Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 49
heldur að skrifa þær. Ef ég ræði mikið um komandi
verkefni við aðra get ég hugsanlega misst áhugann á
þeim. Þess vegna kýs ég að þegja sem mest um þau.
Það er mikilvægt fyrir mig að hafa frið um það sem ég
er að vinna og ég vil einnig hafa frið um einkalíf mitt.“
Alþjóðlegur rithöfundur
Friður er nú kannski ekki það sem Arnaldur hefur
haft mikið af þetta árið því hann hefur verið á mikl-
um ferðalögum til að kynna bækur sínar. Ferðirnar
hafa verið níu það sem af er árinu, til Þýskalands,
Bretlands og Norðurlanda. „Það að fylgja bókunum
eftir erlendis er orðinn stór partur af því að vera rit-
höfundur. Ég veit ekki hvað ég endist mikið í það og
býst ekki við að ég setji eins mikinn tíma í það í fram-
tíðinni og ég hef gert á þessu ári,“ segir Arnaldur, sem
er orðinn alþjóðlegur rithöfundur. Bækur hans hafa
selst í fimm hundruð og fimmtíu þúsund eintökum á
heimsvísu og enginn íslenskur nútímahöfundur hefur
náð jafn mikilli útbreiðslu.
„Ég er auðvitað steinhissa á þessu,“ segir rithöf-
undurinn. „Fólk virðist lesa þessar bækur á mjög svip-
aðan hátt hvar sem er í heiminum, sérstaklega þó í
Þýskalandi, á Norðurlöndum og Hollandi þar sem er
mikil glæpasagnahefð. Það hjálpar einnig að sögusvið-
ið er Ísland, sem vekur alltaf athygli erlendis. Persón-
urnar virðast einnig kveikja áhuga fólks. Það er ekki
bara hér heima sem ég er spurður að því hvað verði
um Erlend. Alls konar fólk úti í heimi spyr mig hvort
það verði ekki í lagi með hann og hvort hann eigi ekki
örugglega eftir að hitta konu. Hvað mig varðar þá er
feikilega ánægjulegt að upplifa vinsældir bókanna og
það hjálpar mér mjög sem rithöfundi að halda áfram
að skrifa. Vinsældirnar vekja athygli á manni. Ég vildi
gjarnan vera án þeirrar athygli af því hún er truflandi
fyrir starf mitt. En athyglin er hluti af starfinu og ég
þarf bara að takast á við það.“
Næsta bók líka um Erlend
Arnaldur er nú að vinna að næstu bók þar sem Er-
lendur og félagar eru í aðalhlutverkum. Vinnuheiti er
ekki komið en hann segir verkið vera á góðu róli og
gefur ekkert upp um söguþráð annað en að þar komi
kynþáttahatur nokkuð við sögu. Hann segist ekki enn
kominn í þrot með hugmyndir: „Sannleikurinn er sá
að ég lifi nokkuð mikið í þessum sagnaheimi. Það
kviknar hugmynd á hverjum degi. Sumt er brúklegt,
annað ekki. Um daginn var ég að tala við konuna
mína í eldhúsinu og hún sagði mér af miðilsfundi sem
hún heyrði af og þá fékk ég hugmynd sem hugsanlega
gæti komið í bók eftir þrjú ár. Stór hluti af minni
tilveru núorðið er að hugsa um þetta starf, þessa
karaktera, sögurnar og fá nýjar hugmyndir. Guði sé lof
fyrir hugmyndir. Megi þær koma sem flestar og á
hverjum degi.“ ●
F213FIMMTUDAGUR 11. nóvember 2004
g metsölubækur
„Ég er auðvitað
steinhissa á þessu,
Fólk virðist lesa
þessar bækur á
mjög svipaðan hátt
hvar sem er í heim-
inum, sérstaklega
þó í Þýskalandi, á
Norðurlöndum og
Hollandi þar sem er
mikil glæpasagna-
hefð.“
„Það er ekki bara hér
heima sem ég er spurður
að því hvað verði um
Erlend. Alls konar fólk úti í
heimi spyr mig hvort það
verði ekki í lagi með hann
og hvort hann eigi ekki
örugglega eftir að hitta
konu.“