Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 46
Sólveig Arnarsdóttir leikkonaflutti aftur heim til Íslands ífyrra eftir að hafa búið í Berlín íÞýskalandi í tíu ár. Þar nam hún leiklist og starfaði sem leikkona. Hún leikur nú tvö hlutverk á fjölum Þjóð- leikhússins og æfir fyrir hið þriðja. Hún leikur unga kvikmyndagerðarkonu, Ernu, í verkinu Böndin á milli okkar sem sýnt er á Litla sviðinu og Sabrinu, vinkonu Edith Piaf, í samnefndum söngleik á stóra sviðinu. Auk þess æfir hún fyrir jólasýninguna Öxin og jörðin þar sem hún leikur Þórunni, dóttur Jóns Arasonar, en faðir hennar, Arnar Jónsson, fer með hlutverk Jóns í sýn- ingunni. Grænamýri á Akureyri Ég bjó í Grænumýri á Akureyri fyrstu þrjú ár ævinnar og á því ekki miklar minningar þaðan. Það sem ég man var að þetta var raðhús og í húsinu við hlið- ina var sjoppa. Ég átti þá frábæru hug- mynd að gera gat á stofuvegginn og inn í sjoppuna, en foreldrar mínir tóku ekki vel í það, hversu ótrúlegt sem það er. Óðinsgata í Þingholtunum í Reykjavík Ég flutti á Óðinsgötuna þriggja ára og bjó þar alla mína barnæsku. Ég átti ljómandi bernsku í bakgörðum og uppi á skúrum í Þingholtunum. Ég hef komist að því að ég er bundin andleg- um vistarböndum við Þingholtin og er ekki fær um að búa annars staðar í Reykjavík. Ég held því fram að Þing- holtin séu afskaplega barnvænn staður og það geri börnum gott að alast upp í þeirri óreiðu sem þar ríkir. Grenimelur í vesturbæ Reykjavíkur Móðurafi mín og amma, Þorleifur og Guðrún, bjuggu á Grenimelnum. Ég var mikið hjá þeim sem krakki og eru því miklar, sterkar og góðar minningar tengdar þeirri götu. Ég varð því afskap- lega glöð þegar frænka mín og besta vinkona, Gréta María Bergsdóttir, flutti á Grenimelinn fyrir stuttu því nú eru aftur komin á tengsl við götuna. Suðurgata í miðbæ Reykjavíkur Ég bjó í einn vetur í kommúnu í gömlu húsi á horninu á Túngötu og Suður- götu. Mér fannst ég vera komin ansi langt í burtu, en ég var nú alin upp í Þingholtunum og vön að hafa allt innan seilingar og geta labbað allt. Mér finnst til dæmis Hlíðarnar vera úti á landi. Raumer Strasse í austurhluta Berlínar Hverfið var í dálítilli niðurníðslu og ekki mjög smart þegar við Jósef, mað- urinn minn, fluttum þangað. Við héld- um að við værum að gera dálítið fínt því það var róluvöllur hinum megin við götuna og fyrsta barnið okkar var að koma í heiminn. Það kom hins vegar á daginn að leikvöllurinn var samkomu- staður róna og eiturlyfjasjúklinga, sem einhverra hluta vegna voru allir með risastóra hunda. Það er okkur ennþá hulin ráðgáta hvað þeir voru að gera með þessa hunda. Halldór Dagur, sem nú er sjö ára, fæddist á meðan við bjuggum þarna. Alls vorum við á Raumer Strasse í þrjú ár og á þeim tíma breyttist hverfið mjög mikið og varð eins konar artí-fartí hverfi borgarinn- ar. Það voru tvær austur- berlínskar hornknæpur í götunni þegar við fluttum þangað en þegar við fórum töldum við um 25 bari og veitingastaði. Gneifenau í vesturhluta Berlín- ar Við fluttum í risastóra íbúð í Vestur- Berlín með vinkonu okkar sem er fiðlu- leikari. Við klikkuðum hins vegar á því að vara okkur á því að íbúðin stóð við sex akreina götu. Við héldum að það hefði ekkert rask í för með sér en hrökkluðumst þaðan ári síðar. Yngri sonur minn, Arnar, sem er fjögurra ára, fæddist meðan við bjuggum þar. Monumenten í vesturhluta Berlínar Sú gata var dálítið hugguleg en mér finnst allar götur í Berlín meira og minna eins, fimm hæða hús við breiðar götur. Það sem skipti máli var íbúðin sjálf. Við gerðum reyndar upp allar íbúðirnar sem við bjuggum í frá grunni og eyddum í það þó nokkrum pening- um og gífurlegum tíma. Ég held það hljóti að fara að flokkast undir áhuga- mál þegar maður er farinn að gera upp svona margar íbúðir. Laufásvegur í Þingholtunum í Reykjavík Við fluttum heim frá Berlín í fyrra og ætluðum að vera æðislega opin fyrir því hvar við myndum búa. Við skoðuð- um meira að segja íbúð í Vesturbænum og ætluðum okkur að flytja þangað. Þegar kom að því að skrifa undir kaupsamning að íbúð sem við höfðum í huga sögðu vistarböndin til sín og ég fann að ég var ekki tilbúin að fara vestur yfir læk. Við enduðum því á Laufásvegi, ekki smörtu megin heldur hinum megin þar sem við erum í strangri gæslu bandaríska sendiráðsins. Ég kann vel við mig hér, get labbað í vinnuna og á barina, hef útsýni yfir Tjörnina og veit ekki hvað þyrfti til svo ég flytti héðan burt. Drengirnir mínir eru mjög lukku- legir hér og leika sér eins og ég kannast við úr barnæsku. Eldri drengurinn minn tók mig með sér út um daginn til að sýna mér leynistaði og leynileiðir. Ég vildi nú ekki eyðileggja það fyrir hon- um með því að segja honum að ég kynni sjálf allar þessar leiðir, og jafnvel sumar enn betri.● Djassgítaristinn Björn Thoroddsen hefur tekið sig til og útsett sálma sem sið-bótarmaðurinn Marteinn Lúther samdi á 16. öld og komið þeim á geisla- disk. Í kvöld, fimmtudag, ætlar Björn að flytja þessa tónlist á tónleikum í Salnum Kópavogi. Björn segir að það séu ekki margir sem viti af því að Marteinn Lúther hafi samið tónlist. „Það er hins vegar vitað að hann átti í bréfaskriftum við mörg af helstu samtímatónskáldum síns tíma.“ Björn bætir því við að það hafi verið vinur hans dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson sem hafi þrýst á hann að útsetja þessi lög í mörg ár og það hafi orðið úr fyrir einu og hálfu ári síðan. Afraksturinn er geisladiskurinn „Lúther“ sem er nýkominn út. Ásamt Birni munu þeir Stefán G. Stefánsson saxófónleikari, Jón Rafnsson kontra- bassaleikari og Erik Qvick slagverksleik- ari spila. Tónleik- arnir eru í Salnum og hefjast klukkan 20.00. ● F2 10 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR Göturnar í lífi Sólveigar Arnarsdóttur leikkonu Grænamýri Óðinsgata Grenimelur Suðurgata Raumer Strasse Gneifenau Monumenten Laufásvegur Leikur að ljósi Danski hönnuðurinn og arkitektinn Verner Panton hannaði þetta sígilda ljós 1977. Það er kallað Panto og fæst í tveimur stærðum, 40 og 50 sentimetrar að þvermáli. Panton er meðal þekktustu hönnuða heims og sagði sjálfur að megintilgangur með verkum sínum væri að egna fólk til þess að nota ímyndunarafl sitt. Hann sagði að flestir eyddu lífi sínu í niðurdrepandi, grátóna umhverfi og að fólk hræðist það veru- lega að nota liti. Hann er þekktur fyrir hönnun sína á ljósum og stólum og leikur sér með ljós, liti og efni á nýstárlegan hátt. Ljósið fæst í Húsgagnahöllinni og kostar minni gerðin 134.890 krón- ur en stærri gerðin kostar 169.990 krónur. ● Við enduðum á Laufásvegi, ekki smörtu megin heldur hinum megin þar sem við erum í strangri gæslu... „ Hver vegur að heiman Tónleikar í Salnum Djassaðir sálmar Lúthers Björn Thoroddsen „Það eru ekki margir sem vita að Marteinn Lúther samdi tónlist.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.