Fréttablaðið - 03.09.2004, Síða 23

Fréttablaðið - 03.09.2004, Síða 23
23FÖSTUDAGUR 3. september 2004 Evrópusambandið: Lausari tök á fjárlögum BRUSSEL, AP Búist er við að Evrópu- sambandið kynni í dag tillögur um minni kröfur til aðildarríkja evr- unnar um stöðugleika í ríkisfjár- málum. Fyrir tveimur árum sagði þáverandi formaður fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins að reglurnar væru heimskulegar. Stærstu aðilarríki evrunnar, Frakkland og Þýskaland, hafa ít- rekað skilað fjárlögum með meiri halla en heimilt er samkvæmt sáttmálanum og neitað að sætta sig við refsingar vegna þess. Hagfræðingar eru flestir á því að stöðugleikasáttmálinn svokall- aði sníði aðildarríkjunum of þröng- an stakk en samkvæmt honum má fjárlagahalli ekki nema meira en þremur prósentum af landsfram- leiðslu. Gerist það þrjú ár í röð má grípa til refsiaðgerða. ■ ■ VIÐSKIPTI HÖFUÐSTÖÐVAR ESB Í BRUSSEL Gert er ráð fyrir að nýjar reglur um stöðug- leika í ríkisfjármálum aðildarríkja verði kynntar í dag. VIÐSKIPTI „Þetta er að sjálfsögðu afar ánægjuleg þróun en á það ber að líta að okkar söluhæsta lyf kom á markaðinn í byrjun ársins og ólíklegt að sami vöxtur verði út árið,“ segir Halldór Kristmanns- son, forstöðumaður innri og ytri samskipta hjá lyfjafyrirtækinu Actavis. Fram kemur á heimasíðu Sam- taka iðnaðarins að verðmæti lyfjaútflutnings hefur vaxið svo mjög á árinu að hann er 1,2 millj- örðum króna meiri en lyfjainn- flutningur. Eru verðmæti ís- lenskra lyfja það sem af er árinu alls 5,4 milljarðar króna. Actavis er einn stærsti útflytjandi lyfja hérlendis. „Tekjur okkar hafa aukist um tæp 50 prósent á þessu ári og áfram er stefnt að auknum um- svifum félagsins en sú veltuaukn- ing mun að mestu eiga sér stað er- lendis í formi sóknar á nýja mark- aði. Þrátt fyrir að þetta sýni að við getum selt annað en fiskinn okkar erum við ekki að sjá sömu tölur fyrir seinni hluta ársins.“ Til samanburðar eru verðmæti sjávarafurða fyrstu sjö mánuði ársins rúmlega 70 milljarðar króna. ■ Lyf að verða mikilvæg útflutningsvara: Verðmæti lyfjaútflutnings vex hröðum skrefum ÚTFLUTNINGUR Hluti lyfja vex statt og stöðugt sem útflutn- ingsauðlind fyrir Íslendinga. Viðskiptahallinn eykst: Tvöfaldast frá í fyrra EFNAHAGSMÁL Viðskiptahallinn á fyrstu sex mánuðum ársins nam 27,8 milljörðum króna. Í fyrra nam viðskiptahallinn á sama tímabili 14,3 milljörðum. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri Seðlabank- ans sem birt var í gær. Á öðrum ársfjórðungi nam hall- inn 16,7 milljörðum en var 14,5 milljarðar í fyrra. Streymi fjár inn til landsins um- fram það sem fór út úr landinu var þó 29,1 milljarður króna, fyrst og fremst vegna kaupa erlendra aðila á íslenskum skuldabréfum. Áhugi útlendinga á íslenskum hluta- bréfum virðist þó fara minnkandi. ■ RÁÐSTEFNA UM SAMKEPPNIS- REGLUR Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur og Euphoria standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um samkeppnisreglur föstudaginn 10. september. Ráðstefnan verður á Nordica hótelinu. Þar munu sérfræðingar fjalla um breyting- ar á samkeppnisreglum Evrópu- sambandsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Fjármálaráðuneytið um stimpilgjöld: Ekki há hérlendis EFNAHAGSMÁL Stimipilgjöld eru lægri á Íslandi en víðast í ná- grannalöndunum. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytis- ins. Þar segir að ráðuneytið hafi aflað sér upplýsinga um stimpil- gjöld í kjölfar umræðu undanfar- inna daga. Í ljós hafi komið að sé litið til heildarkostnaðar við stimpilgjöld séu þau lægri hér en víðast. Bent er á að við eignakaup þurfi bæði að líta til stimpilgjalda vegna lánsskjala og einnig vegna eignayfirfærslu á fasteignum. Bretland og Norðurlöndin eru tekin sem dæmi í umfjöllun ráðu- neytisins. ■ 22-23 2.9.2004 21:13 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.