Fréttablaðið - 10.12.2004, Page 26
26
Ný skýrsla Amnesty International greinir
frá því að konum sé á kerfisbundinn hátt
nauðgað í stríðsátökum. Jóhanna K. Eyj-
ólfsdóttir er framkvæmdastjóri Íslands-
deildarinnar.
Gerðu menn sér grein fyrir þessu? Já,
ofbeldi gegn konum í stríðsátökum hefur
þekkst mjög lengi. Í skýrslunni metum við
umfangið og reynum að átta okkur á
hvaða lausnir séu til.
Hverjar eru þær? Eyða þarf kynbundnum
mismun í samfélögum. Til dæmis þurfa
konur að koma að friðarviðræðum, fá að-
gang að ákvarðanatöku á öllum stigum
stríðsferlisins og tryggja þarf flóttakonu-
vernd.
Hverjir verða einkum fyrir ofbeldi? Í að-
draganda stríðs verður ákveðin hervæð-
ing í samfélögum. Ofbeldi gegn konum
eykst, líka á heimilum. Í stríðinu sjálfu
flosna konur oft upp og lenda á vergangi.
Oft er ráðist inn í þorp og konum nauðg-
að til að refsa öllu samfélaginu því konan
er tákn fyrir framtíð þess. Eftir stríð færist
heimilisofbeldi svo í aukana. ■
JÓHANNA K. EYJÓLFSDÓTTIR
Kerfisbundnar
nauðganir
KONUR OG STRÍÐ
SPURT OG SVARAÐ
Breytingarnar á leyniþjónustukerfi Bandaríkjanna eiga eftir að teygja anga sína víða.
Bandaríska leyniþjónustan CIA og Þjóðaröryggisstofnunin NSA gegna lykilhlut-
verki í kerfinu en þessar stofnanir munu ekki fara varhluta af breytingun-
um.
Bandaríska leyniþjónustan
CIA var sett á fót árið 1947 en Harry S. Truman Bandaríkjafor-
seta er eignaður heiðurinn af því. Á heimasíðu stofnunarinnar
segir að markmið hennar sé að aðstoða forsetann, þjóðar-
öryggisráðið og alla þá embættismenn sem sjá um stefnu-
mótun á sviði varnar- og öryggismála. Þetta segist CIA gera
með því að láta þeim í té nákvæmar og yfirgripsmiklar upp-
lýsingar um stöðu og horfur erlendis í öryggismálum og með
því að stunda gagnnjósnir af ýmsu tagi. Fjögur þúsund manns
starfa í höfuðstöðvum CIA í Langley í Virginíuríki en þær eru
kenndar við George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem á
áttunda áratugnum gegndi stöðu forstjóra stofnunarinnar. Porter
Goss er núverandi forstjóri CIA.
Þjóðaröryggisstofnunin
Til skamms tíma var starfsemi NSA svo leynileg að stjórnvöld neituðu tilvist
hennar og því kölluðu gárungarnir hana No Such Agency eða Enga
slíka stofnun. Þjóðaröryggisstofnunin hefur einkum hleranir ýmiss
konar á sinni könnu svo og dulmálsráðningar hvers konar. Sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu NSA er markmið hennar að
stýra margvíslegum aðgerðum til verndar bandarískum upplýs-
ingakerfum og gagnaöflunar frá útlöndum. NSA er búin full-
komnustu tækjum og tækni á sviði fjarskipta og upplýsinga-
vinnslu. Í árdaga tölvualdar var NSA í fararbroddi við þróun
vélbúnaðar sem gat ráðið dulmál og skortur á geymslurými
fyrir gífurlegt gagnamagn varð starfsmönnum stofnunarinnar
hvati til að þróa segulbandssnældur sem heimsbyggðin öll
hefur síðan notið góðs af. Sennilega vinna hvergi jafn margir
stærðfræðingar og hjá NSA en þeir nota þekkingu sína til dul-
málsráðninga. Í hópi 30.000 starfsmanna NSA má auk þess
finna verkfræðinga, eðlisfræðinga, málvísindamenn og túlka. Höf-
uðstöðvar NSA eru í Fort Meade í Maryland-ríki. ■
Upplýsingaveitur fyrir fáa útvalda
HVAÐ ER? BANDARÍSKA LEYNIÞJÓNUSTAN OG ÞJÓÐARÖRYGGISSTOFNUNIN
10. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Leyniþjónusta í lamasessi
Miklar breytingar eru fram undan í bandarísku leyniþjónustunni en þær stofnanir sem
annast leynilega upplýsingaöflun hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að hafa ekki séð fyrir
atburði á borð við 11. september.
Mestu breytingar á leyniþjón-
ustukerfi Bandaríkjamanna í
hálfa öld eru nú í burðarliðnum.
Stofnað verður sérstakt embætti
yfirmanns leyniþjónustu og mið-
stöð í baráttu gegn hryðjuverk-
um verður sett á fót auk annarra
breytinga. Lögin sem Banda-
ríkjaþing hefur nú samþykkt eru
viðbrögð við gagnrýni sem fram
kom eftir hryðjuverkaárásirnar
11. september 2001 á þær stofn-
anir sem annast leynilega upp-
lýsingaöflun.
Sjöföld fjárlög íslenska ríkisins
Áreiðanleg gagnaöflun er lykil-
atriði í vörnum hvers lands og
hefur mikilvægi hennar síst far-
ið minnkandi á síðustu árum. Á
tímum kalda stríðsins voru
njósnir á margan hátt einfaldari
þar sem tiltekin ríki voru skil-
greind ógn en í dag eru hryðju-
verkahópar taldir helsta ógnin
en þeir eru ekki bundnir við til-
tekin landsvæði heldur er skipt
niður í litlar sellur sem erfitt er
að fylgjast með.
Ólíkt því sem margir halda er
bandaríska leyniþjónustan, CIA,
aðeins lítið hjól í stórri upplýs-
ingamaskínu. Leyniþjónustu-
samfélagið samanstendur af
þrettán alríkisstofnunum sem á
ári hverju hafa úr um tvö þúsund
milljörðum króna að moða, nær
sjöföldum fjárlögum íslenska
ríkisins, en margir telja upphæð-
ina vera mun hærri. Mestur hluti
peninganna fer til stofnana sem
hafa hátækninjósnir með hönd-
um þar sem fylgst er með fólki
með aðstoð gervihnatta og ámóta
búnaðar. Þar fer Þjóðaröryggis-
stofnunin NSA fremst í flokki en
hjá henni vinna tugþúsundir
manna við hleranir af ýmsu tagi.
Þrátt fyrir þetta umfang hefur
leyniþjónustunni mistekist að
laga sig að nýjum aðstæðum.
Hún sá ekki fyrir árásirnar 11.
september, lagði til meingallaðar
upplýsingar um gereyðingar-
vopnaeign Íraka, kjarnorku-
vopnatilraunir Indverja og
Pakistana árið 1998 fóru með
öllu framhjá henni og á svipuð-
um tíma var súdönsk lyfjaverk-
smiðja sprengd í loft upp að til-
lögu CIA, sem taldi að þar fram-
leiddi al Kaída efnavopn.
Margar brotalamir
Margar skýringar eru á því
hvers vegna leyniþjónustan virð-
ist fljóta sofandi að feigðarósi. Í
fyrsta lagi virðist hver og ein
stofnun innan leyniþjónustu-
samfélagsins liggja á upplýsing-
um sínum eins og ormur á gulli í
stað þess að deila þeim. Þannig
komst þingnefndin sem skipuð
var til að kanna hvað fór úrskeið-
is 11. september að því að CIA og
bandaríska alríkislögreglan,
FBI, hefðu saman haft nægar
upplýsingar til að koma í veg
fyrir árásirnar.
Í öðru lagi hefur of mikil
áhersla verið lögð á hátækni-
njósnir þar sem sérfræðingar
rýna í gervihnattamyndir og
símtalaútskriftir í stað þess að
kanna vettvanginn með eigin
augum. Til dæmis hafði CIA ekki
einn einasta útsendara í Írak fyr-
ir innrásina 2003 heldur reiddi
sig alfarið á upplýsingar sem afl-
að hafði verið aflað með tækni-
búnaði.
Í þriðja lagi hefur stjórnmála-
væðing leyniþjónustunnar verið
gagnrýnd. Með þessu er átt við
að í stað þess að leyniþjónustan
vinni á hlutlausan hátt að öflun
upplýsinga og stjórnvöld móti
stefnu á grundvelli þeirra þá
hafa stjórnvöld í vaxandi mæli
gefið leyniþjónustunni ákveðnar
forsendur til að vinna út frá og
hún aflað gagna sem styðja þær.
Dæmi um það er meint gereyð-
ingarvopn Íraka.
Sópað til hjá CIA
Á þessu ári hafa bandarísk
stjórnvöld tekið til hendinni í
leyniþjónustugeiranum og
þannig var George Tenet, for-
stjóri CIA, látinn taka pokann
sinn í sumar en Bill Clinton skip-
aði hann á sínum tíma. Eftirmað-
ur hans, repúblikaninn Porter
Goss, hefur síðustu mánuði rekið
svo marga stjórnendur CIA að
margir telja að um pólitískar of-
sóknir sé að ræða.
Breytingar sem nú verða sam-
þykktar munu eflaust gera sitt
til þess að gera leyniþjónustuna
skilvirkari. Með því að skipa
einn yfirmann allrar leyniþjón-
ustu ætti að vera hægt að sam-
ræma aðgerðir og upplýsingar
betur og eflaust munu margir
fagna fyrirbyggjandi aðgerðum
gegn hryðjuverkum sem utan-
ríkisráðuneytið á að hafa umsjón
með sem ganga út á að styrkja
lýðræðisöfl víða um heim. Hins
vegar er ekki séð að sjálfstæði
þessara stofnana gagnvart
stjórnmálamönnum muni aukast
eða að meiri áhersla verði lögð á
vettvangsrannsóknir. Tíminn
verður að leiða það í ljós. ■
GEORGE TENET Tenet var kennt um allt það sem miður hefur farið hjá CIA undanfarin
ár og því var honum sparkað.
SVEINN GUÐMARSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
BANDARÍSKA
LEYNIÞJÓNUSTAN
AP
/M
YN
D
26-27 (360 gr) 9.12.2004 14.36 Page 2