Fréttablaðið - 10.12.2004, Qupperneq 10
10 10. desember 2004 FÖSTUDAGUR
KAPPHLAUP JÓLASVEINA
Um það bil fjögur þúsund jólasveinar tóku
þátt í árlegu jólasveinakapphlaupi í
Newton í Wales. Jólasveinarnir þurfa að
hlaupa sjö kílómetra í fullum skrúða.
Félagsmálaráðherra:
Upprætir launamun
á þremur árum
LAUNAMUNUR Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra kannast við
fréttir Fréttablaðsins undanfarið
um allt að 30 prósenta mun á tekj-
um karla og kvenna hjá hinu opin-
bera. Hann kveðst hafa ákveðið að
láta fara fram könnun í félags-
málaráðuneytinu á því hvort þar
væri kerfislægur launamunur
milli kynjanna og komist að raun
um að svo hafi verið. Hann segir
að í fæstum tilfellum hafi þetta
verið meðvitað og kveðst hafa
látið leiðrétta þennan mun.
„Fyrir nokkrum vikum hélt ég
fund með forstöðumönnum þar
sem ég lagði áherslu á sömu
vinnu. Við ætlum að ljúka henni á
fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
Þetta er ég að vonast til að menn
geri alls staðar í ríkiskerfinu. Fari
þetta skref fyrir skref. Þetta kost-
ar auðvitað peninga og það hvern-
ig við stöndum að leiðréttingum
er nokkuð sem við verðum síðan
að skoða,“ segir hann.
Árni telur rétt að rannsaka
hvers vegna munurinn sé og taka
á því. Þetta sé spurning um
forgangsröðun. Hann telur
mögulegt að uppræta launamun
kynjanna á næstu tveimur til
þremur árum.
- ghs
OSMO VÄNSKÄ
Skipun hans sem aðalhljómsveitarstjóra
olli deilum í fyrstu en hann hefur síðan
verið talinn áhrifamestur um uppbyggingu
sveitarinnar síðustu ár.
Osmo Vänskä:
Stjórnandi
ársins
TÓNLIST Osmo Vänskä, finnski
hljómsveitarstjórinn sem stýrði
Sinfóníuhljómsveit Íslands á há-
tíðartónleikum hljómsveitarinnar
í gærkvöld, var á dögunum valinn
hljómsveitarstjóri ársins af
bandaríska tónlistartímaritinu
Musical America.
Vänskä, sem var aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands á árunum 1993 til 1996
en er nú aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómsveitarinnar í
Minneapolis og tónlistarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar í Lathi í
Finnlandi, tók við verðlaununum í
Carnegie Hall á mánudag,
skömmu áður en hann hélt hingað
til lands. ■
Hjón með þrjú börn:
Ferðir og ökutæki í eitt ár
SKATTBREYTINGARNAR Hjón með
þrjú börn, þar af tvö undir sjö ára
aldri, og eina milljón króna í tekj-
ur á mánuði geta grætt rúmar 717
þúsund krónur á ári þegar skatt-
breytingar ríkisstjórnarinnar
verða að fullu komnar til fram-
kvæmda árið 2007. Samkvæmt
þessu greiða hjónin 677 þúsund
krónum minna í staðgreiðslu árið
2007 og fá tæplega 40 þúsund
krónum meira í barnabætur en í
dag. Í þessum útreikningum er
ekki tekið tillit til breytinga á
eignaskatti né skerðinga á vaxta-
bótum.
Nánast sömu upphæð og ávinn-
ingurinn af skattbreytingunum er
eyddi rúmlega fjögurra manna
fjölskylda í ferðir og flutninga á
ári frá 2000 til 2002 eða 740 þús-
und krónum, samkvæmt Hagstof-
unni. Inni í þeirri upphæð var gert
ráð fyrir kaupum á ökutæki fyrir
rúmar 327 þúsund krónur á ári,
rekstur bíls fyrir tæp 329 þúsund
og flutninga upp á tæpar 85 þús-
und krónur. Þarna er um meðal-
talstölu á hverja fjölskyldu að
ræða og má reyndar búast við að
sé heldur hærri fyrir fimm manna
fjölskyldu. - ghs
Lagaleg skylda til
að uppræta einelti
Um 150 manns í útibúum banka og sparisjóða hafa orðið fyrir einelti samkvæmt niðurstöðu
könnunar sem birtist í Læknablaðinu. Reglugerð um einelti hefur tekið gildi.
Starfsmenn verða ábyrgir fyrir að stöðva einelti.
EINELTI Fimmtán prósent starfs-
manna útibúa banka og spari-
sjóða hafa orðið fyrir áreiti í
starfi. Átta prósent þeirra fyrir
einelti. Þetta er niðurstaða
rannsóknar Guðbjargar Lindu
Rafnsdóttur félagsfræðings og
Kristins Tómassonar yfirlæknis
hjá Vinnueftirlitinu. Reglur um
aðgerðir á vinnustöðum gegn
einelti voru kynntar á opnum
fundi á Grand Hótel í gær auk
niðurstaðna rannsóknarinnar.
Reglugerðin verður auglýst í
Stjórnartíðindum 20. desember.
Svava Jónsdóttir, sérfræðing-
ur á rannsókna- og heilbrigðis-
deild Vinnueftirlitsins, segir regl-
urnar byggjast á grein í vinnu-
verndarlögunum og eigi að stuðla
að forvörnum og aðgerðum gegn
einelti: „Áhersla er lögð á að at-
vinnurekandinn eigi að skipu-
leggja vinnuumhverfið þannig að
dregið sé úr hættu á að aðstæður
skapist sem geti leitt til eineltis.“
Örar mannabreytingar á vinnu-
stöðum, mikil streita og óstöðug-
leiki geti skapað þær aðstæður.
Meðal þess sem rannsókn
Guðbjargar og Kristins sýnir er
að þeir sem verða fyrir einelti eru
þrefalt líklegri til að fá sjaldan
eða aldrei hjálp með verkefni hjá
samstarfsmönnum þegar á þarf
að halda. Rúmlega 35 prósent
þeirra finnst vinnuálagið of mikið
og rúm 42 prósent þeirra sem lent
hafa í einelti finnst starfsandinn
lítið eða alls ekki hvetjandi. 47
prósent þeirra fá litla sem enga
umbun fyrir vel unnin störf svo
eitthvað sé nefnt.
Guðbjörg segir að þeir sem
lendi í einelti séu andlega úrvinda
í lok vinnudags: „Þessi rannsókn
sýnir að yfirmenn eru síður lík-
legir til að verða fyrir einelti en
aðrir starfsmenn en aðrar rann-
sóknir hafa sýnt að í rauninni
getur hver sem er orðið fyrir ein-
elti, karlar og konur í hvaða stöðu
sem er.“
Svava segir að krafa sé gerð til
starfsmanna í nýju reglugerðinni:
„Verði starfsfólk fyrir einelti eða
að því vitni þarf það að láta vita.
Það er forsendan fyrir því að at-
vinnurekandinn geti brugðist
við.“
gag@frettabladid.is
GUÐBJÖRG LINDA RAFNSDÓTTIR
Rannsókn hennar og Kristins Tómassonar
greinir að yfirmenn séu síður líklegir til að
verða fyrir einelti á vinnustað.
SVAVA JÓNSDÓTTIR
Segir nýja reglugerð um einelti eiga að
stuðla að aðgerðum gegn því. Starfsfólk
sem verði fyrir eða vitni að einelti beri að
greina frá því samkvæmt lögum svo at-
vinnurekandi geti brugðist við.
ÚR REGLUGERÐ UM
AÐGERÐIR GEGN EINELTI
Á VINNUSTAÐ
6. gr.
Tilkynningaskylda starfsmanns.
Starfsmaður sem hefur orðið fyrir eða
hefur vitneskju um einelti á vinnustað
skal upplýsa atvinnurekanda eða
vinnuverndarfulltrúa vinnustaðarins
um það. Skal starfsmaðurinn vera
reiðubúinn að skýra mál sitt nánar ef
ástæða þykir til.
7. gr.
Viðbrögð atvinnurekanda.
Atvinnurekandi skal bregðast við eins
fljótt og kostur er komi fram ábending
eða kvörtun um einelti á vinnustað.
Hið sama gildir þegar rökstuddur
grunur er um að einelti eða önnur
ótilhlýðileg háttsemi í garð starfs-
manna eða stjórnenda eigi sér stað
innan vinnustaðarins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
jólagjöf
Hugmynd að
fyrir hana
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
Asics hlaupaskór
Nimbus.
Verð15.990kr.
Kraftgöngustafir
Komperdell og Leki.
Verð frá 4.990 kr.
ÁRNI MAGNÚSSON
Félagsmálaráðherra telur mögulegt að uppræta kynbundinn tekjumun hjá hinu opinbera
á næstu tveimur til þremur árum. Það er sá tími sem hann gefur sér í verkefnið.
ÁVINNINGUR
5 manna fjölskyldu af skattbreytingum
ríkisstjórnarinnar
Staðgreiðsla nú: 4.114.313
Árið 2007: 3.437.256
Barnabætur nú: 72.616
Árið 2007: 112.192
Taflan sýnir ávinninginn árið 2007 miðað við
verðlag í dag.
FERÐIR OG REKSTUR BÍLS
Fjögurra til fimm manna fjölskylda eyddi
rúmum 700 þúsund krónum í ferðir og
rekstur bíls á ári 2000-2002. Þessi fjöl-
skylda getur grætt sömu upphæð á skatt-
breytingum ríkisstjórnarinnar árið 2007.
Myndin sem fylgir þessari frétt er valin af
handahófi. Ekki er miðað við neina sér-
staka bíltegund í fréttinni.
10-11 9.12.2004 18:52 Page 2