Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.09.2004, Qupperneq 57

Fréttablaðið - 03.09.2004, Qupperneq 57
 Ska utasvellið oðnað REYKJAVÍK p Skellið ykkur á skauta, frábær skemmtun fyrir alla í fjölskyldunni. Leigjum út skauta fyrir þá sem ekki eiga. Skautasvellið í Egilshöllinni er opið fyrir almenning Skautasvellið er opið fyrir almenning: Þriðjudaga 13:00 – 15:00 Miðvikudaga 13:00 – 15:30 16:30 – 19:00 Fimmtudaga 13:00 – 15:30 16:30 – 19:00 Föstudaga 13:00 – 22:00 Laugardaga 13:00 – 18:00 Sunnudaga 13:00 – 18:00 Skólatímar mánud. - föstud. 09:00 – 15:00 egilshollin@egilshollin.is • www.egilshollin.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H O L 25 75 1 0 9/ 20 04 FÖSTUDAGUR 3. september 2004 Stundum fæ ég hluti inn á borð til mín sem ég hef aldrei heyrt um eða í áður. Þetta eru oftast mest spennandi plöturnar. Þá veit maður að þær fara í tækið án þess að minn búið sé að planta einhverjum fordómum í minn veika haus. Þessi stúlka, Nina Nastasia, er í uppáhaldi hjá Steve Albini, heimsþekktum upptökustjóra Nirvana og Ensími. Hann stjórn- ar upptökum hér og hrósar henni við hvert tækifæri. Hún er kassagítarstúlka sem semur sín eigin lög og syngur fallega. Svo má alveg hrósa henni sérstaklega fyrir fínar textasmíðar sem virð- ast að mestu fjalla um eftirmála sambandsslita á þessari plötu. Ef ég ætti að reyna að teikna mynd af hljóðheim hennar í haus- inn á ykkur með orðasamlíkingum myndi ég nota nöfnin Suzanne Vega, Kristin Hersh (áður úr Throwing Muses) og Calexico. Þetta gefur þó bara hugmynd um innihaldið, án þess að lýsa því ít- arlega. Þessi plata er alls ekki frumleg en einlæg tónlist sem er útsett vel og smekklega. Einfaldar strengja- útsetningar skreyta einfalt gítar- plokkið og tilfinningaþrunginn sönginn. Smellpassar í Amerik- ana-senuna sem er að vaxa í vin- sældum í Bretlandi í dag. Þar í landi virðast menn loksins vera farnir að trúa því að til sé einlægt fólk, sem sé bara einlægt, og ekki að þykjast eða leika. Nina Nastasia er svo sannar- lega gerð úr við en ekki plasti. Al- vörukona, sem fjallar um alvöru- hluti og tjáir sig á almennilegan hátt. Heilsteypt og falleg plata. Birgir Örn Steinarsson Nina fer ekki í hundana NINA NASTASIA DOGS [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Kynlífssveltur simpansi í dýra- garði í Kína hefur tekið upp á því að reykja og hrækja á gesti vegna gremju sinnar. Apinn, sem heitir Feili, er 13 ára kvendýr sem sýnir gestum enga athygli, nema til þess að sníkja af þeim sígarettur. Hún sefur mestallan tímann, en fer æst að rimlunum þegar hún heldur að fólk ætli að gefa sér rettur. Þegar hún fær ekki það sem hún vill verður hún æst og óróleg. Svo þegar hún á sígarettur biður hún gesti um að kveikja í hjá sér. Verði þeir ekki við beiðni hennar hrækir hún á þá. Talið er að apinn hafi byrjað að reykja eftir að hafa séð til eins starfsmanns dýragarðsins í reyk- ingapásu. Kínverskur drengur, sem var gestur Zhengzhou-dýragarðsins á dögunum, varð vitni að þessu. „Túristi henti sígarettustubb á jörðina rétt fyrir utan búrið og hún reyndi að veiða stubbinn til sín með spýtu,“ sagði drengurinn. Dýragarðsstjórinn Lui Bing segir simpansann hafa breyst úr „góðri stúlku“ í „vandræðageml- ing“ eftir að maki hennar, sem er nú orðinn 41 árs gamall, gat ekki lengur staðið undir kynlífskröfum hennar. „Feili reykir af forvitnis- sökum en ekki vegna þess að hún er háð,“ segir Bing. „Hún lærði að hrækja af dónalegum gestum garðsins. Hún skapar mörg vand- ræði fyrir dýragarðinn.“ ■ Simpansi í Kína er byrjaður að láta kynlífssvelti sitt bitna á gestum. ■ SKRÝTNA FRÉTTIN Simpansi reykir vegna kynlífsskorts 56-57 (48-49) Fólk 2.9.2004 21:04 Page 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.