Fréttablaðið - 10.12.2004, Síða 60
1867 Wyoming lögleiðir kosn-
ingarétt kvenna. Fullorðnir íbú-
ar fylkisins voru 8.000, þar af
1.000 konur.
1907 Grundarbíllinn ekur frá
Akureyri að Grund. Fyrsti bíllinn
norðanlands.
1915 Milljónasti T-Fordinn
rennur af færibandinu. Fyrsti
bíllinn sem verður almennings-
eign
1941 Japanar ganga á land á
Filippseyjum, sökkva tveimur
skipum Breta, „The Prince of
Wales“ og Repulse“ og her-
nema Gvam-eyju.
1955 Halldór Laxness tekur við
Nóbelsverðlaununum í Stokk-
hólmi.
1957 Sydney Poitier skrifar
undir samning um leik í kvik-
myndinni „Porgy og Bess“. ■
Óskar Ingólfsson klarinettuleik-
ari er fimmtugur í dag. Tímamót-
in hringdu í Óskar þar sem hann
var í vinnunni í Tónlistarskólan-
um í Reykjavík.
Hvað gerirðu þarna, Óskar?
„Stöðuheitið er aðstoðarskóla-
stjóri. Ég kenni pínulítið. Er með
þrjá nemendur en aðalstarfið er
við skólann, skipulagning og um-
sjón. Hér er mjög öflugt tónleika-
hald. Hér er sinfóníuhljómsveit,
klarinettusveit, málmblásara-
sveit og tvær strengjasveitir. Og
svo leika nemendur einir og sam-
an með ýmsu móti.
Og rúmast þetta allt þarna í Skip-
holtinu?
„Nei, nei, húsið er allt of lítið fyr-
ir þessa starfsemi alla. Tónleik-
arnir eru haldnir út um allan bæ.“
En þú sjálfur. Ertu eitthvað að
spila?
„Það er nú lítið. Ég spila sem
lausamaður, spilaði um daginn
með Garðari Cortes, spila svo
stundum í Þjóðleikhúsinu og jafn-
vel með Sinfóníunni. En ég færð-
ist aftar í spilamannaröðinni
þessi ár sem ég var Tónlistar-
stjóri Ríkisútvarpsins. Þá spilaði
ég ekkert.“
Hvað tekurðu þér fyrir hendur á
afmælinu?
„Ég verð nú á leið til Japan. Ég
ætla að heimsækja Mikael son
minn sem er þar að læra
japönsku.“
Þú færð þá þurran kjúkling í ál-
bakka í afmælismat?
„Já, ætli það ekki. En ég fæ Mis-
osúpu í Japan.“ ■
40 10. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Emily Dickinson fæddist þennan dag í Amherst,
Massachusetts í Bandaríkjunum.
Fær Misósúpu í Japan
ÓSKAR INGÓLFSSON: BLÓMLEGT STARF Í TÓNLISTARSKÓLANUM Í REYKJAVÍK
“Eilífðin er sett saman úr núum.“
Þegar hún dó höfðu sjö ljóða hennar birst.
Hún er nú talin eitt merkilegasta skáld 19. aldar.
timamot@frettabladid.is
ÓSKAR INGÓLFSSON Flýgur til Japans á
fimmtugsafmælinu.
Þennan dag árið 1910 voru Nóbelsverð-
laun í eðlisfræði, efnafræði, læknisfræði
og bókmenntum veitt í fyrsta sinn í Stokk-
hólmi. Í Noregi voru veitt Friðarverðlaun.
Nóbelshátíðin var haldin þegar fimm ár
voru liðin frá dauða Alfreds Nobel en
þessi sænski auðjöfur fann upp dínamítið
og auðgaðist stórkostlega á uppfinningu
sinni. Þótt almenningur láti það ef til vill
litlu skipta er talið að Nobel hafi haft sam-
viskubit af því hvernig uppfinningar hans
nýttust í stríði og því ákveðið að verja
mestum hluta eigna sinna til „velferðar
mannkyni“ eins og segir í erfðaskránni.
Alfred Nobel fæddist 1833 í Stokkhólmi en fluttist
ungur með foreldrum sínum til Rússlands, Sankti
Pétursborgar, þar sem faðir hans rak sprengiefnaverk-
smiðju. Alfred reyndist ágætur efnafræðingur. Eftir
Krímstríðið fór verksmiðja föður hans á hausinn og
Alfred Nobel fluttist til Stokkhólms og setti
upp rannsóknastofu til tilrauna með
sprengiefni. 1863 tókst honum að finna leið
til að stjórna sprengingu nítróglyserín, efni
sem var nýlega uppgötvað en var of við-
kvæmt og sprengifimt til almennra nota.
Ekki var þó björninn unninn. Nítróglyserínið
sprakk og drap bróður hans og fjölda ann-
arra. Þá datt honum í hug að setja efnið í
kísilgúr. hann fékk einkaleyfi á þessu, sem
kallaðist dínamít, og græddist óhemju fé. Í
framhaldinu fann hann upp fleiri gerðir af
þessu sprengiefni sem varð allsráðandi,
bæði í verklegum framkvæmdum og stríði. En þótt
stórblöð Evrópu kölluðu hann ýmsum ónefnum þeg-
ar hann dó var hann í raun friðarsinni allt sitt líf. Og
þess sér stað í erfðaskránni. Nóbelsverðlaunin eru
enn veitt 10. desember ár hvert. Og upphæðin?
940.000 dollarar. ■
10. DESEMBER
1910 Alfred Nobel,
friðarsinninn sem
fann upp dínamítið.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
Nóbelsverðlaunin veitt í fyrsta sinn
Rauði kross Íslands var stofnaður
10. desember 1924, en allmargir
áhugamenn um Rauða krossinn
höfðu þá fylgst með starfi hreyf-
ingarinnar í Evrópu. Fyrsti for-
maður félagsins var Sveinn
Björnsson, sem síðar varð forseti
Íslands.
„Óskilyrt aðstoð við fólk í neyð
og umburðarlyndi gagnvart öllum
mönnum er markmið Rauða kross-
ins,“ segir Úlfar Hauksson formað-
ur Rauða kross Íslands. „Með þá
hugsjón að leiðarljósi leggjum við
okkar af mörkum til að byggja
betra samfélag.“
Fyrsta áratuginn voru helstu
viðfangsefni félagsins sjúkraflutn-
ingar, sjúkraþjónusta meðal vertíð-
armanna á Suðurnesjum og út-
breiðsla skyndihjálpar. Fyrsti
sendifulltrúi Rauða krossins var
Lúðvig Guðmundsson, sem fór til
Þýskalands árið 1945 og aðstoðaði
Íslendinga sem höfðu lifað af
stríðsárin í Evrópu.
Með tilkomu söfnunarkassa árið
1973 stórefldist starfsemi Rauða
krossins bæði hér á landi og á al-
þjóðavettvangi. Leiðarljós Rauða
kross Íslands er að bregðast við
neyð jafnt innanlands sem utan og
veita aðstoð sem gerir fólk hæfara
til að takast á við erfiðleika og
bregðast við áföllum auk þess sem
félagið stendur vörð um mannrétt-
indi og virðingu einstaklinga.
Sem dæmi um starfsemina má
nefna að á hverju ári heimsækja
um 750 einstaklingar með geðrask-
anir eitthvert af fjórum athvörfum
félagsins fyrir geðfatlaða. Sjúkra-
bílar félagsins flytja meira en
15.000 manns á ári. Um 7.000
manns fá árlega útgefið skyndi-
hjálparskírteini af Rauða krossin-
um. Um eitt þúsund börn fá árlega
góð notuð föt úr fataflokkun Rauða
krossins á höfuðborgarsvæðinu. Í
september hringdu 1.500 manns í
Hjálparsíma Rauða krossins 1717,
sem er opinn allan sólarhringinn.
Um 1.300 sjálfboðaliðar vinna
að verkefnum Rauða krossins í 51
deild um allt land. Þeir styðja við
starfsemi athvarfa félagsins,
heimsækja aldraða, sjúka og ein-
mana, skipuleggja neyðarvarnir
og sinna einstaklingsaðstoð í nær-
samfélaginu.
Á hverju ári fara milli 20 og 30
sendifulltrúar til alþjóðlegra hjálp-
arstarfa á vegum Rauða kross Ís-
lands. Fyrir tilstuðlan félagsins er
hlúð að ahundruðum alnæmis-
sjúkra einstaklinga í sunnanverðri
Afríku og forvarnastarf nær til
tuga þúsunda til viðbótar. ■
AFMÆLI
Pálína Erlendsdóttir
verður 60 ára 13. des-
ember. Hún tekur á
móti gestum á laugar-
daginn kl. 18.00 í
íþróttahúsi Gróttu á
Seltjarnarnesi.
Kolbeinn Grímsson fluguveiðisnillingur er
83 ára í dag.
Knútur Jeppesen arkitekt er 74 ára í dag.
Bragi Hannesson, fv. bankastjóri, er 72
ára í dag.
Sigurður Skúlason leikari er 58 ára í dag.
Bogi Arnar Finnbogason, kennari og þýð-
andi, er sjötugur í dag.
Vífill Oddsson verkfræðingur er 67 ára í
dag.
Guðný J. Helgadóttir leikari er 66 ára í
dag.
Geir G. Waage, prestur í Reykholti, er 54
ára í dag.
ANDLÁT
Guðrún Laufey Jónsdóttir, Blaka, Haga-
mel 15, er látin.
Reginn Þór Eðvarðsson, Grundargötu 18,
Grundarfirði, lést sunnudaginn 5. desem-
ber.
JARÐARFARIR
13.00 Sigurður Arngrímsson, Garðabraut
25a, Garði, verður jarðsunginn frá
Stóra-Núpskirkju.
13.00 Sigurbjörg Ólafsdóttir, Hæðargarði
33, verður jarðsungin frá Bústaða-
kirkju.
SVEINN BJÖRNSSON FORSETI Var fyrsti formaður Rauða kross Íslands.
Jóhannes Arason er 60 ára
laugardaginn 11. desember.
Að því tilefni taka Jóhannes og
Anna Kristín á móti gestum á Ránni
Veitingarhúsi, Hafnargötu 19, Keflavík,
milli kl. 15 og 17 á afmælisdaginn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarnþór Eiríksson
Oddabraut 11, Þorlákshöfn,
verður jarðsunginn laugardaginn 11. desember kl. 13.30 frá
Þorlákskirkju, Þorlákshöfn. Blóm og kransar vinsaml. afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeildina í Kópavogi.
Anna Jóhannesdóttir
Hrönn Bjarnþórsdóttir Sigurjón Sigurjónsson
Geir Bjarnþórsson Sandra Björgvinsdóttir
Lilja Bjarnþórsdóttir Jóhannes Rúnarsson
Jóhanna Bjarnþórsdóttir Egill Jónsson
Eygló Bjarnþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
RKÍ áttatíu ára
Tilkynningar um
merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn
hér á opnunni má senda
á netfangið
timamot@frettabladid.is
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@fretttabladid.is
eða hringja
í síma 550 5000
60-61 (40-41) Tímamót 9.12.2004 14.38 Page 2