Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 22
22 3. september 2004 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI Karl Wernersson, banka-
ráðsmaður í Íslandsbanka, hefur
ásamt systkinum sínum gengið frá
7,72 prósenta hlut í bankanum.
Hluturinn var í framvirkum samn-
ingum við Íslandsbanka og Lands-
bankann sem verið hefur lokað.
Framvirki samningurinn var í
félaginu Milestone Import Export.
„Nú lokum við þessum samningum
og færum eignina inn í Milestone
ehf. sem er íslenskt félag,“ segir
Karl Wernersson.
Þar með er meirihluti 12, 28 pró-
senta eignar fjölskyldunnar í Ís-
landsbanka orðin eign inni í félag-
inu. 3,5 prósent eru í framvirkum
samningum við Straum fjárfesting-
arbanka. Góður hagnaður hefur
verið af fjárfestingunni í Íslands-
banka. Gengi bankans var 10 krón-
ur á hlut við lok á markaði í gær.
Gengishagnaður fjölskyldunnar af
kaupunum í Íslandsbanka er því
orðinn hátt í þrír milljarðar króna,
ef tekið er tillit til hárrar arð-
greiðslu bankans eftir aðalfund í
vor.
Fjölskyldan er stærsti einstaki
hluthafinn í Íslandsbanka. Næst á
eftir kemur Lífeyrissjóður verslun-
armanna og því næst Helgi Magn-
ússon, en Landsbankinn hefur
kauprétt á hlut hans á gengi sem er
talsvert undir núverandi markaðs-
gengi. ■
VIÐSKIPTI Með umræðu um lækk-
andi raunvexti hefur vaknað um-
ræða um verðtryggingu lána.
Óverðtryggð lán eru algengari en
verðtryggð í nágrannalöndum
okkar.
„Ísland er verðbólguland, það
hefur aldrei verið stöðugleiki hér
um lengri tíma,“ segir Ásgeir
Jónsson, hagfræðingur greining-
ardeildar KB banka. Hann segir
að þegar til lengri tíma hafi verið
litið hafi fólk grætt á því að vera
með lán sín verðtryggð. Ásgeir
segir að með kröfu um afnám
verðtryggingar sé verið að skjóta
sendiboðann „Vandamálið er
verðbólgan ekki verðtryggingin.“
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur ASÍ, tekur undir það að
verðtryggingin sjálf sé ekki af-
leit. „Það sem skiptir einstakling-
inn eða fyrirtækið sem tekur lán-
ið máli er hvert vaxtastigið er. Ef
við tökum óverðtryggt lán þá get-
um við búist við því að lánveitand-
inn leggi verðbólguálag á lánið
með hærri vöxtum.“ Ólafur segir
að engin trygging sé fyrir því að
óverðtryggða lánið sé ódýrara
fyrir lántakandann þegar upp sé
staðið. „Það er örugglega hægt að
segja að það er ekki sjálfgefið að
óverðtryggða lánið verði ódýrara
en það verðtryggða.“ Ólafur bætir
því við að í langflestum tilfellum
séu óverðtryggð lán með breyti-
legum vöxtum og verðbólguvænt-
ingar á hverjum tíma komi fram í
vaxtastigi þeirra lána.
Björn Rúnar Guðmundsson,
hagfræðingur greiningardeildar
Landsbankans, segir að til þess að
óverðtryggð lán verði tekin upp í
einhverjum mæli þurfi menn að
trúa á að stöðugleiki muni ríkja til
lengri tíma. „Verðtrygging er að
verða vinsælli erlendis. Menn eru
farnir að átta sig á því að þetta
form getur haft áhugaverða eigin-
leika.,“ segir Björn. Hann segir að
með verðtryggingu útiloki menn
einn þátt áhættunnar við útgáfu
skuldabréfsins. „Þar af leiðandi
ættu menn að geta boðið lægri
raunvexti.“
Hagfræðingarnir segja lækk-
andi raunvexti eins og menn hafa
verið að sjá í aukinni samkeppni á
markaði séu mun ánægjulegri tíð-
indi fyrir lántakendur, heldur en
það hvort vertrygging yrði af-
numin. Ásgeir segir að hins vegar
megi deila um hvaða þættir séu
settir inn í vísitöluna sem ákvarða
verðtrygginguna.
haflidi@frettabladid.is
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72,15 -0,06%
Sterlingspund 129,47 -0,23%
Dönsk króna 11,81 -0,08%
Evra 87,86 -0,08%
Gengisvísitala krónu 122,24 -0,37%
KAUPHÖLL ÍSLANDS - HLUTA-
BRÉF
Fjöldi viðskipta 314
Velta 8.339 milljónir
ICEX-15 3.410 0,49%
MESTU VIÐSKIPTIN
Íslandsbanki hf. 6.820.408
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 516.875
Flugleiðir hf. 190.389
MESTA HÆKKUN
Opin kerfi group hf. 6,94%
Kögun hf. 3,01%
Actavis hf. 1,49%
MESTA LÆKKUN
Fiskmarkaður Íslands -3,77%
Medcare flaga hf. -1,49%
Bakkavör group hf. -0,74
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ * 10.178,9 0,10%
Nasdaq * 1.854,7 0,23%
FTSE 4.51806 0,36%
DAX 3.833,5 0,41%
NIKKEI 11.152,8 0,23%
S&P * 1.107,8 0,17%
* Bandarískar vísitölur kl. 16.50
ÓVISSAN UM YUKOS EYKST
Nú er talið að fátt komi í veg fyrir gjaldþrot
rússneska olíufyrirtækisins Yukos. Félagið
skuldar hundruð milljarða í skatta. Óttast er
að framleiðsla stöðvist á næstu vikum.
Eignarhald Íslandsbanka:
Gengið frá fram-
virkum samningum
EIGNARHLUTIR FÆRÐIR
Karl Wernersson og systkini hans hafa gengið frá meirihluta eignarhlutar síns í Íslandsbanka.
Tæplega átta prósenta hlutur er nú í eigu íslensks eignarhaldsfélags þeirra, Milestone ehf.
BIG FOOD SVEIFLAST Gengi Big
Food Group hækkaði í gær eftir
lækkun daginn áður í kjölfar
lækkaðs verðmats greiningar-
fyrirtækis. Baugur á 22% hlut í
félaginu og á breska markaðnum
hefur verið orðrómur um að
Baugur hyggi á yfirtöku fyrir-
tækisins.
SAXBYGG EYKUR HLUT SINN
Félagið Saxbygg, sem keypti hlut
Baugs í Flugleiðum í maí, jók í
gær hlut sinn í Flugleiðum. Eftir
viðskiptin á Saxbygg tæplega 650
milljón hluti í félaginu sem er
rúmlega 27 prósent.
ENGINN SAMDRÁTTUR HJÁ
ÍBÚÐALÁNASJÓÐI Umsóknum um
lán hjá Íbúðalánasjóði fækkaði
ekki í síðustu viku þrátt fyrir að
bankarnir hafi þá kynnt ný
húnsæðislán með 4,4 prósent
vöxtum. Í Morgunkorni greining-
ardeildar Íslandsbanka í gær
kemur fram að í vikunni 23. til
31. ágúst hafi umsóknir verið að
meðaltali 42 á dag samanborið
við 48 í ágúst í fyrra.
■ VIÐSKIPTI
RÝNT Í LÁNSKOSTINA
Margir eru að skoða hug sinn þessa dagana varðandi fjármögnun íbúðarhúsnæðis. Eitt af því sem fólk veltir fyrir sér er verðtryggingin
sem tryggir það að lánin hækki í takt við verðlag í landinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
Hluthafar í Oracle:
Í mál við
stjórnendur
SAN FRANCISCO, AP Dómstólar í
Bandaríkjunum hafa á ný tekið til
athugunar mál sem hluthafar
tölvufyrirtækisins Oracle höfð-
uðu á hendur félaginu og helstu
stjórnendum.
Meðal ásakanna er að Larry
Ellison forstjóri hafi nýtt sér inn-
herjaupplýsingar þegar hann seldi
hlutabréf fyrir 900 milljónir dala
(um 60 milljarða króna) í mars árið
2001. Skömmu eftir það tilkynnti
Oracle að rekstrarstaða félagsins
væri verri en búist var við.
Dómarar á lægra dómstigi
höfðu áður vísað kröfu hluthaf-
anna frá og sagt að sönnunargögn
væru ekki næg til að halda mætti
áfram með málshöfðunina. ■
VIÐSKIPTI Greiningardeild Íslands-
banka telur líklegt að ný íbúðar-
lán bankanna muni leiða til þess
að fjárfestingar aukist í hluta-
bréfum. Það getur haft þau áhrif
að verð á hlutabréfum haldi enn
áfram að hækka.
„Þetta eru vangaveltur og mað-
ur hefur ekki endilega fast land
undir fótum ef maður nefnir tölur
í þessu samhengi,“ segir Ingólfur
Bender forstöðumaður greining-
ardeildar Íslandsbanka.
„Það er alveg viðbúið að þetta
hafi einhver áhrif. Rétt eins og
það hefur áhrif á eftirspurn og
neyslu þá er líklegt að eitthvað af
því fé sem heimilin taka út úr
íbúðarverðinu leiti inn á hluta-
bréfamarkaðinn,“ segir hann.
Íslenski hlutabréfamarkaður-
inn hefur hækkað mun hraðar
heldur en markaðir í nágranna-
löndunum á síðustu misserum.
Vísitala hlutabréfa á Íslandi hefur
hækkað um ríflega sextíu prósent
það sem af er ári. Á sama tíma
hefur hlutabréfamarkaðurinn í
Bretlandi hækkað um 5,6 prósent,
svo dæmi sé tekið. ■
Íbúðalán geta haft áhrif á hlutabréfamarkaði:
Gætu valdið
verðhækkunum
INGÓLFUR BENDER
Forstöðumaður greiningardeildar Íslands-
banka telur líklegt að auknir lánamöguleik-
ar einstaklinga geti haft í för með sér
hækkun á verði hlutabréfa.
Afnám verðtryggingar
tryggir ekki lægri lán
Verðtrygging lána er mörgum þyrnir í augum. Hún er að mati hagfræðinga ekki jafn slæm og
margir vilja vera láta. Óstöðugleikinn í íslensku efnahagslífi er vandamálið. Hagfræðingur hjá
Landsbanka segir að víða erlendis sé verið að taka upp verðtryggingu í lánaviðskiptum.
Verðmæti eigna:
Methækkun
líkleg í ár
EFNAHAGSMÁL Vísitala eignaverðs
hefur hækkað hratt á þessu ári.
Bæði fasteignir og hlutabréf hafa
hækkað mjög. Í Hálffimm frétt-
um KB banka í gær kemur fram
að eignaverðsvísitala KB banka
hafi hækkað um 22 prósent frá
júlí 2003 til sama mánaðar í ár.
Vísitalan mælir verð húsnæðis,
hlutabréfa og skuldabréfa. Fram
kemur hjá KB banka í gær að
hækkunin nú í ár sé töluvert meiri
en í uppsveiflunni í kringum alda-
mót. Þá nam hækkunin mest 15
prósentum að raunvirði en hefur
farið í 25 prósent nú í ár. ■
22-23 2.9.2004 21:13 Page 2