Fréttablaðið - 10.12.2004, Page 69
49FÖSTUDAGUR 10. desember 2004
Kynntu þér málið á www.btnet.is eða hafðu beint samband í síma 588-1234. BTnet fæst í verslunum BT
* Viðskiptavinir fá 500Mb af erlendu niðurhali frítt um helgar. * * Gegn 12 mánaða áskrift á kreditkort.
• • Frítt á
frídögum
V12
• • 3Mb/s tenging.
• • Niðurhal innlands frítt.
• • Niðurhal erlendis allt að 100MB frítt.
• • 3 póstföng innifalin.
• • Frír beinir
• • Fyrsti mánuðurinn frítt
Frítt á frídögum allt að 2GB frítt erlent niðurhal*
Mánaðargjald 3.699,- kr.
Verðdæm
i 8Mb/s til
1. janúar!
• • taktu
fleiri bita
• • Laugardagar og sunnudagar eru frídagar
Frítt á frídögum. Þú færð allt að 2 GB frítt erlent niðurhal*.
CATHERINE ZETA-JONES og eiginmaður hennar, leikarinn Michael Douglas, gáfu að-
dáendum sínum eiginhandaráritanir þegar þau mættu á frumsýningu Ocean´s 12 í
Hollywood á miðvikudaginn.
Jon Bon Jovi bað Beckham-hjóninnýlega afsökunar á því að hafa
nefnt son sinn Romeo. Dorothea,
eiginkona söngv-
arans, eignaðist
fjórða barn þeirra
hjóna í mars og
fékk drengurinn
nafnið Romeo.
Það sem þau
vissu ekki var að
Beckham-hjónin
höfðu nýlega einnig nefnt sinn son
því nafni. „Við kölluðum hann
Romeo því okkur þótti það vera fal-
legasta nafn í heiminum, en fréttum
svo að David Beckham hafði þegar
valið það, við biðjum því Beckham-
hjónin afsökunar á þessu,“ sagði Bon
Jovi.
Christian Slater hyggst nú flytjabúferlum til London og búa þar
það sem eftir er. Leikarinn hefur
ákveðið að flytja
frá L.A. til London
með konu sinni
Ryan Haddon og
börnunum tveim-
ur. „Ég held að
hann fari aldrei til
baka nema hann
neyðist til. Það er
ekkert gaman að búa í Los Angeles.
Hann var alinn upp í New York og
honum finnst London líkjast þeirri
borg meira en L.A.,“ sagði móðir
Slaters.
Fatboy Slim segir konu sína ZoeBall hafa mikil áhrif á tónlistina
hans. Hún kynnti hann meðal annars
fyrir hljómsveitinni Franz Ferdinand.
„Konan mín spilar mikið af tónlist
fyrir mig. Stundum heyri ég eitthvert
lag sem hún er að spila og hugsa:
„Hey hvað er þetta?“ Hún spilar fyrir
mig tónlist sem ég myndi annars
ekki heyra. Ég fæ eiginlega bara
sendar plötur með danstónlist svo
ég hlusta ekki mikið á
aðra hluti. Hún er hins
vegar mikill aðdáandi
Barböru Streisand
og stundum þarf
ég að draga línu
og segja NEI, þeg-
ar hún setur hana
á fóninn,“ segir
Norman Cook,
öðru nafni Fatboy
Slim.
Matt Damon hefur nú hætt aðreykja eftir að hann var dáleidd-
ur. Leikarinn hefur reykt í 16 ár og
hætti nú loksins þessum óþverra
eftir einungis þrjá dáleiðslutíma. „Ég
hefði átt að gera þetta fyrir mörgum
árum. Þetta er ótrúlegt, ég hef
enga löngun í sígarettur leng-
ur,“ sagði Damon. Hann seg-
ist einnig hafa reynt að fá
vin sinn Brad Pitt til
þess að prófa meðferð-
ina. „Ég reyndi að fá
Brad til þess að prófa
þetta en hann vildi
það ekki. Það er
nauðsynlegt að hafa
löngun til þess að
hætta ef það á að takast.“
Charlotte Church íhugar nú aðsnúa baki við söngferli sínum til
þess að gerast
kynnir í sjónvarpi.
Þessi átján ára
stjarna á nú í við-
ræðum við sjón-
varpsstöðina BBC
um að kynna síð-
asta þátt Top of
the Pops. Einnig
kemur til greina að stúlkan kynni
hinn árlega þátt Christmas Day Show
og taki hún því tilboði mun hún lík-
lega fá fleiri sjónvarpstilboð.
Glamúrrokksveitin hárprúða
Mötley Crüe er á leið í tónleikaferð
um heiminn eftir að hafa verið í
fimm ára pásu. Allir upprunalegir
meðlimir sveitarinnar verða með í
för; trommuleikarinn Tommy Lee,
gítarleikarinn Mick Mars, söngvar-
inn Vince Neil og bassaleikarinn
Nikki Sixx.
Mötley Crüe naut mikilla vin-
sælda á níunda áratugnum fyrir lög
á borð við Girls, Girls, Girls, Smok-
in´ in the Boys´ Room og Dr. Feel-
good. Tónleikaferðin hefst í Banda-
ríkjunum í febrúar á næsta ári.
Spilað verður í rúmlega 60 borgum
í Norður-Ameríku, auk þess sem
þræddar verða tónleikahátíðir í
Evrópu. Loks heldur sveitin tón-
leika í Suðaustur-Asíu og Ástralíu.
Í febrúar kemur einnig út tvö-
föld safnplata með sveitinni sem
nefnist Red, White & Crue. Hefur
hún að geyma þrjú ný lög. „Við
erum tilbúnir að rokka og róla,“
sagði Vince Neil á blaðamannafundi
á dögunum. „Við erum enn Mötley
og við getum ennþá rokkað.“
Sveitin var stofnuð árið 1981.
Undanfarin ár hefur hún verið
þekktari fyrir persónuleg vanda-
mál liðsmanna hennar en tónlistar-
flutning. Tommy Lee hefur átt í úti-
stöðum við laganna verði. Meðal
annars kærði fyrrum eiginkona
hans Pamela Anderson hann fyrir
að beita sig ofbeldi. Árið 1989 var
Nikki Sixx nærri látinn eftir að
hafa tekið of stóran skammt af
heróíni auk þess sem Mick Mars er
að jafna sig eftir mjaðmaskipti-
aðgerð. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ TÓNLIST
MÖTLEY CRÜE Nikki Sixx í miðjunni,
ásamt Tommy Lee til hægri og Vince Neil
svara spurningum blaðamanna vegna tón-
leikaferðarinnar.
Tilbúnir að rokka og róla
68-69 (48-49) skrípó 9.12.2004 18:46 Page 3