Tíminn - 23.02.1975, Blaðsíða 17

Tíminn - 23.02.1975, Blaðsíða 17
Sunnudagur 23. febrúar 1975 TÍMINN 17 Guðmundur G. Þórarinsson afhendir Friörik Ólafssyni verðlaunin á Skákþingi 1971. litið. bað varð jafntefli. Það var fyrir fjórum árum i Moskvu. — Bendir það ekki til styrkleika að hann náði jafntefli? — Það segir sitt. En án gamans, Karpov hefur náð sinum styrk- leika aðallega á siðustu þremur árum og er nú geysisterkur skák- maður. — Larsen. Hvar er hann? — Hann er vist að tefla i Sviþjóð. Það gengu sögur um að hann væri orðinn spænskur rikis- borgari, en hefur ekki við rök að styðjast. Annars býr hann núna i Las Palmas og segist vera á flótta undan dönskum sköttum. — Hann tekur þátt I skákmótum út um allan heim. — Hann er alltaf teflandi og verður það vafalaust alla tið. Þetta er hans lif og yndi. Larsen að dala? — Fer styrkleiki hans þverr- andi? — Ég veit það nú ekki. En hann hefur ýmislegt misst af þvi sem Friðrik tefldi við áskorandann, Karpov og gerði jafntefli. Það var í Moskvu fyrir fjórum árum en síðan hefur Karpov aukið styrkleika sinn ótrúlega mikið hann hafði áður. Fyrir 6-7 árum voru allar likur á þvi að hann myndi ná langt i skákinni, en hann hefur nú lækkað flugið svolitið — i bili að minnsta kosti. Það hefur einhvern veginn dregið af honum. Auðvitað getur þetta verið timabundið ástand og hann gæti eins vel komið upp aftur, sterkari en nokkru sinni fyrr. — Hvenær teflduð þið siðast saman? — t Las Palmas. — Larsen sagði fyrir nokkrum árum i blaðaviðtali að þú værir bezti áhugaskákmaður i heimi? — Já hann varð vist að segja það. Þetta var eftir að við tefldum skák á Laugarvatni með lifandi mönnum — og hann tapaði. Þetta var svona létt skák, og meira upp á grin. Fer til Spánar frá Eist- landi — Nú lýkur skákmótinu I Eist- landi um 10. marz. Hvað tekur þá við? — Þá fer ég liklega á mót á Spáni, sem þó er ekki endanlega ákveðið. Alla vega fer ég til Las Palmas. — Að hitta Larsen? Eruð þiö vinir? — Það er gott á milli okkar Lar- sens, nema þegar við teflum, annars held ég ekki neinn sér- stakan kunningsskap við hann, en það gleður okkur að hittast. Ég á von á að mótið á Spáni geti orðið með svipuðum styrkleika og þetta mót á Eistlandi og hefi ég þvi talsverðan áhuga á þvi að það verði haldið með tilgreindum styrkleika. — Ferðu á heimsmeistaraein- vigið? — Ég hefði mikinn áhuga á þvi. Þó er langt að fara ef það verður haldið á Filippseyjum. Annars er ekki lengur nauðsynlegt að fara á svona mót til þess að fylgjast með. Maður fréttir af þessum skákum á augabragði hvar sem maður er i heiminum. Fréttir koma með telex-sendingum og i fjölmiðlum og ekkert á að fara framhjá manni i skákunum, ef menn hafa áhuga. En áhugavert er að koma á svona stórmót og stemmningin er mikil, ekki aðeins fyrir skákmeistara heldur fyrir allan almenning, segir Frið- rik ólafsson, stórmeistari að lok- um. Jónas Guðmundsson. Ofthefur Friðrik teflt fjöltefli, bæði við börn og fullorðna. Hér er hann árið 1965 að tefla við nokkra pilta úr gagnfræðaskóla i Kópavogi. » w- V \ ■s^-rrsssssst f —* « a A skákmóti 1971 Yngvar Barda og Friðrik Ólafsson. Guðfinnur Kjartansson, færir Friðriki Ólafssyni stórmeistara blóm f tilefni ef fertugsafmæli hans. ALLIR VITA að gengi íslenzku krónunnar hefur verið breytt ÞÉR AAEGIÐ OG VITA AÐ ENN FÁST HJÓLHÝSI Á GAMLA VERÐINU /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.