Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 82
„Af fornu fari og sem gamall
Stones-fan er ég mikill aðdáandi
Marianne Faithfull. Hún er part-
ur af sögu sveitarinnar alveg síð-
an hún varð vinkona Mick Jagger
árið 1964,“ segir tónlistarmaður-
inn og útgefandinn Óttar Felix
Hauksson. „Það má segja að
þau hafi verið saman allan
sjöunda áratuginn og hafi
gengið í gegnum súrt og sætt.
Þau lentu meðal annars í
miklu veseni þegar Stones
voru handteknir í frægu hófi
heima hjá Keith Richards í
Bretlandi. Upp frá því voru
þeir fangelsaðir en hún var að
byrja á braut eiturlyfjanna.
Hún þoldi þau miklu verr en
þeir og því var hennar leið út
úr þeim miklu erfiðari.“
Lagið As Tears Go By hef-
ur alltaf verið í miklu uppá-
haldi hjá Óttari en hann samdi
íslenskan texta við lagið í fyrra
sem Þórey Heiðdal söng inn á
hljómplötu.
„As Tears Go By kom henni
inn á topp tíu listann í Englandi.
Upp frá því var hún aðallega
þekkt sem sambýliskona Mick
Jagger næstu árin. Skilnaður
þeirra fór illa í hana og hún fór út
í mikla óreglu í kjölfarið,“ segir
Óttar. „Hún kom þó aftur sterk
inn og gaf út plötu á áttunda
áratugnum, Broken English.
Það er geysilega sterk plata
og þar má finna nýjan tón í
túlkun hennar sem söngvari.
Það er miklu dýpri tónn og
meiri lífsreynsla. Þá var hún
líka farin að semja sjálf og
var orðin alvörulistamaður.
Henni var víðast vel tekið og
ég hef fylgst með ferli
hennar síðan sem hefur allur
verið upp á við. Hún hefur
ekki átt stór högg inn á popp-
listana en hún hefur verið að
gera góða og vandaða rokk-
músík.“ ■
Söngkonan Marianne Faithfull
heldur tónleika á Broadway annað
kvöld. Hún mætir með fullskipaða
hljómsveit og ætlar að flytja safn
sinna þekktustu laga í bland við
lög af plötunni Kissin' Time sem
kom út fyrir tveimur árum. Sú
plata fékk fína dóma gagn-
rýnenda um allan heim. Þar vott-
uðu margir yngri tónlistarmenn
henni virðingu sína með því að
taka með henni lagið, þeirra á
meðal Beck, Damon Albarn, Dave
Stewart og Billy Corgan.
As Tears Go By
Marianne varð heimsfræg árið
1964 þegar hún gaf út lagið As
Tears Go By en það var fyrsta lag-
ið sem félagarnir Mick Jagger og
Keith Richards í hljómsveitinni
Rolling Stones sömdu saman.
Sjálfir gáfu Rolling Stones lagið
út einu ári síðar en á þessum
árum voru Marianne og Jagger
elskendur auk þess sem þau
deildu umboðsmanni. Söngferill
Marianne dalaði í nokkur ár en
árið 1979 náði hún að endurvekja
feril sinn með plötunni Broken
English sem aflaði henni virðing-
ar á ný um allan heim.
Djammaði með Metallica
Fylgdi hún þeim vinsældum eftir
aðeins fram á næsta áratug en
féll svo aftur í gleymskunnar dá
eftir nokkrar misheppnaðar
plötur. Hún skaust síðan aftur
upp á sjónarsviðið þegar hún
söng með rokkurunum í Metalli-
ca í laginu The Memory Remains
af plötunni Reload um miðjan
síðasta áratug. Með nýju plöt-
unni sinni, Before the Poison,
sem kom út í september virðist
Marianne síðan hafa náð sér á
strik á ný. Þar veittu þau Nick
Cave og P. J. Harvey henni góða
aðstoð við lagasmíðar. Marianne
er nú á sinni fyrstu viðamiklu
tónleikaferð um heiminn í mörg
ár og stoppar að sjálfsögðu við á
Íslandi eins og svo mjög er í
tísku um þessar mundir.
Stórstjarna á einni nóttu
Marianne Faithfull fæddist í
London árið 1946. Þegar hún var
um sautján ára hitti hún rithöf-
undinn John Dunbar í partíi og
tveimur árum síðar eignaðist hún
með honum drenginn Christopher.
Árið 1963 þegar Marianne var 17
ára hitti hún Andrew Loog
Oldham, umboðsmann Rolling
Stones, í öðru partíi. Hann bauð
henni að syngja inn á plötu sem
hann ætlaði að gefa út. Um var að
ræða lagið As Tears Go By. Var
það gefið út á smáskífu og eftir
það var Marianne orðin stór-
stjarna á einni nóttu. Árið 1965
skildi hún við Dunbar og byrjaði
með Mick Jagger. Stóð ástarsam-
band þeirra yfir í þrjú ár.
Á kafi í eiturlyfjum
Marianne átti erfitt með að
standast freistingarnar sem
fylgdu því að vera í slagtogi með
annarri af frægustu rokksveitum
Bretlands. 21 árs gömul var hún
orðin háð kókaíni og heróíni og
árið 1967 fór hún í vikulangt dá
eftir að hafa tekið inn of stóran
skammt af eiturlyfjum. Á þessu
tímabili samdi hún textann við
lagið Sister Morphine með Roll-
ing Stones sem kom síðar út á
plötunni Sticky Fingers. Nokkru
síðar ákvað Marianne að segja
skilið við sukkið og svínaríið sem
fylgdi rokklíferninu og hætti
með Jagger. Hún fékk sér íbúð í
miðborg London og hélt sig fjarri
sviðsljósinu en náði þó ekki að
losa sig við eiturlyfjafíknina.
Árið 1977 gaf Marianne út
plötuna Dreaming My Dream
sem náði þó nokkrum vinsældum
í neðanjarðarsenu London.
Tveimur árum síðar kom síðan út
Broken English sem naut mikilla
vinsælda. Rödd hennar var nú
orðin hás, sem hæfði vel breytt-
um tónlistarstíl hennar.
Aftur á stjá eftir mögur ár
Marianne hætti ekki að nota
heróín fyrr en 1987. Það ár gaf
hún út plötuna Strange Weather
þar sem hún söng lög eftir aðra
listamenn á borð við Tom Waits.
Einnig var þar að finna endur-
útgáfu hennar á laginu sem gerði
hana vinsæla, As Tears Go By.
Næstu ár á eftir gaf Marianne út
nokkrar plötur sem nutu lítillar
hylli á hinum almenna markaði og
það er ekki fyrr en nú sem þessi
merka söngkona er farin að láta
að sér kveða á nýjan leik.
freyr@frettabladid.is
46 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
■ TÓNLIST
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án
lyfseðils og eru notuð þegar reyk-
ingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum.
Í fylgiseðlinum eru
upplýsingar um: Verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsing-
ar sem nauðsynlegt er að lesa áður en
lyfin eru notuð, hugsanlegar auka-
verkanir og aðrar upplýsingar.
Til að ná sem bestum
árangri skal ávallt fylgja leiðbeining-
um í fylgiseðli.
Örsmá
tafla
meðstórt
hlutverk
ÞRÁI AÐEINS ÞIG
Ég sit og hugsa heim til þín
Hve heitt ég ann þér ástin mín
Fólkið úti’er fjarri mér. Finn fyrir þér
Finn að ég þrái aðeins þig
Þó fjarlægð skilji okkur að
Ég ávallt finn í hjartastað
Faðmlög þín og felli tár. Finnst hver dagur sem ótal ár
Ég sit og þrái aðeins þig
Þó færist árin yfir mig
Ég aldrei hætti’ að hugsa’ um þig
Öll mín elska af allri sál
Aðeins þú ert mitt hjartans mál
Ég veit ég þrái aðeins þig
AS TEARS GO BY
It is the evening of the day
I sit and watch the children play
Smiling faces I can see, but not for me
I sit and watch as tears go by
My riches can't buy everything
I want to hear the children sing
All I ever hear is the sound of rain falling on the ground
I sit and watch as tears go by
It is the evening of the day
I sit and watch the children play
Doin' things I used to do, they think they are new
I sit and watch as tears go by
Mm mm mm...
MEÐ JAGGER Marianne Faithfull ásamt Mick Jagger, söngvara Rolling Stones, þegar þau
áttu í ástarsambandi.
Upp úr táradalnum
Hin goðsagnakennda söngkona Marianne Faithfull heldur tónleika á
Broadway annað kvöld. Hún er nú í sinni fyrstu stóru tónleikaferð um
heiminn í áraraðir.
MARIANNE FAITHFULL Marianne Faithfull hefur marga fjöruna sopið á tónlistarferli
sínum. Hún syngur fyrir Íslendinga í Broadway annað kvöld.
ÓTTAR FELIX HAUKSSON
(AS TEARS GO BY -JAGGER/RICHARDS TEXTI: ÓTTAR FELIX HAUKSSON)
Ferill Faithfull allur verið upp á við
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
Hin hliðin á bílum
Stærsti bílamarkaður landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is