Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 31
Ljóst er þó að for-
sætisráðherra hefur
klúðrað fyrsta skrefinu í átt
til endurskoðunar stjórnar-
skrárinnar. Skynsamlegra
hefði verið að hafa víðtækt
samstarf við stjórnarand-
stöðuna um það hvernig
standa ætti að endurskoðun.
Forsetinn hafi áfram málskotsrétt
Eitt mikilvægasta ákvæði stjórnar-
skrárinnar er það ákvæði, að forseti
Íslands geti synjað lögum staðfest-
ingar og skotið þeim til þjóðarinnar
í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hefur
þetta ákvæði verið nefnt öryggis-
ventill. Ef stjórnmálamenn gera ein-
hver glappaskot eins og gerðist í
fjölmiðlamálinu getur forseti Ís-
lands leiðrétt þau. Samkvæmt
stjórnarskránni öðlast lög, sem for-
seti synjar staðfestingar, eigi að síð-
ur lagagildi en skylt er þá að leggja
þau undir dóm þjóðarinnar.
Þetta ákvæði stjórnarskrárinnar
hefur aðeins einu sinni verið notað
en það var á sl. ári.Það sýnir, að for-
setar Íslands hafa gert sér það ljóst,
að þetta ákvæði á aðeins að nota
þegar mjög brýnar ástæður eru
fyrir hendi. Strax eftir að forseti Ís-
lands hafði synjað fjölmiðlalögunum
staðfestingar á sl. ári fóru leiðtogar
ríkisstjórnarinnar að tala um nauð-
syn þess að endurskoða stjórnar-
skrána og þá einkum ákvæði hennar
um málskotsrétt forsetans. Ljóst
var, að ríkisstjórnin vildi endur-
skoða stjórnarskrána í þeim tilgangi
að taka málskotsréttinn út. Ég tel, að
halda eigi þessu ákvæði áfram í
stjórnarskránni. Ég tel, að forseti Ís-
lands eigi áfram að hafa málskots-
rétt. Samt sem áður er ég fylgjandi
því, að sett verði ákvæði í stjórnar-
skrána um þjóðaratkvæðagreiðslur.
Tel ég, að ákveðinn hluti þjóðarinnar
eigi að geta knúið fram þjóðar-
atkvæðagreiðslu svo og ákveðinn
minnihluti alþingis.
Forsætisráðherra hefur nú skip-
að nefnd til þess að endurskoða
stjórnarskrána. Hafa orðið nokkrar
deilur um skipunarbréf nefndar-
manna. Áður var talað um nokkuð
almenna endurskoðun stjórnar-
skrárinnar, þar sem allt væri undir,
en nú bregður svo við, að í skipun-
arbréfinu er talað um að einkum
eigi að endurskoða ákvæðin um for-
seta Íslands og alþingi. Formaður
Samfylkingarinnar, Össur Skarp-
héðinsson, hefur mótmælt þessu og
telur að öll stjórnarskráin eigi að
vera undir. Hafa formenn hinna
stjórnarstöðuflokkanna, VG og
Frjálslynda flokksins, lýst yfir
stuðningi við sjónarmið Samfylk-
ingarinnar í þessu efni. Össur
Skarphéðinsson telur, að Halldór
Ásgrímsson hafi látið Davíð Odds-
son ráða ferðinni varðandi það hvað
ætti að endurskoða en áður hafi
Halldór haft frjálslyndari viðhorf í
því efni.
Fulltrúar stjórnarandstöðuflokk-
anna ætla að taka sæti í stjórnar-
skrárnefndinni enda þótt þeir séu
óánægðir með skipunarbréfið.
Áskilja þeir sér rétt til þess að fjalla
í nefndinni um öll atriði stjórnar-
skrárinnar og segjast ekki munu
láta framkvæmdavaldið skipa sér
fyrir verkum í því efni hvað eigi að
endurskoða. Ljóst er þó að forsætis-
ráðherra hefur klúðrað fyrsta skref-
inu í átt til endurskoðunar stjórnar-
skrárinnar. Skynsamlegra hefði
verið að hafa víðtækt samstarf við
stjórnarandstöðuna. ■
19MIÐVIKUDAGUR 12. janúar 2005
Fagleg hæfni ráði
Gylfi Ólafsson, stjórnarmaður í Frjáls-
hyggjufélaginu, skrifar:
Í Silfri Egils á sunnudaginn var rætt mik-
ið um erlent vinnuafl á Íslandi. Sigríður
Þorgeirsdóttir heimspekingur var þar
ekki sammála Friðbirni Orra Ketilssyni
um að vinnuafl ætti að fá að flæða
óheft milli landa. Hún spurði með vand-
lætingartóni hvort ekki ætti þá bara að
ganga alla leið og „fá lækna frá Rúmen-
íu og háskólakennara frá Kína?“ Sann-
leikurinn er vitanlega sá, og það veit
kvenfrelsissinninn Sigríður manna best,
að eini réttláti mælikvarðinn við manna-
ráðningar er fagleg hæfni, en ekki önn-
ur eigindi s.s. þjóðerni, kyn eða trú. Öllu
fólki ætti að vera frjálst að gera samn-
inga við sína vinnuveitendur og þeim
síðarnefndu jafnfrjálst að gera samn-
inga við það starfsfólk sem þeim býðst.
Þeim samningum verða aðrir að una þó
þeim falli ekki launakjör, vinnutímatil-
högun eða annað. Eða hvað segði Sig-
ríður ef hún frétti af því að á opinberum
vettvangi í Rúmeníu væri talað um það
sem vott um hnignun samfélagsins ef
flokkar íslenskra heimspekinga tækju að
streyma inn í landið til ýmissa starfa?
Með gott skopskyn
Nokkuð hefur verið rætt um kostnað við
nýjar höfuðstöðvar Orkuveitunnar, en
áfram er peningum eytt í óþarfa vit-
leysu.
Þrátt fyrir að einhverjir 1000 fermetrar í
húsinu standi auðir er nú verið að
byggja neðanjarðargöng úr höfuðstöðv-
unum yfir í annað hús. Út frá neðanjarð-
argöngunum er svo verið að byggja
tómstundaaðstöðu fyrir starfsmenn
sem inniheldur meðal annars sérstakt
neðanjarðarherbergi fyrir hljóð-, ljós- og
vatnsbylgjulistaverk sem Orkuveitan lét
hanna fyrir sig. Fólk spyr sig kannski
hvort ég sé að grínast, hvort Orkuveitan
sé í raun og veru að búa til neðanjarð-
argöng með tómstundaaðstöðu og neð-
anjarðarlistaverkum. Ég er ekki að grín-
ast gott fólk, en ég hef á tilfinningunni
að Alfreð Þorsteinsson sé með gott
skopskyn.
Sævar Guðmundsson á uf.is
Göng til Eyja
Nú er kostnaður þeirra Magnúsar Krist-
inssonar og Árna Johnsen við göng til
Vestmannaeyja kominn niður í 20
milljarða króna. Hvað ætli myndu
margir aka svona göng dag hvern? 100
bílar – kannski 300 í mesta lagi. Boð-
uð er endurkoma Árna í stjórnmálin
með þetta mál á oddinum. Annars er
ekki furða að þeir hafi áhyggjur – íbú-
um Eyjanna fækkar stöðugt. Þeir eru
nú um 4200. Þeir sem muna eftir Vest-
manneyjagosinu vita að kappsmálið
var að ná íbúatölunni aftur yfir 5000
að gosinu loknu. Það tókst. Vitaskuld á
að tryggja góðar og reglulegar sam-
göngur milli lands og Eyja. Það er
skylda okkar, hvað sem líður Sturlu og
co. Hins vegar hefur maður nokkrar
efasemdir um göngin. Kostnaðurinn
við þau myndi slaga hátt upp í verð
Millau-brúarinnar sem opnuð var í
Frakklandi fyrir jól. Hún kostaði 394
milljónir evra – um 33 milljarða ís-
lenskra króna. Brúin tengir saman þétt-
býlisstaðina París og Barcelona.
Egill Helgason á visir.is
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
UMRÆÐAN
STJÓRNARSKRÁIN
,,
BRÉF TIL BLAÐSINS
AF NETINU