Fréttablaðið - 11.11.2004, Blaðsíða 2
PALESTÍNA, AP Undirbúningur að út-
för Jassers Arafats, forseta
heimastjórnar Palestínu, var í
fullum gangi í gær. Arafat er
sagður lifa síðustu stundir sínar
og er ekki gert ráð fyrir að heilsa
hans batni.
Ákveðið var að útför hans yrði
gerð í Kaíró að boði Egypta en að
Arafat yrði jarðsettur í höfuð-
stöðvum sínum í Ramalla. Þar
unnu vinnuvélar að því að hreinsa
brak af svæðinu í kringum höfuð-
stöðvarnar svo hægt yrði að jarð-
setja hann.
„Það hefur verið ákveðið að lík
hans verður flutt til Kairó og að
þar fari athöfnin fram. Eftir það
verður flogið með líkið frá Kaíró
til Ramalla,“ sagði Saeb Erekat,
aðalsamningamaður Palestínu-
manna. Ástæðan fyrir því að út-
förin verður gerð í Kaíró er að
þannig er auðveldara fyrir er-
lenda þjóðarleiðtoga að vera við
útförina heldur en ef hún yrði
gerð í Ramalla.
Íslamskur klerkur kom til
Frakklands til að vera við dánar-
beð Arafats. Hann las upp úr Kór-
aninum við hlið Arafats sem var í
djúpu dái. ■
2 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Ríkissáttasemjari
Deilan í mjög erfiðum hnút
KENNARAVERKFALL Það er ekki til-
efni til að halda samningafund í
kjaradeilu kennara og sveitarfé-
laga fyrr en eftir hálfan mánuð að
mati Ásmundar Stefánssonar, rík-
issáttasemjara.
Hann segir samninganefndirn-
ar hafa verið sammála um þetta á
fundi í gær. Hann segist ekki hafa
séð tilefni til að ganga í berhögg
við þessa afstöðu þar sem bilið á
milli kröfu kennara og tilboðs
sveitarfélaganna sé svo breitt. Ás-
mundur segir engar forsendur til
að ætla að ný miðlunartillaga frá
honum yrði samþykkt. Aðspurður
hvort hugmyndir sveitarfélag-
anna um að kerfisbreytingar yrðu
gerðar á kjarasamningunum
sagði hann að það hafi verið gagn-
kvæm afstaða að hvorugur aðilinn
hafi verið reiðubúinn til að fara
leið hins.
Ásmundur gerði ráðherrum
ríkisstjórnarinnar grein fyrir
stöðu mála í gær og hann var sv-
artsýnn á árangur. „Það bendir
allt til þess að staðan verði með
svipuðum hætti eftir hálfan mán-
uð. Málið er í mög erfiðum hnút.“
- ghg
Lög á kennara
ekki útilokað
Forsætisráðherra boðaði kennara og fulltrúa sveitarfélaganna á sinn fund
í dag eftir að slitnaði upp úr kjaraviðræðunum. Hann útilokar ekki að
ljúka deilunni með lögum. Ætlar að hafa samráð við stjórnarandstöðuna.
KENNARAVERKFALL Það er ekki úti-
lokað að ríkisstjórnin grípi til
lagasetningar til að leysa kjara-
deilu kennara. Þetta kom fram í
máli Halldórs Ásgrímssonar for-
sætisráðherra í gær. Hann hefur
boðað kennara og fulltrúa sveitar-
félaga á fund í dag til að ræða
hvernig leysa megi deiluna.
Halldór sagði að þótt ríkis-
stjórnin hafi útilokað lagasetn-
ingu fram að þessu þá sé ekki
hægt að útiloka hana miðað við
framtíðarhorfur í samningavið-
ræðunum. „Við höfum alltaf sagt
að lagasetning sé neyðarkostur en
við þessar aðstæður vil ég ekki
útiloka hana,“ sagði forsætisráð-
herra í stjórnarráðinu í gær.
Ásmundur Stefánsson ríkis-
sáttasemjari átti fund með ráð-
herrum ríkisstjórnarinnar í gær.
Halldór sagði að Ásmundur hefði
gert þeim grein fyrir því að deilan
væri í mjög alvarlegum hnút og í
reynd sagt að allar leiðir hefðu
verið reyndar. Þar sem sáttafund-
ur hefði ekki verið boðaður fyrr
en eftir hálfan mánuð hefði ríkis-
stjórnin ákveðið að boða kennara
og fulltrúa sveitarfélaga á sinn
fund strax í dag, hún hafi ekki
getað setið aðgerðalaus við þessar
kringumstæður. Halldór sagði að
einnig yrði haft samráð við stjórn-
arandstöðuna.
Aðspurður hvort farið yrði
fram á frestun verkfallsins sagði
forsætisráðherra að það þyrfti að
ræða alla möguleika til að koma
skólunum af stað á nýjan leik. Þar
á meðal frestun verkfalls og til-
lögur kennara um gerðardóm. Nú-
verandi staða sé algjörlega óá-
sættanleg og ríkisstjórnin og
þingið beri skyldur gagnvart fjöl-
skyldum í landinu. Hins vegar
kæmi það ekki til greina að ríkið
tæki við rekstri grunnskóla af
sveitarfélögunum.
Birgir Björn Sigurjónsson, for-
maður launanefndar sveitarfé-
laga, segir alveg óljóst hvort
fundir dagsins með forsætisráð-
herra eigi eftir að reynast árang-
ursríkir enda hafi ekkert verið
gefið upp um hvað eigi að ræða.
Aðspurður hvers vegna launan-
efndin samþykkti ekki gerðar-
dómstillögu kennara segir Birgir
að það hefði orðið jafn erfitt að ná
samstöðu um forskrift gerðar-
dóms eins og að semja um kjara-
samning.
ghg@frettabladid.is
Vestmannaeyjabær:
Vill skaða-
bætur
VERÐSAMRÁÐ Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja hefur ritað olíufélög-
unum þremur bréf og óskað eftir
því að þau hafi frumkvæði að því
að semja um greiðslur bóta vegna
ólögmæts samráðs sem þau við-
höfðu í útboði bæjarins vegna
olíuverslunar.
Bæjarstjórnin telur að verð-
samráðið hafi valdið Vestmanna-
eyjabæ, íbúum bæjarins og fyrir-
tækjum tjóni.
Lúðvík Bergvinsson, oddviti
meirihlutans í bæjarstjórninni,
segir að Vestmannaeyjabær muni
leita réttar síns og hann vonast
eftir jákvæðum undirtektum olíu-
félaganna í samræmi við afsökun-
arbeiðnir þeirra. - ghg
„Þetta er ansi freistandi leið til
þess.“
Helga Braga verður annar kynnir Edduverðlaun-
anna. Hún er jafnframt tilnefnd sem besta leik-
konan.
SPURNING DAGSINS
Helga, er þetta leið til að tryggja sér
verðlaunin?
Fréttablaðið:
Nýtt vikurit
Nýtt ókeypis vikurit, F2, fylgir
Fréttablaðinu í dag. F2 hefur að
geyma styttri
og lengri grein-
ar sem fjalla
um allt frá
tísku til stjórn-
mála með við-
komu í matar-
gerð, tónlist
og viðburðum
framundan. Í
fyrsta hefti F2
er meðal ann-
ars viðtal við Arnald Indriðason,
langvinsælasta höfund landsins
og fréttaúttekt sem varpar ljósi á
vonlitla framtíð sveitarfélaga á
Vestfjörðum.
F2 mun hér eftir koma með
Fréttablaðinu til lesenda á
fimmtudögum. ■
Vill að fyrirtækið borgi:
Skuldar lög-
fræðingum
BANDARÍKIN, AP Martha Stewart
hefur óskað eftir því að fyrirtæki
hennar, Martha Stewart Living
O m n i m e d i a ,
borgi ríflega
260 milljóna
króna lögfræði-
reikning.
Stewart var
dæmd í fimm
mánaða fang-
elsi síðastliðið
sumar fyrir að
hafa nýtt sér
innherjaupp-
lýsingar í hluta-
bréfaviðskiptum. Nú er greini-
legt að ekki er innistæða fyrir lög-
fræðikostnaðinum á hefti hús-
móðurinnar sjálfrar. Forsvars-
menn fyrirtækisins ætla að kanna
hvort lögmætt sé að fyrirtækið
borgi reikninginn. ■
MARTHA STEWART
Sjónvarpskonan situr
nú í fangelsi.
Formaður KÍ:
Buðu upp á
gerðardóm
KENNARAVERKFALL Kennarar buðu
samninganefnd sveitarfélaga að
vísa kjaradeilu
þeirra í gerðar-
dóm en nefndin
hafnaði tilboð-
inu. Eiríkur
Jónsson, for-
maður Kenn-
arasambands
Íslands, segir
það ljóst að
sveitarfélögin
ráði ekki við að
leysa deiluna
þar sem þau taki engum útspilum
kennara. „Þau virðast halda að þau
geti haldið grunnskólakennurum í
heljargreipum láglaunastefnu. Við
vildum skoða þróun launa í grunn-
og framhaldsskólum síðan sveitar-
félögin tóku við grunnskólunum
en því þorðu sveitarfélögin ekki.“
Eiríkur vildi lítið tjá sig um
boðaðan fund forsætisráðherra í
dag. ■
ÁSMUNDUR STEFÁNSSON
Ríkissáttasemjari segir kjaradeilu kennara í
mjög erfiðum hnút. Hann gerði ráðherrum
grein fyrir stöðu mála í gær.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Forsætisráðherra hefur boðað kennara og fulltrúa sveitarfélaganna á fund í dag vegna
erfiðrar stöðu í kjaradeilunni.
Jasser Arafat lifir síðustu stundir sínar:
Undirbúa útför Arafats
GENGIÐ FRAMHJÁ MYNDUM AF ARAFAT
Myndir af Jasser Arafat má finna úti um allt á Vesturbakkanum og Gaza, þar á meðal á
þessum götumarkaði í flóttamannabúðunum Rafah í Gaza.
Ítalía:
Þrír myrtir
í mafíustríði
ÍTALÍA AP Þrjú mjög illa farin lík
fundust í bíl í borginni Napólí í
gærdag. Lögreglan segir mafínu
bera ábyrgð á morðunum og seg-
ir þá látnu nýjustu fórnarlömbin í
blóðugasta mafíustríði sem háð
hefur verið í borginni í tuttugu
ár.
Ljóst þykir að mennirnir þrír
hafi verið myrtir annars staðar
en í skutbílnum sem þeir fundust
í. Líkunum hafði verið pakkað inn
í plastfilmu og bílnum ekið í eitt
það hverfi Napólí sem hefur
slæpmt orð á sér. Þar var bíllinn
skilinn eftir. Fjöldi skotsára var
að finna á hverju líki. ■
EIRÍKUR JÓNSSON
Formaður Kennara-
sambands Íslands.