Tíminn - 23.02.1975, Page 27
I
Sunnudagur 23. febrúar 1975
TÍMINN
27
★ BELGÍA:
Við
hornfánann
Erlendir punktar
Brunaverðir gabbaðir
BRUNAVERÐIR verða ávallt að vera viðbúnir, þegar kallað er á þá. Ahorfendur að knattspyrnuleik I
Beigiu fengu að verða vitni að þvl fyrir stuttu, þegar FC Bracken og Coningen ieiddu saman hesta sina.
Rétt áður en leikurinn átti að hefjast, þá glumdi brunabjallan við. Þar sem nokkrir leikmenn FC Brack-
en voru brunaverðir I heimabæ sinum, en þar fór leikurinn fram, þurftu þeir að kiæða sig úr knatt-
spyrnubúningnum og klæðast brunastökkum sinum.
Hvað gerðist svo? Jú, leiknum var ekki frestað, og lauk, honum með þvi að lið brunavarðanna tapaði
0:5 fyrir Coningen. Brunaverðirnir urðu illilega argir, þegar þeir komust að þvl, að brunaútkallið var
bara gabb, og það voru engir aðrir en áhangendur Coningen, sem voru svo ósvifnir að hringja brunaboð-
anum.
★ ENGLAND:
„MaggiP. hefurnáðhinu langþráða takmarki. Þetta var hans 500.
bókun”.
„Þið talið ekki um annáð en
Arsenal og Liverpool. Hvernig
væri að tala um Ulfana?”
*
Pele-ost-
hleifar
komnir á
Æfa knattspyrnu á einum skó!
LIÐ FYRIRTÆKIS eins i Englandi, Heating Bradshaw, hefur vakið mikla athygli I leikjum sinum I
firmakeppni. Astæðan fyrir þvl er sú, að allir leikmenn liðsins eru jafnvigir á báðar fætur, og er alveg
sama hvort þeir spyrna með hægri-eða vinstri fæti. Þegar þjálfari liðsins, Lowell, var spurður að þvi,
hvernig á þessu stæði, sagði hann: — Ég haga æfingum liðsins þannig, að leikmennirnir fá aðeins að
leika I skó á öðrum fætinum á æfingum. Ég skipti þvi þannig, að á einni æfingunni leika þeir með skó á
hægri fæti en á næstu æfingu skipti ég yfir og læt þá leika með skó á vinstri fæti. Þannig æfast þeir I þvl
að leika og skjóta meö þeim fætinum sem skæddur er hverju sinni.
Hvernig væri að islenzkir þjálfarar tækju þetta upp eftir Lowell?
★ GRIKKLAND;
Fjögurra mánaða fangelsisdómur
GRÍSKI knattspyrnukappinn og landsliösmaðurinn Angelis, sem leikur með Aþenuliðinu Olympiakos,
var fyrir stuttu dæmdur I fjögurra mánaða fangelsi, fyrir að mótmæla dómi hjá dómara. Angeiis var
ekki ánægður með dóm, sem var dæmdur á lið hans á þýðingarmiklu augnabliki. Hann mótmælti dómn-
um harðlega við dómarann, og þegar það dugði ekki, sneri hann sér við, girti niður um sig buxurnar og
sýndi dómaranum óæðri endann á sér I mótmælaskyni. Fyrir þetta fékk hann fangelsisdóminn. Mörgum
fannst þetta strangur dómur. eða hvað finnst ykkur?
„Tækifæri sem ég
ætla að notfæra"
markaðinn
í Brasilíu
OSTAGERÐARMAÐUR I
Brasiliu hefur nú hafið fram-
leiðslu á osthleifum, sem hann
hefur gefið nafnið „Pele”, en ost-
hleifarnir eru með stóru gati I
miðjunni. Þcgar ostagerðarmað-
urinn var spurður að þvi, hvers
vegna hann hefði gatið I miðjunni,
sagði hann: — Það er til að sýna
gatið, sem hinn snjalli knatt-
spyrnusnillingur Pele, hefur skil-
ið eftir sig i brasiliska landslið-
inu.
,,ÉG VAR mjög undrandi þegar
ég frétti að Tottenham vildi fá
mig til sin”, sagði hinn snjalli
miövöðrur Don McAUister, sem
Tottenham keypti frá Bolton
Wanderers á 80 þús. pund. — Ég
bjóst ekki við að Lundúnaliðið,
myndi kaupa mig, þvi að ég vissi
að menn frá Liverpool, Everton,
Manchester City og United, hafa
verið að fylgjast með mér upp á
siðkastið. Það er ánægjulegt að
vera kominn til Tottenham og ég
hef fengið stórt tækifæri sem ég
ætla að notfæra mér. Ég vona að
ég getihjálpað Tottenham upp úr
þeim öldudal, sem liðið hefur ver-
ið i.
Don McAlister er aðeins 21
árs en samt hefur hann leikiö yf-
ir 150 leiki með Bolton. Hann
byrjaði aðeins 16 ára gamall að
„ÚTLENDINGA-
HERDEILDIN"
LEIKMENN Manchester
United eru nú kallaðir „Ut-
lendingaherdeildin” á Old
Trafford. Astæðan fyrir þessu
er sú, að þetta fræga enska lið
er nær eingöngu skipað Skot-
um, Ulsterbúum og Irum. 11
Skotar leika meö liðinu, 4
Ulsterbúar, 3 lrar, einn
Walesmaður og einn Kanada-
maður. Framkvæmdastjóri
United, Tommy Docherty, og
aðstoðarmaður hans, Paddy
Crerand, eru báöir Skotar.
< m.
TOMMY DOCHERTY.
★ sagði Don AAcAllister, sem var mjög
undrandi, þegar Tottenham
keypti hann fró Bolton '
p af, # 4 áÆ -JL... Jitefíji'
í j
leika með Bolton-liðinu og s.l.
þrjú keppnistimabil hefur hann
leikiðstöðumiðvarðarvið hliðina
á Paul Jones, sem Leeds hefur
sýnt áhuga á og er tilbúið til að
greiða 200 þús. pund fyrir.
Bolton er nú i miklum f járhags-
erfiðleikum og tapar liðið um eitt
þús. ppnd á viku, þrátt fyrir að
liðið sé með efstu liðunum i 2.
deild. Að meðaltali koma um 16.
þús. áhorfendur til að sjá heima-
leiki liðsins. Nú hefur liðið selt
McAllister til að lifga upp á f jár-
haginn og einnig lánað Garry
Jones til Sheffield United i tvo
mánuði. Þá mun félagið selja
Paul Jones til Leeds nú einhverja
næstu daga.
<3
DON McAUister er talinn einn
efnilegasti varnarmaður á Bret-
landseyjum um þessar mundir.
f
V
UMSJÓN:
Sigmundur O.
Steinarsson