Fréttablaðið - 03.09.2004, Page 54
Kvikmyndahátíðin í Feneyjum
hófst á dögunum. Er hún sú 61. í
röðinni og stendur yfir í ellefu
daga. Fjölmargar stórstjörnur
úr Hollywood hafa þegar látið
sjá sig til að kynna nýjustu
myndir sínar, þeirra á meðal
John Travolta, Meryl Streep og
leikstjórarnir Spike Lee og Jon-
athan Demme.
Rómantíska gamanmyndin
The Terminal var opnunarmynd
hátíðarinnar í fyrrakvöld en hún
tekur ekki þátt í baráttunni um
Gullna ljónið. Skartar hún Tom
Hanks í aðalhlutverki en við
stjórnvölinn er leikstjórinn sí-
vinsæli Steven Spielberg. Mynd-
in hlaut blendnar viðtökur gagn-
rýnenda á forsýningu.
Á meðal mynda sem keppa
um aðalverðlaunin eru Birth
með Nicole Kidman í aðalhlut-
verki, Mar adentro, sem fjallar
um tilraunir lamaðs manns til að
fremja sjálfsvíg, og Vanity Fair.
Formaður dómnefndar er leik-
stjórinn John Boorman sem
meðal annars hefur leikstýrt
Hope and Glory og The Tailor of
Panama. Gullna ljónið verður af-
hent þann 11. september. ■
46 3. september 2004 FÖSTUDAGUR
Þessi kom víst út í fyrra en skaust
framhjá mér. Ég lifi í þeirri trú að
góð tónlist skili sér alltaf á réttan
stað, eflaust er bunki af frábærum
plötum sem þessari sem skilar sér
aldrei inn á borð til mín, sama þó að
ég reyni yfirleitt að hafa radarinn
uppi.
Það er nú ekki hægt að segja að
það spili beint með sveitinni að
heita svona erfiðu nafni, The
Cooper Temple Clause... hljómar
ekki spennandi. Svo þegar maður
sér plötuumslagið fer maður að
velta því fyrir sér hvort þessir
menn vilji selja plötur yfir höfuð?
Það er hrein hörmung... ekki einu
sinni forvitnilegt á listrænan hátt.
Samt virðast þeir hafa ratað á
rétta staði í Bandaríkjunum því
þeir voru á meðal þeirra fjölmörgu
sveita sem vottuðu The Cure virð-
ingu sína á Curiosa-farandtónleika-
hátíðinni um landið.
Þetta er rokktónlist og ekki er
hægt annað en að líkja þessu við
Radiohead. Þetta eru þó engar eftir-
hermur, því þeir líkjast ekki bresku
undrabörnunum í lagasmíðum,
flutning eða tjáningu... heldur út-
setningum. Þannig minnir lokalag
plötunnar Written Apology þó-
nokkuð á hinn frábæra hljóðheim
Climbing Up the Walls, einu besta
lagi OK Computer. Þetta er mjög
bíómyndaleg tónlist á köflum.
Aðall sveitarinnar er ást þeirra á
laglínunni og vel útsett elektróníkin
í bland við rokkið. Í Bandaríkjunum
er greinilega að myndast ný indie-
rokk sena sem finnst gaman að
skreyta hugsmíðar sínar með tölv-
um. Söngvarinn er líklegast ekki
allra, hefur angurværa, mjúka en
viðkvæma rödd. Meinar hverja
einustu nótu, þannig að ég heillaðist
auðveldlega með. Tékkið endilega á
þessari.
Birgir Örn Steinarsson
Góð plata, hörmulegt nafn
THE COOPER TEMPLE CLAUSE
KICK UP THE FIRE & LET THE FLAMES
BREAK LOOSE
Full búð
af nýjum
vörum
follow your heart
Laugavegi 83 • s. 562 3244
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
VÆLANDI GÍTARAR
Gítarleikarinn Carlos Santana og Henry
Garza, liðsmaður hljómveitarinnar Los
Lonely Boys, létu gítarana væla á æfingu
fyrir hin árlegu latínó-Grammy-verðlaun
sem voru haldin í gærkvöldi. Athöfnin fór
fram í Los Angeles.
Simon Cowell, dómarinn vægðar-
lausi úr þáttun-
um American
Idol, vill búa til
nýjan raunveru-
leikaþátt með
bresku kyn-
bombunnni Jord-
an í aðalhlut-
verki.
Samþykki hún að taka þátt fær
hún tæpar 260 milljónir króna í
vasann. Cowell er æstur í að fá
Jordan, eða Kate Price eins og
hún réttu nafni, í lið með sér.
„Mér líkar vel við hana og met
mikils hreinskilni hennar, „sagði
hann. „Ég er mjög spenntur fyrir
þessu og Jordan myndi
smellpassa í hlutverkið.“ ■
Jordan í raunveruleikaþætti
■ SJÓNVARP ■ KVIKMYNDIR
Stjörnuskin í Feneyjum
HANKS Á BÁTI
Bandaríski leikarinn Tom Hanks kom á hótel sitt á báti og vakti mikla athygli fyrir vikið.
Hanks fer með aðalhlutverkið í The Terminal, sem var opnunarmynd kvikmyndahátíðar-
innar í Feneyjum.
TRAVOLTA OG JOHANSSON
Vel fór á með leikaranum John Travolta og
ungstirninu Scarlett Johansson við kynn-
ingu á nýjustu mynd þeirra, A Love Song
for Bobby Long. Sú mynd keppir ekki um
aðalverðlaunin.
VEIFAR AÐDÁENDUM
Leikkonan margverðlaunaða Meryl Streep veifar til aðdáenda sinna í Feneyjum. Myndin
hennar, The Manchurian Candidate, mun ekki keppa um Gullna ljónið.
Bandaríski hjólreiðakappinn
Lance Armstrong hefur komið af
stað nýrri tísku í íþróttaheiminum
sem tengist herferð hans gegn
krabbameini.
Með hjálp íþróttavörufram-
leiðandans Nike hafa samtök
hans, Lance Armstrong Founda-
tion, sett í umferð gul armbönd,
sem kallast Livestrong, til styrkt-
ar baráttunni gegn krabbameini.
Takmarkið er að safna fimm millj-
ónum dollara, eða um 350 milljón-
um króna, sem munu renna til
samtakanna. Kosta armböndin að-
eins um 70 krónur.
Nike hefur hvatt íþróttamenn
sem klæðast varningi fyrirtækis-
ins til að nota armböndin og hafa
þau meðal annars sést á Thierry
Henry, franska fótboltasnillingn-
um hjá Arsenal.
Lance Armstrong greindist
með eistnakrabbamein árið 1996
en tókst að sigrast á því. Frá árinu
1999 hefur hann af miklu harð-
fylgi unnið sex Tour de France-
mót í röð en þau eru talin erfið-
ustu hjólreiðamót í heimi. Arm-
stong klæðist alltaf gulri treyju
þegar hann keppir og því var
ákveðið að armböndin skyldu
vera eins á litinn. Guli liturinn er
einnig tákn um von og hugrekki.
Armböndin fást ekki hér á landi
en hægt er að kaupa þau í gegnum
netið á síðunni wearyellow.com.
Einnig er hægt að læra meira um
starfsemi Lance Armstrong
Foundation á síðunni www.live-
strong.org. ■
Tákn vonar og hugrekkis
LANCE ARMSTRONG
Armstrong heldur hendinni á lofti í Tour de
France-hjólreiðakeppninni. Gula armband-
ið er vitaskuld á sínum stað.
THIERRY HENRY
Frakkinn Thierry Henry er á meðal frægra
íþróttamanna sem hafa notað Livestrong-
armbandið.
54-55 (46-47) Fólk 2.9.2004 20:30 Page 2