Fréttablaðið - 10.12.2004, Side 38

Fréttablaðið - 10.12.2004, Side 38
4 10. desember 2004 FÖSTUDAGUR Kjúklingamánar er nýjung í fullunninni matvöru frá Matfugli. Þeir eru með ljúffengri fyllingu úr 6 mismunandi ostum og öðru góðgæti. Þá þarf aðeins að hita í ofni eða á pönnu og því auðvelt að reiða fram sælkeramáltíð á svipstundu. – Lostæti með lítilli fyrirhöfn Með ljúffengri fyllingu úr ostum og öðru góðgæti FRÍ HEIMSENDING Nánari uppl‡singar á somi.is sími 568 6440 Allt í eldhúsið „Hugmyndin á bak við Justeat er sú að fólk geti farið inn á justeat.is og pantað sér mat á net- inu. Það skráir inn allar nauðsyn- legar upplýsingar, eins og heimil- isfang og síma, í fyrsta sinn sem það skráir sig inn. Síðan getur það skoðað veitingastaði í sínum landshluta og skoðað bestu tilboð- in hverju sinni og pantað mat heim til sín eða sótt,“ segir Þröst- ur. „Justeat.dk er ein stærsta og vinsælasta viðskiptavefsíða í Danmörku. Nú er hún að flytja sig bæði til Bretlands og Noregs en Ísland er fyrsta landið fyrir utan Danmörku þar sem útibú er opn- að. „Við opnuðum fyrir um það bil einum og hálfum mánuði og erum núna með sjö veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu skráða inn. Við ákváðum að byrja á suðvestur horninu og færa okkur síðan norð- ur. Við stefnum á að hafa 25 veit- ingastaði skráða inn á síðuna í byrjun janúar og langtímamark- miðið er auðvitað að hafa alla staði á landinu skráða inn. Í Dan- mörku eru sex hundruð staðir skráðir inn og fara um það bil fimmtíu þúsund pantanir í gegn- um síðuna á mánuði,“ segir Þröst- ur en ekki eru aðeins skyndibita- staðir skráðir inn á justeat.is. „Nei, þetta eru í raun allir veit- ingastaðir sem bjóða upp á heim- sendingu eða „Take-Away“. Við erum með indverskan mat, mexíkóskan mat, kjúkling, pítsur og margt fleira.“ Þröstur telur kosti vefsíðunnar vera mikla og þetta sé komið til að vera. „Ef fólk er svangt þá þarf það bara að muna eitt: justeat.is. Það þarf ekki að muna nein númer né leita að einhverjum stað. Það sér allt inni á vefsíðunni og getur í þokkabót pantað á netinu. Fólk sleppur líka við að þurfa að bíða í símanum og nánast engir mögu- leikar eru á því að viðskiptavinur fái vitlausa pöntun. Það þarf ekki að borga með kreditkorti á vefsíð- unni og þegar pöntun er afgreitt fær viðskiptavinur alltaf staðfest- ingu um móttöku frá veitinga- staðnum. Þetta er því 99,9 prósent öruggt.“ En er þetta fjárhagslega hag- kvæmara? „Þetta á að vera ódýr- ara því að margir staðir eru með nettilboð í gangi eingöngu fyrir þá sem panta á netinu. Þeir sem panta af vefsíðunni safna líka punktum sem hægt er að skipta út fyrir ýmsar vörur. Síðan erum við með ýmsa leiki í gangi til að hvetja fólk til að panta á netinu,“ segir Þröstur sem er bjartsýnn á framtíð justeat.is. „Þetta er fram- tíðin.“ lilja@frettabladid.is Justeat.is er framtíðin Hjónin Þröstur Már Sveinsson og Harpa Louise Guðjónsdóttir kynntust fyrirtækinu justeat.dk þegar þau voru búsett í Danmörku og ákváðu að stofna það hér á landi. „Fyrirtæki hafa tekið vel í þessa nýjung og fáum við á milli fimm hundruð og þúsund innlit á dag á vefsíðuna,“ segir Þröstur Már. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R Nú fæst hið kunna koníak Polignac VSOP í þægilegum 50 cl plastfleygum í Vínbúðum en stór hluti koníakssölu er í fleygum. Bæði eru þetta afar hentugar umbúðir á ferðalögum og eins góður kostur fyrir þá sem drekka sjaldan koníak en telja það ómissandi yfir hátíðirnar. Polignac VSOP í 50 cl plastfleyg er hagstæðustu kaupin kaupum á VSOP-koníaki í Vínbúðum. Rolf Johansen & Company er umboðsaðili fyrir Polignac koníak á Íslandi og býður að sjálf- sögðu áfram upp á Polignac VSOP í 70 cl flösku sem hefur verið í sölu um árabil og gengið mjög vel enda á afar hagstæðu verði. Verð í Vínbúðum 2.890 kr. í 50 cl fleyg og 4.150 kr. í 70 cl flösku. Polignac: Hagstæðustu kaup- in í VSOP-koníaki Nýtt í Vínbúðum SMÁAUGLÝSINGAR ALLA DAGA Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins Gljáandi áferð og girnileg Nýjar desertsósur eru komnar á mark- aðinn hér á landi frá framleiðandan- um Dr. Oetker. Þær eru þykk- ar og bragð- miklar og áferðin er gljá- andi og girni- leg. Desertsós- urnar eru í túpum með dropafríum tappa sem helst snyrtilegur þótt mikil ásókn sé í inni- hald túpunnar. Sérframleidd fyrir Ísland Danski framleiðandinn Oscar hefur sérframleitt humarsúpu fyrir Íslend- inga fyrir þessi jól. Hún er komin á markað hér á landi í duftformi en margir muna eftir slíkri súpu sem þykkni sem þó hefur ekki fengist um nokkra hríð. Gæði duftsins er hið sama og þykknisins og geta neytendur glaðst yfir því. Oskar humarsúpan hefur jafnan verið vinsæl um stórhátíðir en hún er ekki í boði í Danmörku nú fyrir jólin. [ NÝTT ] » BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á MÁNUDÖGUM 38-39 (04-05) Allt matur ofl 9.12.2004 14.41 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.