yfirleitt að finna hjá
manni sjálfum en ekki annars staðar.
Ef aðstæður mínar eru slæmar þá er
það undir mér sjálfum komið að
breyta þeim. Ef ég get ekki breytt
þeim þá þarf ég að sætta mig við
þær.
AÐSTÆÐURNAR eru alltaf góðar.
Það er afstaða mín sem skiptir máli.
Ég get verið fullkomlega hamingju-
samur í hvaða aðstæðum sem er. Ég
get verið atvinnulaus og fátækur í
rigningu og roki og umkringdur heim-
sku og leiðinlegu fólki en samt að
springa úr hamingju og jákvæðni. Ef
ég vil það.
Þetta er nefnilega allt spurning um val.
Ég get valið að vera fúll og óánægður
eða ég get valið að vera glaður. ■
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR