Tíminn - 23.02.1975, Blaðsíða 4
TÍMÍNN
Sunnudagur 23. febrúar 1975
4___
c>
svefn en þetta, að hans eigin
sögn. Þannig vinnur maðurinn
fimm daga vikunnar, en um
helgar stundar hann einhverjar
iþróttir, eða reynir að minnsta
kosti að halda sig utan dyra, þvi
annars hefði hann ekki kraft til
þessaðvinna svona alla vikuna.
Hann bregður sér á hestbak, spil
ar tennis og fer i gönguferðir.
Þessi mjög svo duglegi pipar-
sveinn, sem er nú 35 ára gamall
hefur hlotið svipað uppeldi og
önnur ,,fin” börn i Englandi.
Hann gekk i Harrow-skólann, og
svo var hann i herþjónustu.
Hann entist ekki nema þrjú ár i
henni, en hlaut að sjálfsögðu
strax liðsforingjatign. Ekki seg-
ir Lichfield, að lávarðstignin sé
honum fjötur um fót i ljósmynd-
arastarfinu, en hann hefur frá
þvi i æsku haft geipilegan áhuga
á ljósmyndun. Reyndar var það
svo, að i upphafi tók fólk hann
ekki alvarlega, en i seinni tiö
hefur titillinn heldur verið hon-
um til hjálpar en hitt, sérstak-
lega varðandi myndatökur af
kóngafólki. Það vill nefnilega
heldur fá lávarð til sin, og láta
hann taka myndir af sér, heldur
en venjulegan ljósmyndara.
Erfiðasta verkefni lávarðarins
var, þegar hann þurfti að fá
leyfi til þess að mynda hertoga-
hjónin af Kent. Reyndar varö
myndatakan sjálf heilt ævin-
týri. Þegar allt stóð sem hæst,
reyndi aðstoðarmaðurinn að
hvisla einhverju að ljósmyndar-
anum, sem sagðist ekki mega
vera að þvi að hlusta á hann,
það gæti beðið betri tima. En
aðstoðarmaðurinn kom sinu
fram, og þá var það, sem hann
vildi segja, hvorki meira né
minna en það, að engin filma
væri i myndavélinni. Þá greip
Lichfield til þess óyndisúrræðis
að segja, að ljósin væru svo
slæm, að fresta yrði myndatök-
unni og var það gert. Nú segist
hann eiga eitt markmið i lifinu,
og það er að ljósmynda allar
konungafjölskyldur, sem enn
eru við lýði. Hér eru svo tvær
myndir frá þvi Lichfield var i
Sviþjóð. A annarri er hann að
ræða við Karl konung og undir-
búa myndatökuna, en á hinni
ræðir hann við Christinu prins-
essu. Þekktastur mun Lichfield
vera af mynd, sem hann hefur
tekið af Onnu Bretaprinsessu.
Ég safna kóngafólki
Fyrir nokkru var Patrick nokk-
ur Lichfield i Sviþjóð að gera
kvikmynd fyrir brezka sjón-
vgrpið um sænska konunginn.
Patrich Lichfield er þekktastur
fyrir myndatökur sinar i Eng-
landi, en hann er auk þess
frændi Elisabetar drottningar.
Þar við bætist svo, að hann
stundar annað slagið húsasölu,
og svo er hann einnig meðeig-
andi i ferðaskrifstofu, fatafyrir-
tæki og hálsbindafyrirtæki, og
þykir mörgum það heldur und-
arlegt. Sænskir blaðamenn
ræddu við Lichfield, þegar hann
var i Sviþjóð, og spurðu hann,
hvað hann hefðist að. Hann
sagðist ekki eiga i neinum erfið-
leikum með að finna sér verk-
efni, og skyldi engan undra,
þegar tekið er tillit til þess, að
hann er meðeigandi i svo mörg-
um fyrirtækjum, sem nefnd
hafa verið. Hins vegar sagðist
hann eiga töluvert erfitt með
sig, þegar hann væri i sumar-
frii. Hann sagðist hafa tvivegis
gert tilraun til þess að taka sér
fri frá störfum á siðustu tiu ár-
um, en það hefði gengið heldur
illa. Þar af leiðandi hefur hann
valið þann kostinn að fara alls
ekki i fri, þvi honum fellur svo
dæmalaust vel að vinna. Þá
skýrði Lichfield blaðamönnum
frá þvi, að hann ynni frá klukk-
an 9 á morgnana til klukkan 6—7
á kvöldin. Þegar venjulegu
vinnunni er lokið, snýr hann sér
að einhverju af hinum mörgu
aukastörfum og sinnir þvi i
nokkra tima. Um ellefuleytið
borðar hann kvöldmatinn með
einhverjum vina sinna, og svo
fer hann gjarna út og dansar
stundarkorn á einhverjum
dansstaðnum. Sjaldnast sagðist
hann fara i rúmið fyrr en undir
fjögur á næturna. Þó sagðist
hann aldrei sofa lengur en til
klukkan hálf átta. Hamingja
hans er að þurfa ekki meiri
Þannig held
ég mér
ungum
Ég drekk ósköpin öll af mjólk,
hreyfi mig mikið og hef hreina
samvizku, segir söngvarinn Pat
Boon, og á þann hátt held ég
mér ungum. Það éru ekki marg-
ir, sem trúa þvi, að ég sé orðinn
fertugur, bætir hann við, og það
má greina stolt i röddinni. Ég
hef hreina samvizku,' vegna
þess að ég geri alltaf það, sem
ég tel vera réttast og bezt
hverju sinni. Þess vegna geri ég
aldrei á hlut annarra.