Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 58
Ínæstu viku verður heimildarkvikmynd Jehane NoujaimControl Room frumsýnd á Reykjavik Film Festival. Þarer reynt að varpa ljósi á þá pólitísku togstreitu sem varðþegar sjónvarpsfréttastofan Al Jazeera ætlaði að flytja fréttir af Íraksstríðinu. Í kjölfar myndarinnar verða pall- borðsumræður þar sem Sigríður Víðis Jónsdóttir verður meðal þátttakenda, en hún fór til Katar síðastliðið vor gagngert til þess að fylgjast með starfi stöðvarinnar í nokkra daga og tók hún meðal annars viðtöl við starfsmenn hennar. Í Katar búa 600.000 þúsund manns og segir Sigríður fréttastofuna vera stolt landsins. Það sem kom henni hins vegar mest á óvart var sú ótrúlega fagmennska sem ein- kenndi starfsemi Al Jazeera. „Ég vil auðvitað ekkert vera að segja að ég hafi verið með einhverja fyrirframgefna fordóma, en þegar maður kom þarna inn þá var þetta mjög fagmannlegur vinnustaður enda flestir starfsmennirnir með mikla reynslu að baki og langan starfsferil.“ Sigríður segir að stöðin hyggjast hefja fréttaútsendingar á ensku á næsta ári. „Ensk vefsíða fréttastofunnar er meðal fimmtíu mest sóttu síðna í heiminum. Stofan ákvað því að mæta þeirri eftirspurn með því að undirbúa fréttaflutning á ensku,“ segir Sigríður og bætir því við að arabíska stöðin verði að sjálfsögðu áfram opin samhliða þeirri ensku. Al Jazeera hefur oft legið undir ámæli fyrir að vera hlið- holl Al Kaída. „En þeir segjast bara flytja sannleikann,“ seg- ir Sigríður og bendir á að forsvarsmönnum stöðvarinnar finnist vestrænir fjölmiðlar gjarnan vera einhliða og taka málstað Bandaríkjamanna. „Al Jazeera tók sér hins vegar hvorki sæti meðal þeirra né Al Kaída. Forráðamenn stöðvar- innar segja að hún hafi kosið hlutleysi og þeir segjast flytja fréttirnar eins og þær eru. Þeir hafa alls ekki verið í neinum áróðri gegn Bandaríkjunum eins og svo margir vilja halda fram“. Sem dæmi um mikinn áhrifamátt Al Jazeera hefur tíma- ritið Times valið stöðina sem einn af þeim hundrað aðilum sem hafa mótandi áhrif á hugsunarhátt á heimsvísu. Að sögn Sigríðar fannst stjórnendum Al Jazeera mikið til þess koma að fá þessa viðurkenningu frá vestrænum fjöl- miðli. Aðspurð segir Sigríður að hún hafi orðið vör við andúð meðal Katarbúa á Íraksstríðinu á ferð sinni um landið. „Íbú- ar Katar sögðu við mig, að ef til vill hefði þetta ekki áhrif á mig, sem byggi svona langt í burtu, en þetta væri nágranna- land þeirra og það sem gerðist þarna hefði mikil áhrif á þá. Það ríkti töluverð reiði og óvissa um framtíðina.“ Sigríður segist aldrei hafa kynnst eins mikilli gestrisni og hvergi hafi hún mætt fordómum, þrátt fyrir að vera vestræn kona. „Ég fór frá Katar með fullan bakpoka af gjöfum.“● F2 22 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR Sigríður Víðis Jónsdóttir. „Ég fór frá Katar með fullan bakpoka af gjöfum.“ Sigríður Víðis Jónsdóttir pistlahöfundur og ferðalangur Heimsótti Al Jazeera Fr ét ta b la ð ið /L jó sm : S te fá n K ar ls so n Sólin skín skært á Jóhönnu Sig- urðardóttur þingmann Sam- fylkingarinnar sem hækkar í efstu hæðir á pólitísku loftvoginni við niður- stöðu Samkeppnisstofnunar í olíumálinu. Fyrir sjö árum fór Jóhanna fram á skýrslu frá þáverandi viðskiptaráðherra, Finni Ing- ólfssyni, þar sem kannað væri hvort olíufélögin ættu í samráði um markaðsskiptingu og verð- lagningu. Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks vísaði þeirri bón á bug í skjóli þess að kostnaður við rannsóknina yrði of mikill. Helmingaskipti hvað? Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarf- lokksins hefur hækkað um nokkur bör eftir skell í upphafi þings. Framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi sam- þykktu álit á fundi í vikunni þar sem þingflokkurinn er hvatt- ur til að endurskoða ákvörðun sína um að kasta Sleggjunni. Kristinn býr enn vel að þeim vinsældum sem hann aflaði sér meðal almennings í fjölmiðlamálinu þar sem hann hikaði ekki við að standa við eig- in sannfæringu... Það er frekar skýjað og óvíst veður yfir Davíð Oddssyni utanríkisráðherra þessa dagana. Gengi hans hefur fallið allverulega eftir að hann lét af emb- ætti forsætisráðherra. Hann tók við utanríkisráðu- neytinu, en hefur vegna veikinda ekki haft sig mikið þar í frammi. Hann mun þó eflaust sækja í sig veðr- ið að nýju er hann mun snúa aftur til fullra starfa enda er hann maður stórra verka... Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir er ekki búin að bíta úr nálinni með að hafa hleypt Þórólfi Árnasyni í borgarstjórastól- inn vitandi af syndum hans hjá Esso. Þórólfur hangir eins og steðji um fætur hennar og dregur hana niður í kulda og trekk. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra hefur komið sérlega klaufalega út úr umræðunum um kennaraverkfallið. Reynsluleysi henn- ar sagði til sín þegar henni tókst að koma báðum hópum deilenda upp á móti sér þegar hún sagði að ríkið ætti að taka aftur við skólunum og hún virðist hafa fátt gáfulegt yfirhöfuð til málanna að leggja. Fyrir vikið leika um hana naprir vindar. Brrrr... Þórólfur Árnason borgarstjóri lenti í sannkölluðu gjörningaveðri og rataði ekki til pólitískra byggða á nýjan leik. Guðmundur Árni Stefánsson, Mörður Árnason og fleiri Samfylkingarmenn sendu út leitarflokk en án árangurs. Syndir fortíðarinnar eltu Þórólf uppi og það dugði honum ekki til fyrirgefningar að hafa aðeins verið fyrsti stýrimaður í sub- bulegri útgerð olíufélaganna. Nú er bara að bíða og sjá hvort skipstjórarnir fái makleg málagjöld... Afstæð fegurð Vinkona mín eignaðist frumburðinn á dögunum með eiginmanni sem seint mundi komast á lista yfir mestu kvennaljóma heims. Nema hvað litla stýrið er nauðalíkt pabba sínum, það er vægast sagt stórfrítt. Svo óhuggu- legt að mér er ekki um gefið að halda á unganum og finnst óþægilegt að kyssa hann eða knúsa. Hvernig get ég spilað þetta án þess að særa vinkonu mína? KD, Kópavogi Ég skil vandann. Ekki er alltaf sjálf- gefið að ungbörn séu sæt; þessi hrukkudýr sem þau eru. Reyndu að setja þig í spor Móður Teresu þegar þú færð barnið í fangið, en hún mátti ekkert aumt sjá. Þjóðráð er líka að snúa alltaf barninu þannig að þú horfir á hnakkann á því. Svo er ekki óvarlegt að segja barnið sláandi líkt föður sínum. Það ætti líka að hitta í mark hjá frúnni, úr því hún vildi hann. Nágrannavandræði Stofuglugginn minn vísar í átt að svefnherbergisglugga miðaldra hjóna í næstu blokk, nema hvað þeim virðist ókunnugt um hvað vel sést inn hjá þeim, sem getur verið mjög óþægilegt fyrir mig og fjölskyldu mína. Hvernig get ég látið nágranna mína vita af þessari stöðu án þess að það verði vandræðalegt fyrir mig eða þau? HSG, Reykjavík Þetta er ansi snúið. Ef þú skemmtir þér örugglega ekki við þessi „sýningu“ eftir kvöldfréttirnar er um þrennt að ræða. Þú getur sent þeim nafnlaust bréf, en gættu þess að hafa það ekki í aðdáendastíl, þú getur tekið af þeim mynd með aðdrætti og sett inn á Netið, og í þriðja lagi þá getur þú slegið á þráð- inn þegar mest gengur á og spurt hvort þau kæri sig um að fá fleiri með í fjörið. Hvað sem þú velur af þessu munu gluggarnir örugglega verða byrgðir í snarheit- um. Fröken Freyja leysir vandann Sendið fyrirspurnir og vandamál til fröken Freyju, F2, Skaftahlíð 24, 105 Rvk eða sendið henni tölvupóst í netfangið frkfreyja@frettabladid.is. Nöfn sendenda verða ekki gefin upp í blaðinu. Pólitíska loftvogin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.